Fréttablaðið - 31.01.2005, Page 17
SMÁAUGLÝSINGAR
byrja í dag á bls. 34
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 129 stk.
Keypt & selt 37 stk.
Þjónusta 55 stk.
Heilsa 13 stk.
Skólar & námskeið 3 stk.
Heimilið 10 stk.
Tómstundir & ferðir 5 stk.
Húsnæði 27 stk.
Atvinna 16 stk.
Tilkynningar 4 stk.
Banki allra landsmanna410 4000 | landsbanki.is
4,15%Íbúðalán Kynntu þér kostina við íbúðalán Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina sem hentar þér best. Hafðu samband í síma 410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
67
26
12
/2
00
4
Tilboð í 1. áfanga Hellisheið-
arvirkjunar Orkuveitu Reykja-
víkur voru opnuð 25. janúar.
Lægsta tilboð kom frá Þ.G.
verktökum ehf. og var það
85,71% af kostnaðaráætlun
sem er 2.290.978.131 kr. Litlu
ofan við Þ.G. verktaka voru
Keflavíkurverk-
takar hf með
87,23% af
kostnaðaráætl-
un.
Félagsheimilin
þrjú í eigu
Fjarðabyggðar:
Félagslundur
Reyðarfirði, Val-
höll Eskifirði og
Egilsbúð í Neskaupstað verða
hugsanlega seld. Bæjarstjórnin
í Fjarðabyggð hefur skipað 3ja
manna starfshóp sem fjalla á
um málið. Félagsheimilin hafa
verið leigð út til rekstraraðila
en þrátt fyrir það leggur sveitar-
félagið til umtalsvert fjármagn
til viðhalds og reksturs fasteign-
anna.
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar,
Lúðvík Geirsson, skrifaði nýlega
undir samninga
vegna nýbygging-
ar við Setbergs-
skóla. Þar verður
m.a. íþróttasalur,
þrjár kennslustof-
ur og fyrirlestrar-
salur. Nýbyggingin
er hönnuð af
Batteríinu ehf.,
TERU s/f. og
Hönnun ehf. Hún
verður 1300 m2 að stærð og á
tveimur hæðum að hluta.
Framkvæmdir eru þegar hafnar
og skal þeim lokið 15. desem-
ber í ár.
FASTEIGNASÖLUR
101 Reykjavík 28
Atlas 27
Ás 12-13
Ásbyrgi 9
Bifröst 7
Draumahús 19-22
Eign.is 6
Eignakaup 26
Eignalistinn 16
Fasteignamarkaðurinn 6
Fasteignam. Grafarvogs 8
Fasteignam. Hafnarfj. 23
Fasteignamiðlun 8
Hóll 6,17 og 33
Hraunhamar 14-15
Hús.is 32
Húsakaup 17
Húsalind 16
Höfði 31
Lyngvík 10-11
Nethús 29
Nýtt heimili 25
TM fasteignir 4 og 5
X-hús 30
Þingholt 30
Húsin við Lækjargötu 26 og 28 verða
tilbúin til innflutnings í sumar.
Um er að ræða fjögur fjölbýlishús,
þriggja, fjögurra og fimm hæða, alls 89
íbúðir sem standa við Lækjargötu 26-32 í
Hafnarfirði. Húsin eru svalagangahús
með lyftu, auk þess sem 20 bílskúrar og
149 bílastæði eru á lóðinni. Afhending
fyrstu húsanna er næsta sumar en áætlað
er að síðari tvö húsin verði afhent á bil-
inu janúar–mars á næsta ári.
Húsin eru uppsteypt úr forsteyptum
einingum. Útveggir eru að mestu með
steinaðri veðurkápu að utan. Öllum íbúð-
um á efri hæðum fylgja góðar svalir með
álklæddum handriðum. Fyrir framan
jarðhæðaríbúðir er hellulagt sérafnota-
svæði, jafnt að stærð og svalirnar.
Sameign er skilað fullfrágenginni.
Einnig fylgja geymslur og þvottaaðstaða
öllum íbúðunum.
Íbúðunum verður skilað þannig að þær
verða búnar flestöllum lögnum fyrir
sjónvörp, tölvur og síma í öllum her-
bergjum og gólf rykbundin. Einnig verða
skápar í öllum herbergjum og spónlögð
eldhúsinnrétting með keramikhellum.
Baðherbergi verða flísalögð með baðkari,
innréttingum og innsteyptri hitalögn í
gólfum.
Bílastæði og akvegir eru malbikaðir
og gangstéttir hellulagðar með snjó-
bræðslu. Lóðin verður frágengin og
tyrfð. Allar breytingar er kaupandi óskar
eftir eru háðar samþykki byggingaraðila
og greiðast af kaupanda. Boðið er upp á
staðlaðar breytingar sem kaupandi getur
valið úr en aðrar breytingar verðlagðar í
samráði við byggingaraðila.
Sala á fyrstu tveimur húsunum hefst í
dag en seinni húsin fara í sölu í haust.
Íbúðirnar eru misstórar eða frá 74 fer-
metrum og upp í 164 fermetra og verðið
hleypur frá 15 milljónum og upp í 39
milljónir fyrir utan bílskúr. Fasteigna-
miðlunin Húsakaup sér um söluna og
veitir allar nánari upplýsingar. ■
Glænýjar íbúðir á falleg-
asta stað í Hafnarfirði
Einstaklega fallegt er við lækinn í Hafnarfirði á fallegum sumardögum.
LIGGUR Í LOFTINU
í fasteignum
MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS
Litlir hlutir sem breyta miklu BLS. 2
Rofar fyrir nútímaheimili BLS. 3
ER ÞÍN FASTEIGN AUGLÝST HÉR?
Góðan dag!
Í dag er mánudagurinn 31. jan.,
31. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 10.10 13.41 17.13
AKUREYRI 10.08 13.26 16.45
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
fasteignir@frettabladid.is