Fréttablaðið - 11.02.2005, Blaðsíða 36
Vetrarríki í Ölfusinu/Ljósmynd: Stefán
SJÓNARHORN
Vorið í Prag
Sigurð Þór Salvarsson upplýsingafulltrúa Alþjóðahússins dreymir um vorið í
Prag. „Já, ef ég mætti ráða myndi ég vilja fara í óvænta helgarferð til útlanda
með konunni minni til einhverrar skemmtilegrar borgar eins og London, Kaup-
mannahafnar eða Prag og njóta lífsins í mat, drykk og menningu. Ég hef verið
svo heppinn að koma á alla þessa staði en myndi setja Prag efst á listann Ég
held að það væri langskemmtilegast að fara að vori til. Gamli bærinn í Prag er
alveg einstakur, einkum þó brýrnar yfir Moldu og fullt af skemmtilegum veit-
ingastöðum og söfnum. Það er hægt að fara mörgum sinnum til Prag og alltaf
sjá eitthvað nýtt.“ Sigurður minnist matar og drykkjar með sérstakri hlýju. „Þeir
búa til mikið af skemmtilegum kartöfluréttum sem ég minnist þess að hafa
smakkað þarna og við myndum eflaust gæða okkur á. Svo eru Tékkar auðvitað
sérfræðingar í bjórgerð og framleiða örugglega besta bjór í heimi. Ég efast ekki
um að við myndum fá okkur nokkrar kollur. Svo myndum við bara ganga um
og njóta þess að vera til.“
Sigurður Þór Salvarsson
DRAUMAHELGIN
11. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR 12
LESTUR/ÁHORF: NOKKUR DÆMI ÚR NÝRRI GALLUP KÖNNUN *
*Upplýsingarnar í þessari auglýsingu eru fengnar úr nýafstaðinni fjölmiðlakönnun Gallup í október sl.
HEIMILI Í FBL
FIMMTUDAGUR
FJ
Ö
LM
IÐ
LA
R
0
20
40
60
52.1%
FORSÍÐA MBL
SUNNUDAGUR
45.8%
TÍMARIT MBL
MIÐVIKUDAGUR
32.2%
GÍSLI MARTEINN
Á RÚV
MEÐALÁHORF
VIKUNNAR
37%
INNLIT ÚTLIT Á
SKJÁ EINUM
UPPSAFNAÐ
31%
IDOL
STJÖRNULEIT
UPPSAFNAÐ
44,8%
Lesendur „Allts“ eru fólk með áhuga á efni
hverrar opnu og eru auglýsingarnar eðlilegur
hluti lesefnisins og ein af ástæðum þess að
þeir staldra við.
Það er með öðrum orðum vel skilgreindur og
áhugasamur hópur sem skoðar t.d. þessa
auglýsingu.
Á opnunni „heimili og fleira“ fimmtudaginn
28. október voru 12 auglýsingar. 56% kvenna á
aldrinum 18-49 ára, eða 34.555 konur, skoðuðu
opnuna og gátu veitt hverri auglýsingu athygli
eftir áhuga og eins lengi og þær vildu.
Til samanburðar voru 53 auglýsingar í Innlit -
Útlit á Skjá einum þriðjudaginn 26. október. Þær
fengu áhorf 37% sama hóps, eða 23.025 konur,
og höfðu þær að meðaltali 14 sekúndur til að
horfa á hverja auglýsingu.
Grunnhugmyndin á bak við „Allt“ er að flokka
auglýsingar og staðsetja í lesefni sem vekur
áhuga þeirra sem auglýsandinn vill ná til. „Allt“
er löngu tímabær og áhugaverður valkostur á
íslenskum auglýsingamarkaði.
Hafið samband við auglýsingadeild „Allts“.
Síminn er 550-5000.
SAMANBURÐUR VIÐ AÐRA MIÐLA
[ 25-54 ára; Heimilistekjur yfir 400 þús. ]
- markvissar auglýsingar -