Fréttablaðið - 31.01.2005, Qupperneq 34
18 31. janúar 2005 MÁNUDAGUR
Hótel Borg er meðal þeirra húsa sem setja sterkan
og stórborgarlegan svip á miðbæinn.
Hótel Borg var opnað árið 1930 í tæka tíð til að geta boðið erlendum
tignargestum Alþingishátíðarinnar til gistingar í glæsilegum húsa-
kynnum. Það var Jóhannes Jósepsson glímukappi sem reisti Hótel Borg
af stórhug og myndarskap eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar og
var ekkert til sparað. Þar voru í upphafi 48 eins og tveggja manna her-
bergi og íburðarmiklir veitinga- og danssalir. Áhrifa jugendstíls kenndi
í innréttingum en húsbúnaður var keyptur frá Þýskalandi. Nú er 51 her-
bergi á Borginni, þar af fimm svítur.
Fjöldi frægra manna hefur skráð nöfn sín í gestabók Hótel Borgar
og notið góðra stunda þar. Nægir þar að nefna Kristján X Danakonung,
leikarana Anthony Hopkins, Kevin Costner og söngkonuna Marlene
Dietrich. Nóbelsverðlaunahafarnir Halldór Laxness, William Faulkner
og Niels Bohr hafa verið meðal gesta og Björk gistir þar í hvert sinn
sem hún kemur til Íslands.
Árið 1993 var húsið endurbætt, það var Tómas Tómasson veitinga-
maður sem gekkst fyrir því og ýmsar breytingar hafa verið gerðar á
því síðan. Þó er þess gætt að halda tryggð við margar upprunalegar
hugmyndir sem þeir Guðjón Samúelsson og Jóhannes Jósepsson lögðu
upp með. ■
Borgin í hjarta
borgarinnar
Gleyma norðangúlpnum og göturykinu
ÚR SÖGU REYKJAVÍKUR
Hótel Borg var einn áfanginn
enn að því marki að gera
Reykjavík að höfuðborg sem
gæti sómt sér meðal höfuðborga
annarra frjálsra ríkja. Vorið
1930 var skrifað í eitt blaðið að
hótelið væri nánast orðið heimili
Reykvíkinga. Þeir vildu helst
dvelja þar frá morgni til kvölds.
En veitingasalirnir höfðu verið
opnaðir í janúar.
„Þegar þangað kemur er sem
þeir fjarlægist allt sem er leið-
inlegt og drungalegt í þessum
bæ, þar gleyma menn því hvað
hér er annars pokalega tilbreyt-
ingarsnautt, gleyma um stund
norðangúlpnum og göturykinu,
rukkurum og pólitík og finnst
sem þeir séu komnir þangað
sem sólin vermir hörundið og
blóðið streymir ört og hlýlega.
En húsbóndinn Jóhannes Jósefs-
son gengur um á meðal gestanna
og sér um að allir fái sitt og allir
fari ánægðari en þeir komu. En
gestirnir taka í hönd honum og
þakka honum fyrir í hjarta sínu
að hann skyldi reisa þennan suð-
ræna sælulund í eyðimörk hins
reykvíska tilbreytingarleysis.“
Saga Reykjavíkur
Bærinn vaknar
Síðari hluti.
Bls. 228 og 229.
Höf. Guðjón Friðriksson.
Falleg harmónía í húsakúnst miðborgarinnar.
Hótel Borg hefur yfir sér sjarma. Arkitekt upphaflega hússins var Guðjón Samúelsson. Nýja álman er með dökkum flötum milli
glugga. Þar voru Almennar tryggingar áður til húsa.
Í móttökunni.
Chesterfield húsgögn prýða stofu sem áður hýsti Skuggabarinn.
Hornherbergið nýtur gríðarlegra vinsælda.
Stíll yfir stiganum.
Jóhannesarstofa geymir ýmsa muni
Jóhannesar á Borg.
Snúningsdyrnar eru alltaf á sínum stað
og ofan við þær skyggni með merki
Hótel Borgar sem sýnir stafina HB ofan
á bjargi, umkringda öldum og geislum
sólar.Horft inn eftir herbergisgangi. Mynstur eftir listamanninn Matisse í gólfteppinu.
Salernin eru falleg og vel búin.
Í Sögu Reykjavíkur stendur: „Gyllti salurinn með þýskum freskómyndum á veggjum
og í lofti tóku öllu öðru fram sem Reykvíkingar höfðu séð enda voru þeir hrifnir.“
Enn er loft gyllta salarins upprunalegt eins og sést á þessari mynd.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA