Tíminn - 05.01.1975, Blaðsíða 24

Tíminn - 05.01.1975, Blaðsíða 24
24 TÍMINN Sunnudagur 5. janúar 1975. ■ IHfflíi I 0 I Smásaga um Hróa Hött Þið hafið auðvitað heyrt getið um Hróa Hött, enska útlagann. Hann var uppi fyrir mörgum öldum og hafð- ist við i skógum úti, ásamt vinum sinum. Hrói Höttur vildi hjálpa þeim, sem áttu bágt og urðu fyrir kúgun og órétti. Þess vegna er hann þjóðhetja. Borgar- stjórinn, sem þá var i bænum Nottingham, var bæði undirförull og hinn mesti grimmdarseggur. Hann lagði þunga skatta á borgarbúa og rúði þá inn að skyrtunni. Hrói Höttur hjálpaði mörgum úr klónum á borgar- stjóranum, og þess vegna hataði hann Hróa. Oft reyndi hann að handtaka Hróa, en það var nú ekki allra meðfæri að klófesta Hróa Hött. Þegar þessi saga gerðist, stóð þannig á, að borgar- stjórinn var nýbúinn að leggja stórfé til höfuðs Hróa. En það virtist enginn ætla að verða til þess, að vinna til verð- launanna. Nótt eina dreymdi Hróa, að hann væri að berjast við tvo stóra og sterka bændur. Þeir höfðu barið hann óþyrmilega og i tilbót höfðu þeir tekið af honum bogann, bezta vopnið hans. Aldrei hafði Hróa dreymt jafn illa. Hann var hræddur um, að þessi draumur myndi vita á eitthvað illt. Um morguninn sagði hann Litla-Jóni, bezta vini sinum, drauminn. En Litli-Jón hló aðeins að honum. Hann trúði ekki á drauma. Hrói áleit samt betra að fara varlega, Hann fann á sér, að eitthvað mundi koma fyrir áður en dagurinn væri úti. Hann skipaði mönnum sinum að vera vara um sig. Þvi næst lagði hann og Litli- Jón af stað út i skóginn. Allt var með kyrrum kjörum. Vindurinn þaut i trjánum, fuglarnir sungu og sólin skein i heiði. Loks komu þeir i rjóð- ur eitt I skóginum. Sáu þeir þá stran og sterk- legan náunga á gægjum bak við eitt tréð. Hann hafði sverð við hlið og hélt á stórum boga i hendinni, og klæddur var hann í föt úr hross- húð frá hvirfli til ilja. — Ef mér ekki mis- sýnist, er þetta einhver svæsnasti bardagamað- urinn i Nottingham, sagði Litli-Jón. — Biddu min hér. Ég ætla að fara og spjalla ögn við hann og vita hvort hann hefur illt i hyggju. — Það yrði þá i fyrsta sinn, sem Hrói Höttur hlypi á bak við menn sína, svaraði Hrói reiði- lega, — halt þú áfram til Nottingham og reyndu að komast á snoðir um, hvað borgarstjórinn hefur i hyggju. Litli-Jón gerði eins og honum var sagt, þótt honum væri það nauð- ugt. Hann elskaði og dáði höfðingja sinn, skógarmanninn. Honum datt ekki i hug að óhlýðnast skipunum hans. Menn Hróa voru líka á næstu grösum. Þeir skildu þvi þarna. Hrói gekk yfir rjóðrið til þess aðtala við manninn i skinnfötunum. En Litli- Jón labbaði áleiðis til Nottingham. Ekki hafði hann lengi gengið, er hann sá þá sjón, er fékk honum nóg að hugsa. Undir gömlu eikitré rakst hann allt i einu á tvo félaga sína dauða. Meðan Litli-Jón virti þá fyrir sér, kom einn af mönnum hans á harðahlaupum. — Flýðu!, kallaði hann — Borgarstjórinn i Nottingham er á hælun- um á okkur með hundrað vopnaða menn. Hann hlifir engum, sem hann grunar að sé i þjónustu Hróa Hattar. Maðurinn þaut áfram, en Litli-Jón hugsaði sig um. Hann var aldrei vanur að flýja, en timinn var naumur. Hann sá hvar menn borgar- stjórans komu hlaupandi. Litli-Jón þekkti hvern krók og kima i skóginum, svo að það hefði verið innan handar fyrir hann að skjótast undan. En kurt- eis maður hleypur ekki i felur, fyrr en hann er búinn að heilsa komu- mönnum, hugsaði Litli- Jón. Að svo búnu lagði hann ör á streng og mið- aði á borgarstjórann, sem kom riðandi i broddi fylkingar. Örin hæfði ekki markið. Hún þaut fram- hjá borgarstjóranum, en lenti i staðinn i einum af mönnúm hans. Á næsta augnabliki höfðu bæjar- menn umkringt Litla- Jón og tekið hann til fanga. Borgarstjórinn var nú heldur en ekki hreykinn yfir þvi, að hafa náð i bezta vin DAN BARRY Geira tekst með hjálp heila-tölvunnar að | muna eftir hvernig á að koma vélinni samband. ** t aðalstöðv ' unum hér e öllum vélmenn unum stjórnað og fjarstýrt. Fólkið hér hefur \ . En ég get fyrir löngu gleymt J komist F , ,heila-tölvunni”^<v-samband við r (t / hana og fundið Þetta er einsí Jæja, Vicki, þessir'f og hún á að ganga. ^Jæja? Hvaða Y" Hún gengur, þetta Komdu riú, Ámeðan á öðrum stað i borginni hljóð er þetta? var auðvelt tengdi. nú förumT’—HPVriðt Aðvnnmar bara nokkra vira við! e7ri°* Áðvorunar Sjáið, hún er \ Það er iorðið of þegar komin á ' seint að ná henni bjallan! Timavéliner kominigang.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.