Tíminn - 05.01.1975, Blaðsíða 18

Tíminn - 05.01.1975, Blaðsíða 18
18 TÍMINN Sunnudagur 5. janúar 1975. um farnir að treysta meira á járnskipin, okkur virðist þau skila meiri arði", sagði hann. Katrín var farin að verða hálf-óróleg. Hún gaf manni sínum margendurtekin ráð og fyrirmæli um það, hvernig hann ætti að haga sér, þegar hann yrði kallaður inntil læknisins. ,,Þú verðuraðvera settur ítali, Jóhann, — og hræktu nú ekki á gólfið hjá lækninum. Og mundu eftir að segja honum, að þú getir ekki á þér heilum tekið og lýsa því nákvæmlega, hvernig þig verkjar í brjóstið, svo að hann geti komizt að raun um, hvað að þér er", sagði hún. Biðin varð ekki eins löng og þau höfðu óttazt, því að læknirinn iét þá, sem voru komnir langt að, sitja í fyrir- rúmi. Jóhann ræskti sig vandræðalega, þegar röðin kom að honum, og slangraði fullur eftirvæntingar til hvít- klædda mannsins, sem hélt hurðinni opinni. Katrínu fannst eilífðartími liðinn, þegar dyrnar voru opnaðar að nýjuog læknirinn birtist aftur í gættinni og pataði í áttina til hennar. ,,Eruð þér konan hans?" spurði hann. „Já". Hann hliðraði sér til og sagði henni að koma inn. Jó- hann var að tína á sig spjarirnar bak við tjald. Læknirinn settist við heljarmikið skrifborð og spurði Katrínu i þaula um hætti manns hennar, matarlyst og annað fleira. Hún svaraði öllum spurningum með eins-at- kvæðis-orðum. Þetta var ekki sami viðfelldni maðurinn og komið hafði, þegar Sandra var veik, þetta var hroka- fullur náungi með þóttasvip, sem gaf fátækri þurra- búðarkonunni fyllilega til kynna, hve fáfróð hún væri. En hún reyndi að leyna minnimáttarkennd sinni með þvi að vera sem fáorðust. Það virtist ekkert sérstakt vera að Jóhanni, nema hann var óeðlilega magur og óstyrkur. Hann varð þess vegna að vera á verði gegn sjúkdómum, sem gátu auðveldlega náð tökum á honum og hann varð að njóta nægrar hvíldar, hafa nægan og kjarngóðan mat og vera í góðu skapi. „En þessi hósti?" sagði Katrín. „Er það áreiðanlegt, að lungun séu ekki skemmd?" Læknirinn baðaði út höndunum, hann var sýnilega orð- inn óþolinmóður. „Nei, það er ekkert að lungunum í hon- um. Það er barnaskapur að halda, að menn séu berkla- veikir, þó að þeir hafi hóstakjöltur". Síðan stóð hann upp og gaf til kynna, að viðtalinu væri lokið. Katrín tvísteig á gólfinu litla stund, hún var ekki ánægð með þessa niðurstöðu. „Þarf hann þá engin meðul?" spurði hún hikandi. „Ja, ef þið haf ið peninga til þess háttar, þá get ég auð- vitað skrifað lyfseðil", sagði læknirinn önuglega. Katrín tók við blaði, sem hann hafði párað á óskikjan- leg tákn. Jóhann stóð við dyrnar og beið, meðan hún borgaði lækninum. Siðan kvöddu þau og héldu áleiðis að lyfjabúðinni til þess að kaupa meðalið. „AAér gazt illa að þessum lækni", tautaði Katrín. ,,Ég veit ekki, hvað gagnsamt þetta meðal er sem hann vildi helzt ekki láta okkur f á það — Rannsakaði hann þig ná- kvæmlega, Jóhann?". ,, Ég veit það ekki. Hann hlustaði mig að minnsta kosti og barði á brjóstið á mér og gáði niður f hálsinn á mér og allt það. En hann var síbölvandi eins og mannýgur tarf- ur". „Það er nú það minnsta, að fólki, sem komið er alla þessa leið og getur borgað fyrir sig, sé tekið eins og manneskjum". „Þeim þykir ekki miklu skipta hvorum megin hryggj- ar fólk af okkar tagi liggur". „Það er einmitt fólk af okkar tagi, sem þeir ættu að láta sér annt um, þessir herrar. Hverjir eru það, sem haf a f itnaðog auðgazt á striti þínu og móður þinnar, aðr- ir en þeir?" Þau voru komin í lyfjabúðina og framvfsuðu lyf- seðlinum. Lyfsalinn var smár vexti, kumpánlegur og léttur í tali við útskerjabúana og spurði um tíðarfar, gæftir og afla. Katrín áræddi að ráðfæra sig við hann um lyfseðilinn. „Er þetta gott meðal?" spurði hún. „Það hefði ég haldið, — bætir matarlyst og eykur þrótt, sérstaklega ætlað þeim,sem eru óstyrkir", sagði lyfsalinn. Katrin hægði mjög við þetta. En henni varð hverft við, þegar reikningurinn kom, því að þessi lyf jakaup gleyptu obbann af ferðapeningum þeirra. Að þessu vafstri loknu gengu þau stundarkorn um bæinn. Jóhann stakk upp á því, að þau skyldu koma inn í eina búðina og skoða varn- inginn, og honum til undrunar féllst Katrín á þessa uppá- stungu. Þetta var mjög algeng búð, en þó mun stærri og glæsilegri en búðarholan í Vesturbæ. „Ég ætla að kaupa lakkrísstöng hand Eiríki", hvíslaði Katrín að Jóhanni. T.Og hvernig 'W |En vélin er i geymd á isafni i 25 öldinni.r u Eigum við að finna felustað og fara inn i ^ 25 öldina? Jk komust við þangl að?" M ■ Timavélin \ Vicki, hvernig ann ars? t>ú ert orðinn ruglaður En ef okkur tekst Þessi var góður, að ná henni? I hvernig i ósköpuny | um gerum við það? Sunnudagur 5. janúar 8.00 Morgunandakt. Séra Sigurður Pálsson vigslu- biskup flytur ritningarorð og bæn., 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög Þýskir listamenn flytja. 9.00 Fréttir. Úrdráttur úr forustugreinum dagblað- anna. 9.15 Morguntónleikar. 11.00 Messa í Hallgrimskirkju 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.15 Úr sögu rómönsku Ameriku.Sigurður Hjartar- son skólastjóri flytur fyrsta hádegiserindi sitt: Land- nám og nýlendutimi. 14.00 Innganga tslands i Atiantshafsbandaiagið. Samfelld dagskrá, tekin saman af Baldri Guðlaugs- syni og Páli Heiðari Jóns- syni. Greint frá aðdraganda málsins og atburðunum við Alþingishúsið 30. mars 1949 með lestri úr samtimaheim- ildum og viðtölum við nokkra menn, sem komu við sögu. — Fyrri þáttur. 15.15 Miödegistónleikar. 16.15 Veðurfregnir. Fréttir. 16.25 Endurtekið efni: Jerúsalem, borg Daviös. Dagskrá i samantekt Friðriks Páls Jónssonar. (Áður útvarpað að kvöldi jóladags). Flytjandi auk Friðriks Páls er Olga Guð- rún Árnadóttir. 17.10 Skemmtihljómsveit austurriska útvarpsins leik- ur létt lög. Karel Kraut- gartner stjórnar. 17.40 Útvarpssaga barnanna: „Anna Heiða vinnur afrek” eftir Kúnu Gislad. Edda Gísladóttir les (7). 18.00 Stundarkorn með pianó- leikaranum Ludwig Hoff- mann Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 „Þekkirðu land?” Jónas Jónasson stjórnar spurn- ingaþætti um lönd og lýði. Dómari: Ólafur Hansson prófessor. Þátttakendur: Dagur Þorleifsson og Ragn- heiður Bjarnadóttir. 19.55 tslensk balletttónlist. Sinfóniuhljómsveit Islands leikur, Páll P. Pálsson stjórnar. a. „Ég bið að heilsa” eftir Karl O. Runólfsson. b. „Ólafur lilju- rós” eftir Jórunni Viðar. 20.40 Tvær smásögur eftir Unni Eiriksdóttur, „April” og „Fjólublár kjóll”. Auður Guðmundsdóttir leikkona les. 21.05 Frá tónlistarhátiðinni I Shwetzingen sl. sumar. Bir- gitte Fassbaender syngur við pianóundirleik Eriks Werba. a. „Frauenliebe und Leben” op. 42 eftir Schu- mann. b. Sigenaljóð op. 103 eftir Brahms. 21.35 Spurt og svarað. Erling- ur Sigurðarson leitar svara við spurningum hlustenda. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir. Danslög. Heiðar Astvaldsson dans- kennari velur lögin. 23.25 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. Mánudagur 6. janúar 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05: Valdimar örnólfsson leikfimikennari og Magnús Pétursson pianóleikari (a.v.d.v.). Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. lands- málabl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55: Séra Óskar J. Þorláksson dóm- prófastur flytur (a.v.d.v.). Morgunstund barnanna kl. 9.15: Finnborg örnólfsdóttir les söguna „Maggi, Mari og Matthias” eftir Hans Pett- erson i þýðingu Gunnars Guðmundssonar og Kristjáns Gunnarssonar (4). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli liða. Búnaðar-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.