Fréttablaðið - 31.01.2005, Síða 63
22 31. janúar 2005 MÁNUDAGUR
LEIKIR GÆRDAGSINS
SUND. Landsbankamót Ægis –
Reykjavík International var háð í
nýju og glæsilegu húsnæði í
Laugardal um helgina og heppn-
aðist mjög vel.
Aðstandendur keppninnar eru
allir á einu máli um að mótið
marki tímamót í íslenskri sund-
sögu, aldrei áður hafi verið keppt
hérlendis við eins góðar aðstæður
og um helgina. Laugin fékk góða
dóma frá keppendum sem sögðu
laugina mjög hraða og er það talið
öruggt merki um að vel gangi í
framtíðinni að lokka hingað
sterka sundmenn til að keppa á
mótum.
Frægasti keppandinn á mótinu
hefur sennilega verið sænska
sunddrottningin Theresa Als-
hammar, en hún vann öruggan
sigur í 50 metra flugsundi.
Örn Arnarson er eins og kunn-
ugt er farinn að synda á fullu á ný
eftir mikil meiðsli og vann hann
nokkuð öruggan sigur í 50 metra
skriðsundi og 100 metra
flugsundi.
Keppendurnir komu víðsvegar
að frá Evrópu og voru 270 erlend-
ir sundmenn á mótinu frá Norður-
löndunum og einnig var hér hópur
frá Lúxemborg. Erlendu keppend-
urnir á mótinu voru allir
hæstánægðir með mótið og nýju
laugina og segjast vel geta hugsað
sér að koma aftur að ári á mótið
sem hefur verið haldið síðan 1989.
Guðmundur Harðarson sund-
sérfræðingur segir muninn á því
að halda mótið í nýju 50 metra
lauginni gríðarlegan, en því fylgi
líka aukin umsvif.
„Í hvern mótshluta í þessari
laug þarf um 26 dómara, 8 tíma-
verði og annað starfsfólk svo að
líklega starfa að þessu móti um
55-60 manns. Aðstæðurnar til
keppni hér eru slík gerbylting að
maður á bara erfitt með að lýsa
því. Það urðu örlitlar tafir í byrj-
un en það fall varð fararheill,
þetta gekk eins og í sögu eftir
það,“ sagði Guðmundur.
baldur@frettabladid.is
ÖRN ARNARSON BYRJAÐUR Á NÝ Örn Arnarson er að komast á skrið á nýjan leik og
vann öruggan sigur í 50 metra skriðsundi og 100 metra flugsundi á mótinu um helgina.
Fréttablaðið/Pjetur
Algjör bylting í
íslenskri sundsögu
Alþjóðlegt sundmót Ægis fór fram í nýju 50 metra innilauginni í Laugardal og var
það samdóma álit þeirra að aðstæður væru hinar glæsilegustu.
Enski bikarinn
OLDHAM–BOLTON 0–1
0–1 Ricardo Vaz Te (9.).
CHELSEA–BIRMINGHAM 2–0
1–0 Robert Huth (6.), 2–0 John Terry (80.).
Tólf lið, Southampton, Arsenal, Blackburn,
Burnley, Charlton, Everton, Newcastle,
Nottingham Forest, Leicester, Manchester
United, Chelsea og Bolton, hafa tryggt sér sæti í
fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar. Aðeins
þrjú af þessum liðum spila í ensku 1. deildinni
en níu koma úr úrvalsdeildinni.
Aukaleikir í enska bikarnum
HARTLEPOOL–BRENTFORD
FULHAM–DERBY
TOTTENHAM–WEST BROM.
SHEFF. UTD–WEST HAM
Adriano Galliani ,varaforseti ACMilan, hefur lýst því yfir að treyja
númer 3 sem Paolo Maldini hefur
leikið í hjá félaginu
síðustu 20 ár verði
ekki notuð aftur
þegar hann leggur
skóna á hilluna.
Maldini er í guða-
tölu í Mílano og
hefur unnið alla
titla með félaginu
sem hægt er að vinna. Áður hefur
treyja númer 6 verið frátekin til
heiðurs varnarjaxlinum Franco
Baresi.
George Karl hefur verið ráðinnþjálfari Denver Nuggets í NBA
deildarinni í körfu-
bolta. Karl hefur
stýrt liðinu til sigurs
í tveimur fyrstu
leikjum sínum, en
gengi þess hefur
valdið miklum von-
brigðum það sem
af er tímabili.
George Karl hafði verið að vinna
sem þulur á sjónvarpsstöð um skeið
eftir að taka sér frí frá þjálfun, en
hann þjálfaði m.a. lið Seattle sem
lék til úrslita í NBA gegn Chicago
árið 1996 og er einn af sigursælustu
þjálfurum í sögu deildarinnar.
Knattspyrnumað-urinn Þórarinn
Kristjánsson lék
sinn fyrsta leik með
liði Aberdeen í
skosku úrvalsdeild-
inni um helgina í 1-
0 tapi fyrir Hearts.
Þórarni var skipt út
af eftir 59 mínútna leik. Góður leik-
ur Þórarins með varaliði félagsins í
miðri viku varð til þess að kappinn
fékk að spreyta sig með aðalliðinu.
Brynjar Björn Gunnarsson, leik-maður Watford, verður frá
keppni í um þrjár
vikur eftir að hann
meiddist á hné í
viðureign Watford
og Liverpool í deild-
arbikarnum á
þriðjudaginn síð-
asta. Liðið vinnur
nú að því að finna
lánsmann til að leysa Brynjar af
hólmi, en hann hefur verið að leika
vel undanfarið.
Meiðsladraugurinn á Anfield hef-ur verið iðinn við kolann á leik-
tíðinni og nú berast enn ein sorgar-
tíðindin af leik-
mönnum liðsins.
Framherjar liðsins
hafa hlotið hvað
versta útreið og nú
er það ungstirnið
Neil Mellor sem er
meiddur á hné og
óttast forráðamenn
liðsins að pilturinn
þurfi í uppskurð. Yrði það enn eitt
áfallið fyrir félagið sem hefur verið í
vandræðum með framherja sína í
allan vetur.
A-landslið Íslands í snóker hefurverið valið fyrir Evrópumeistara-
mótið sem fer fram á Möltu í mars.
Liðið skipa Jóhann-
es B. Jóhannesson,
Brynjar Valdimars-
son og Gunnar
Hreiðarsson, en sá
síðastnefndi hefur
oftast leikið með B-
landsliðinu en hef-
ur nú tryggt sér
sæti í A-liðinu. Íslenska liðið hefur
einu sinni unnið Evrópumeistara-
mótið, en sá árangur náðist í febrú-
ar árið 2002 þegar mótið fór fram
hér á landi. Þá var Kristján Helga-
son í liðinu ásamt þeim Jóhannesi
og Brynjari.
Knattspyrnumaðurinn GiovanniElber hefur fengið sig lausan
undan samningi frá franska liðinu
Lyon, eftir að sló í brýnu milli hans
og forráðamanna
liðsins. Elber hefur
verið lengi frá
vegna meiðsla, en
hann ökklabrotnaði
fyrir nokkru síðan
og komu upp deilur
milli hans og liðsins
þegar hann huns-
aði reglur og fór sínar eigin leiðir
varðandi endurhæfingu sína. Samn-
ingi leikmannsins hefur verið rift og
er hann nú laus frá félaginu og ljóst
að mörg lið hugsa sér gott til glóð-
arinnar að hreppa þennan 32 ára
framherja.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Fjórða umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta:
Hugsa ekki um fernuna
FÓTBOLTI Chelsea og Bolton
tryggðu sér í gær sæti í fimmtu
umferð ensku bikarkeppninnar
með sigrum í leikjum sínum.
Chelsea bar sigurorð af
Birmingham, 2-0, í leik þar sem
varnarjaxlarnir John Terry og
Robert Huth skoruðu mörk topp-
liðsins.
John Terry, fyrirliði Chelsea,
sagði eftir leikinn að það væri
gaman að liðið væri komið áfram
í bikarnum en það væri enginn að
hugsa um þá staðreynd að Chelsea
er eina liðið í Englandi sem á enn
fræðilegan möguleika á því að
vinna ferfalt í vetur.
Jose Mourinho, knattspyrnu-
stjóri liðsins, hrósaði sínum
mönnum fyrir frábæran fyrri
hálfleik.
„Við spiluðum mjög vel í fyrri
hálfleik og hefðum átt að vera
með meiri forystu, við spiluðum
frábærlega. Þeir voru betri í síð-
ari hálfleik og það var okkur að
kenna,“ sagði Mourinho.
Bolton vann nauman sigur á
Oldham þar sem hinn átján ára
gamli Portúgali, Ricardo Vaz Te,
skoraði sigurmarkið strax á 9.
mínútu leiksins. Leikmenn Old-
ham voru óheppnir að ná ekki að
jafna metin undir lokin þegar þeir
gerðu harða hríð að marki Bolton.
Sam Allardyce, knattspyrnu-
stjóri Bolton, var ekki sáttur við
spilamennsku leikmanna Oldham
og prísaði sig sælan að enginn af
hans mönnum hefði meiðst. ■
JOHN TERRY Fagnar hér marki sínu gegn
Birmingham ásamt Frank Lampard og Di-
dier Drogba.