Fréttablaðið - 31.01.2005, Síða 59
„Við minnumst Ottós B. Arnar og
frumkvöðlastarfs hans á sviði út-
vörpunar með hlýhug á þessum
tímamótum,“ segir Markús Örn
Antonsson útvarpsstjóri, en 31.
janúar árið 1926 hófst útvarps-
rekstur hér á landi í fyrsta sinn
með tilraunaútsendingum H.f. út-
varps. Formaður félagsins var
Lárus Jóhannesson lögfræðingur
en stjórnandi útvarpsins og aðal-
hvatamaður var Ottó B. Arnar
símfræðingur. Fyrsta útsending-
in var frá messu í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði, en tveim dögum síð-
ar urðu þeir Árni Jónsson frá
Múla, faðir Jóns Múla og Jónasar,
og Símon Þórðarson frá Hóli, fað-
ir Guðrúnar Á. Símonar, fyrstir
til að syngja í íslenskt útvarp
þegar þeir kyrjuðu nokkra
glúnta, en það eru tvísöngvar
fyrir barítón og bassa.
„Ef litið er til baka er nú erfitt
að átta sig á hvað Ottó Arnar sá
langt inn í framtíðina,“ sagði
Markús Örn í spjalli um þróun
ljósvakamiðlanna frá þeim tíma.
„Hann hafði, ef ég man rétt, ver-
ið úti í Bandaríkjunum og kynnst
þeirri þróun sem þar átti sér stað
í að senda út tilbúið dagskrárefni,
í stað þess að þetta væri fyrst og
fremst boðleið fyrir símskeyti
eða annan boðflutning.“
Markús rifjaði upp að lengi vel
hefðu Íslendingar verið nokkrum
skrefum á eftir í fjarskiptaþróun-
inni, svo sem í að taka upp sjón-
varpssendingar. „Hins vegar
erum við miklu nær þessu öllu
núna og skemmtilegt að sjá
hvernig við fylgjum miklu betur
og erum jafnvel á undan megin-
straumum í tækniþróuninni,
svona eins og í internetnotkun,“
segir hann og bendir á að nú séu
miklar breytingar fyrir dyrum í
ljósvakamiðlun. „Það er verið að
taka upp stafrænar útsendingar,
framboð á rásum eykst og núna
erum við á Ríkisútvarpinu, í sam-
starfi við ríkisútvarps- og sjón-
varpsstöðvar á Norðurlöndum, að
velta fyrir okkur hver hlutur
þessara almannaþjónustustöðva
verður með tilliti til tækniþróun-
ar. Við viljum og ætlum okkur að
sækja um að vera með í öllum
þessum miðlum sem þróunin ger-
ir mögulega.“ Þannig segir Mark-
ús að Ríkisútvarpið vilji vera
með efnisveitur fyrir nýja kyn-
slóð farsíma fyrir hluta sjón-
varpsdagskrár eða aðra mynd-
miðlun. „Svona mætti lengi telja.
Við höfum haft að leiðarljósi að
vera alls staðar,“ segir hann og
vísar þar bæði til internets og
farsíma.
Þá segir Markús að verið sé að
skoða möguleika sem felast í
gagnvirku sjónvarpi og telur ekki
útilokað að með slíkri viðbótar-
þjónustu geti orðið til tekjustofn
fyrir Útvarpið við hlið auglýs-
ingatekna og afnotagjalds. „Þetta
væri möguleiki sem maður gæti
séð í myndinni varðandi fjár-
mögnun á annarri starfsemi hjá
Ríkisútvarpinu, ef við teljum
ákveðin takmörk fyrir því hvað
langt megi ganga í innheimtu af-
notagjalda,“ sagði Markús og
taldi einnig fyrirséð að Ríkis-
útvarpið myndi áfram vera á aug-
lýsingamarkaði þar sem opinber
framlög yrðu aldrei hækkuð sem
næmi þeim tekjustofni. „En við
gætum hins vegar bætt við með
því að selja í gagnvirku sjón-
varpi.“ ■
18 31. janúar 2005 MÁNUDAGUR
MAHALIA JACKSON (1911-1972)
var borin til grafar þennan dag.
Útvarpið í landvinninga
TÍMAMÓT: FYRSTU TILRAUNASENDINGAR ÚTVARPS
„Það er auðvelt að vera sjálfstæður ef maður er
fjáður. En að halda sjálfstæðinu þegar maður er
allslaus, þannig prófar Drottinn mann.“
- Aretha Franklin söng í útför Mahaliu Jackson sem af mörgum
er talin einn fremsti gospelsöngvari sem uppi hefur verið. Hún er
óumdeilanlega einn þekktasti söngvari þeirrar tegundar tónlistar
og náði frama í sjónvarpi, útvarpi og í tónleikahaldi.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Ragnar Karlsson lést þriðjudaginn 18.
janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Jakobína Soffía Grímsdóttir, Háteigs-
vegi 9, Reykjavík, lést föstudaginn 21.
janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Anna Garðarsdóttir, Vorsabæ 3, Reykja-
vík, lést laugardaginn 22. janúar.
Sigurður Baldursson, hæstaréttarlög-
maður, lést föstudaginn 28. janúar.
Steinunn Guðmundsdóttir, fv. prent-
smiðjustjóri, lést á Sólvangi, Hafnarfirði,
föstudaginn 28. janúar.
JARÐARFARIR
11.00 Sigurjón Oddsson Sigurðsson,
verkstjóri hjá Vegagerðinni, Holta-
teigi 3, Akureyri, verður jarðsung-
inn frá Akureyrarkirkju.
13.00 Elma Nína Þórðardóttir, Espi-
gerði 6, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
13.00 Ólöf Anna Ólafsdóttir, frá Ísafirði,
Sæviðarsundi 15, Reykjavík, verð-
ur jarðsungin frá Langholtskirkju.
14.00 Gylfi Árnason, Snægili 30, Akur-
eyri, verður jarðsunginn frá Gler-
árkirkju.
14.00 Heiðar Rafn Baldvinsson verður
jarðsunginn frá Grenivíkurkirkju.
14.00 Kristján Ísfeld, Jaðri, Hrútafirði,
verður jarðsunginn frá Staðar-
kirkju í Hrútafirði.
15.00 Guðrún Lilja Ísberg, hjúkrunar-
heimilinu Skógarbæ, áður Efsta-
leiti 10, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju.
MARKÚS ÖRN ANTONSSON Útvarpsstjórinn hlustar eftir ómum fortíðar í anddyri Út-
varpshússins í Efstaleiti í Reykjavík, en þar er safn gamalla viðtækja.
Þennan dag árið 1971 var Apollo
14 skotið á loft frá Canaveral
höfða í Flórída í Bandaríkjunum,
en um borð voru geimfararnir
Alan B. Shepard Jr., Edgar D.
Mitchell og Stuart A. Roosa. Ferð-
inni var heitið til tunglsins.
Þann fimmta febrúar, eftir að
hafa lent í nokkrum erfiðleikum
við tengingar hluta tunglfarsins
og íverustöðvar um borð, héldu
geimfararnir Shepard og Mitchell
út á yfirborð tunglsins, en þetta var þriðja lendingin
á tunglinu á vegum Bandaríkjamanna. Þegar
Shepard steig á tunglið varð hann þar með fimmti
geimfarinn til að ganga þar um. Hann var hins veg-
ar fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að halda út í geim
árið 1961 um borð í Freedom 7 flauginni, nokkru á
eftir rússneska geimfaranum Júrí
Gagarín sem var fyrstur.
Shepard og Mitchell héldu til á yfir-
borði tunglsins í næstum 34
klukkustundir og framkvæmdu ein-
faldar vísindatilraunir. Þar á meðal
var tilraun sem fólst í að slá golfkúl-
um út í geiminn með golfkylfu
Shepards. Þá söfnuðu þeir jarðvegs-
sýnum, alls 43,5 kílóum af grjóti.
Níunda febrúar lauk svo geimferð-
inni þegar farið sneri heilu og
höldnu aftur til jarðar.
Með ferðinni var aftur tekinn upp þráðurinn í
tunglferðum á vegum NASA eftir að við stórslysi lá í
för Apollo 13 farsins. Rannsóknir sem átti að fram-
kvæma í þeirri för voru færðar nánast án breytinga
yfir á för Apollo 14.
31. JANÚAR 1971 Áhöfn Apollo
14, frá vinstri: Stuart Roosa, Alan
B. Shepard, Jr. og Edgar Mitchell.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1709 Fyrirmynd Daníels Defoe
að Robinson Krúsó, breska
sjómanninum Alexander
Selkirk, er bjargað eftir
fjögurra ára dvöl á eyði-
eyju.
1950 Harry Truman Bandaríkja-
forseti greinir frá því að
hann hafi farið fram á þró-
un vetnissprengjunnar.
1951 Tuttugu manns farast með
flugvélinni Glitfaxa út af
Vatnsleysuströnd á leið frá
Vestmannaeyjum til
Reykjavíkur.
1977 Mjólkursamsalan hættir
rekstri allra mjólkurbúða
utan einnar.
1980 Ferðamönnum leyft að
kaupa tollfrjálsan bjór við
komuna til landsins.
1982 Stofnfundur Samtaka um
kvennaframboð í Reykjavík.
1992 Þjóðviljinn kemur út í síð-
asta sinn.
Apollo 14 skotið til tunglsins
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
Ingólfs Arnars Þorkelssonar
fyrrverandi skólameistara.
Sérstaklega þökkum við starfsfólki Hjúkrunarheimilisins
Sóltúns fyrir frábæra umönnun og ómetanlegan stuðning.
Rannveig Jónsdóttir, Jón Arnar Ingólfsson, Þorkell Már Ingólfsson,
Þóra Sigríður Ingólfsdóttir, Karl Emil Gunnarsson og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Ingibjörg Þorleifsdóttir
Álfaborgum 15, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 24. janúar.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 1. febrúar
kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Umhyggju, samtök langveikra barna,
kt. 690186-1199, banki 0101 15 371646.
Fyrir hönd aðstandenda, Sigþór Guðjónsson.
AFMÆLI
Valgarð Briem lögmaður er áttræður í
dag.
Elín Pálmadóttir blaða-
maður er 78 ára í dag.
Harpa Njálsdóttir fé-
lagsfræðingur er 59 ára
í dag.
Ágúst Ingi Jónsson blaðamaður er 54
ára í dag.
Jakob F. Ásgeirsson rit-
höfundur er 44 ára í
dag.
Marín Manda Magnúsdóttir, fatahönn-
uður og módel, er 26 ára í dag.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1797 Franz Schubert,
tónskáld.
1935 Oe Kenzaburo, rithöfundur og
nóbelsverðlaunahafi.
1937 Philip Glass, mínimalískt nú-
tímatónskáld.
1937 Suzanne Ples-
hette, leikkona.
1956 John Lydon, öðru nafni Johnny
Rotten, úr Sex Pistols.
1961 Lloyd Cole, tónlistarmaður og Ís-
landsvinur úr Lloyd Cole & the
Commotions.
1971 Minnie Driver, leikkona.
Trésmiðja GKS að Funahöfða 19 í
Reykjavík hlaut fyrir helgina viður-
kenningu Trésmíðafélags Reykja-
víkur fyrir góðan aðbúnað á vinnu-
stað. Í tilkynningu Trésmíðafélags-
ins kemur fram að síðustu vikur
hafi aðbúnaðarnefnd félagsins ver-
ið að störfum og skoðað ýmis fyrir-
tæki. Að þessu sinni var sjónum að-
allega beint að útivinnustöðum. „Öll
aðstaða s.s. kaffistofa, hreinlætisað-
staða og fatageymsla er til mikillar
fyrirmyndar. Öll umgengni á vinnu-
svæðinu sjálfu góð, notkun persónu-
hlífa og öryggisatriða til fyrirmynd-
ar,“ sagði nefnd Trésmíðafélagsins
um Trésmiðju GKS.
Í tilkynningu kemur fram að að-
búnaðar- og öryggismál hafi um
langa hríð verið eitt af baráttumál-
um Trésmíðafélagsins. „Með sam-
stilltu átaki félagsins, Vinnueftirlits
ríkisins og annarra aðila hefur
ástand aðbúnaðar, umgengni á
vinnustað og öryggisþátta batnað á
undanförnum árum til muna,“ segir
þar, en eitt af því sem gert hefur
verið til að vekja athygli á aðbúnað-
ar- og öryggismálum bygginga-
manna er að veita fyrirtæki sem
skarar framúr í þeim efnum viður-
kenningu fyrir skilning sinn og
framtakssemi. Fyrsta viðurkenn-
ingin var veitt árið 1985 og hefur
verið árlegur viðburður frá þeim
tíma, að undanskildu árinu 1997
þegar ekki fannst nokkurt fyrirtæki
sem aðbúnaðarnefnd félagsins taldi
viðurkenningarvert. ■
VERÐLAUNIN AFHENT Guðmundur Ingi Guðmundsson, formaður aðbúnaðarnefndar,
afhendir Arnari Aðalgeirssyni, fulltrúa Trésmiðju GKS, viðurkenninguna.
Trésmiðja GKS verðlaunuð
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L