Fréttablaðið - 31.01.2005, Qupperneq 57
HALLUR MAGNÚSSON
HÚSIN Í BÆNUM
Landakotskirkja var vígð árið 1929 af Vil-
hjálmi van Rossum, sérlegum sendimanni
Píusar páfa XI. Guðjón Samúelsson teikn-
aði kirkjuna sem þykir brautryðjendaverk
í byggingu gotneskra mannvirkja þar sem
hún var byggð úr steinsteypu. Turn kirkj-
unnar var aldrei fullgerður.
Píus páfi gaf til kirkjunnar nokkra fágæta
muni og er tvo þeirra að sjá í kirkjunni.
Yfir háaltarinu er stytta af Kristi, þar sem
hann stendur á jarðarkringlunni. Ekki eru
fleiri eintök til í heiminum því listamað-
urinn, Gampanya frá Barcelona, bannaði
að afsteypa yrði gerð af henni. Þá er
fremst í kirkjunni útskorin tafla sem Píus
páfi gaf kirkjunni árið 1936. Fleiri fögur
listaverk eru í kirkjunni.
Landakotskirkja er dómkirkja kaþólskra
manna á Íslandi.
2004 metár hjá
Íbúðalánasjóði
Íbúðalánasjóður lánaði lands-
mönnum tæpa 70 milljarða til ný-
bygginga, fasteignakaupa og
leiguíbúða árið 2004 og er það enn
eitt metárið í sögu sjóðsins.
Um síðastliðin áramót birti
sjóðurinn áætlun sína fyrir árið
2005. Gert er ráð fyrir því að ný
útlán sjóðsins verði tæpir 64
milljarðar króna á þessu ári.
Stærsti hluti þess verður fjár-
magnaður með sölu íbúðabréfa en
gert er ráð fyrir því að Íbúðalána-
sjóður gefi út íbúðabréf fyrir
tæpa 55 milljarða á árinu. Um-
framgreiðslur Íbúðalánasjóðs er
tengjast uppgreiðslum viðskipta-
vina sjóðsins eru áætlaðar um 65
milljarðar króna.
Nýliðið ár er umsvifamesta ár
Íbúðalánasjóðs frá upphafi vega.
Þær kerfisbreytingar á skulda-
bréfaútgáfu sjóðsins sem áttu sér
stað í júní síðastliðnum leiddu til
aukins svigrúms til raunvaxta-
lækkunar. Kerfisbreytingarnar
hafa átt hvað stærstan þátt i raun-
vaxtalækkun undanfarinna mán-
uða, sem hafa skilað mikilli lækk-
un á árlegri vaxtabyrði heimil-
anna.
Raunvextir útlána sjóðsins
hafa lækkað úr 5,10% fyrir kerf-
isbreytinguna niður í 4,15% í lok
2004 eða um tæpt eitt prósentu-
stig.
Með skipulagsbreytingunni
hefur Íbúðalánasjóður einnig
lækkað þóknanir um hundruð
milljóna króna sem fjármálakerf-
ið tók áður til sín af viðskiptavin-
um Íbúðalánasjóðs við verðbréfa-
viðskipti með húsbréf.
Nýtt skipulag við greiðslumat
og lánsumsóknir tók gildi í byrjun
desember. Viðskiptavinir sjóðsins
geta nú sjálfir gert sitt eigið
greiðslumat, í gegnum www.ibu-
dalan.is, þeim að kostnaðarlausu í
stað þess að kaupa slíka þjónustu
af bönkunum eins og áður tíðkað-
ist.
Þessi breyting hefur einfaldað
mjög lánsumsóknaferli sjóðins og
mun í framtíðinni spara
viðskiptavinum tugi milljóna
króna í beinan og óbeinan kostn-
að.
Í áformum Íbúðalánasjóðs um
hófsama hækkun hámarkslána og
90% veðsetningarhlutfall var til-
lit tekið til fasteignamarkaðarins
og stöðu íslensks efnahagslífs.
Innkoma banka og sparisjóða á
fasteignalánamarkað hefur hins
vegar leitt til hækkunar á fast-
eignaverði og aukið þrýsting á
verðbólgu. Sveitarfélögin, sér-
staklega á höfuðborgarsvæðinu,
gætu þó með samstilltu átaki
mildað þessi áhrif með aukinni
lóðaúthlutun.
Höfundur er sviðsstjóri þróunar- og
almannatengslasviðs Íbúðalánasjóðs.
Lofthreinsitæki
Nýtt!
ECC ehf
Skúlagötu 17
101 Reykjavík
Sími 511 1001
ecc@ecc.is
www.ecc.is
Upplýsingar í síma 511 1001
Opið frá 10.00 til 18.00
hreinsar loftið, eyðir
lykt og drepur sýkla
Kröftugt jónastreymi
Gefur frá sér mínus hlaðnar jónir sem hjálpa til
við að eyða m.a. ryki, mengun, veirum og frjódufti.
Heldur herbergisloftinu hreinu og bætir heilsuna.
Bakteríudrepandi útfjólublár lampi
Útfjólubláa ljósið drepur ýmsa sýkla og
bakteríur og eyðir lykt (t.d. reykinga- og matarlykt)
Kröftug ryksöfnun
Ryðfrí stálblöð safna á sig ryki og öðrum óhrein-
indum í stað hefðbundins fílters.
Þrjú skref
HI, MED og LOW stillingar og Turbo stilling
fyrir mismunandi aðstæður. (Blá ljós sýna stillingu).
Gaumljós
Ljós sýna hvort þrífa þarf stál blöðin
eða hvort tækið þarfnast annars viðhalds.
Mikill orkusparnaður
Vegna orkusparandi hönnunar notar
tækið aðeins 28W/klst.
Landakotskirkja
SELDAR EIGNIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*Þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins.
TÍMABIL
0
50
100
150
200
250
300
17/12 - 23/12
255
24/12 - 30/12
184
31/12 - 6/1
123
7/1 -13/1
153
14/1-20/1
152
21/1-27/1
173
FJÖLDI