Fréttablaðið - 31.01.2005, Side 18
Niðurfall Nú þegar snjórinn og klakinn er farinn skaltu nota tækifærið og þrífa niðurfall-
ið. Losaðu ristina ofan af niðurfallinu og taktu allt laust rusl í burtu sem safnast hefur
saman þar. Sópaðu sandi og smásteinum frá niðurfallinu, þrífðu ristina og festu vel.[ ]
sími 568 6440
ÚTS
ALA
Til leigu
280 fm2 verslunarhúsnæði á frábærum stað við
Smiðjuveginn í Kópavogi, mjög gott
auglýsingargildi og næg bílastæði, laust strax
Upplýsingar gefur Pétur í síma 860-1123.
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
ÚTSÖLULOK
27.900
Þjóðlagagítar
frá kr. 14.900 ,,Við ætlum fjórar vinkonur
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
Sumarnámskeið fyrir skapandi börn,
eldri og yngri, keramik, teikning,
málun - allt innifalið - litlir hópar.
Aðeins 8500 kr. vikan!
Skráning í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Hvað segja börnin
um námskeið í
Keramik fyrir alla?
Barnaafmæli
Bekkjarferðir
Keramik fyrir alla,
Frábær sk mmtun
fyrir allan hópinn.
Tilboðspa kar
Keramik og pizza frá
kr. 990 á mann.
- mest lesna blað landsins
Á LAUGARDÖGUM
Hin hliðin á bílum
Stærsti bílamarkaður landsins
Auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
Mjór er mikils vísir
Í eldhúsinu er hægt að breyta heilmiklu
með smávægilegum breytingum.
Getur verið að eldhúsið þitt þurfi andlitslyftingu en þú hef-
ur ekki efni á að endurnýja allt? Til eru nokkrar einfaldar og
ódýrar lausnir til að leysa málið og getur hlutur eins og ein
málningardós gerbreytt öllu. Áður en haldið er af stað með
að breyta einhverju skaltu skoða hvað það er við eldhúsið
sem þér finnst að mætti helst laga. Er borðplatan orðin
slöpp, gardínurnar gamaldags eða gólfið ljótt? Ef þú ert að
breyta litlu geturðu leikið þér mikið án alvarlegra afleiðinga.
Milli skápa: Svæðið á milli skápa er oft
ekki mikið en hefur mikið að segja. Það
sem skiptir kannski mestu máli er að
auðvelt sé að þrífa það. Gamlar flísar er
hægt að mála yfir með ferskum lit eða
setja nýjar flísar. Svæðið er einnig hægt
að klæða með glerplötu, stálplötu, park-
etti, veggfóðri eða speglum. Þarna er
hægt að láta ímyndunaraflið njóta sín.
Borðplata: Tiltölulega auðvelt er að
skipta út borðplötu og myndi það gefa
eldhúsinu ferskt yfirbragð. Efnisúrval er
mikið og um að gera að gefa sér góðan
tíma í að skoða og á mörgum stöðum
eru uppsett eldhús sem hægt er að
kíkja á. Taktu endilega prufur af því efni
sem þér líst best á og berðu við innrétt-
inguna þína.
Gardínur: Fátt er einfaldara en að
skipta út gardínum. Ef til vill ertu með
stóra og mikla glugga í eldhúsinu og
skipa því gardínur stóran sess í eldhús-
inu. Flettu blöðum, farðu í búðir og
skoðaðu úrvalið og þú finnur eflaust
eitthvað sem hentar. Ef mikil birta kem-
ur um gluggana getur verið gott að hafa
ljóst efni sem upplitast ekki í sól.
Húsgögn: Fáðu þér nýtt eldhúsborð
og/eða stóla. Eða keyptu nýjan dúk á
borðið og settu fallega mynd eða hillu
yfir og blóm á borðið. Til er heilmikið af
borðum og stólum í Góða hirðinum
sem er hægt að mála eða bólstra upp á
nýtt og þú ert kominn með ný húsgögn.
Eldhússinnrétting: Það þarf ekki að
vera svo mikið mál að skipta um hurð-
ir á innréttingu eða einfaldlega setja
nýjar höldur. Sumar innréttingar er
hægt að mála eða lakka. Einnig getur
verið ráð að rífa niður efri skápana til
að fá meira rými og setja opnar hillur í
staðinn.
Gólf: Ef þú ert með dúk geturðu einfaldlega málað hann og
látið sníða fallega kókosmottu á gólfið. Flísar er einnig hægt að
mála yfir eða setja nýjar. Ef þú ert með parkett í íbúðinni getur
verið fallegt að láta það halda áfram inn í eldhús, þó ekki séu
allir hrifnir af parketti á eldhúsgólfi. Einnig er hægt að setja nýj-
an dúk á gólfið og er það bæði einfalt og þægilegt.
Lýsing: Endurnýjun á lýsingu í eldhúsi
getur sett breytt ansi miklu. Lýsing ræð-
ur stemningu en góð birta í eldhúsi
skiptir öllu máli. Fallegt nýtt ljós yfir eld-
húsborðið og ný ljós í loftið geta ger-
breytt eldhúsinu.