Tíminn - 05.01.1975, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 5. janúar 1975,
Óhapp, sem borgaði sig
— Auðvitað er ég ánægð með
úrskuð dómstólanna segir Ann
Margret, ein vinsælasta nætur-
klúbbasöngkona Banda-
rlkjanna. — Mér var dæmd ein
og hálf milljón dollara fyrir
slysið, þegar ég féll niður I
hljómsveitargryfjuna I nætur-
klúbb fyrir einum tveimur ár-
um. Annars er þetta ef til vill
ekki of mikið fyrir slys, sem
hefði getað kostað Ann lífið og
alla vega getað orðið til þess að
hún gæti aldrei komið fram
aftur opinberlega. En sem betur
fór varð það ekki endirinn. Ann
Margret er sögð vera yndisleg
kona, sakleysisleg og bliðlynd
að sjá, en undir niðri er hún vist
ekkert lamb að leika sér við,
enda hefur hún gengið i harðan
skóla hjá manni slnum og um-
boðsmanni, Roger Smith. Ann
er ein vinsælasta næturklúbba-
stjarna Bandarikjann en eitt
aöalvandamál hennar, er,
hversu a f brýðissam u r
eiginmaður hennar er. Hún má
sem sé aldrei yrða á karlmenn,
svo hann verði ekki vitlaus af
afbrýðissemi, og gerir þetta
henni svolitið erfitt fyrir i
starfinu. Hér sjáið þið myndir af
þeim hjónunum, og tvær aðrar
af Ann Margret einni.
DENNI
DÆMALAUSI
„Faðir minn var harðneskjulegur
i útliti', Denni.” Þú hefðir átt að
sjá hvernig hann brosti i
brúðkaupinu.”