Tíminn - 05.01.1975, Blaðsíða 8

Tíminn - 05.01.1975, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Sunnudagur 5. janúar 1975. Á NÝJU ÁRI Það er óþarft að rifja upp atburði þjóðhátiðarársins sem nú hefur kvatt, en við áramót er eölilegt að menn reyni að gera sér grein fyrir þvi hvað fram undan er, hvern arf nýtt ár tek- ur frá því liðna og hver vanda- mál hæst ber. Augljóslega eiga íslendingar nú fyrst og fremst við tvö vandamál að glima, tvenns konar arf frá fyrra ári. Náttúruhamfarirnar Það fer ekki á milli mála að hinar ógurlegu náttúruhamfarir i Neskaupstað leggja stjórn- völdum og þjóðinni allri miklar skyldur á herðar. Þar er um að ræða stórverkefni i endurreisn atvinnutækja, jafnframt þvi sem bæta verður það tjón annað sem unnt er að bæta. Mannslif verða ekki bætt, en um fram allt verður lif og starf fólksins þar eystra að komast svo fljótt sem mögulegt er i eðlilegt horf. t ofviðrinu sem geisaði um norðan- og austanvert landið i desember kom það i ljós hversu illa ibúar þessara héraða eru staddir hvað snertir rafmagn. Það er ekki i mannlegu valdi að standa gegn illviðri, en hitt er hneisa að svo illa skuli vera búið að stórum héruðum að lifi fólks og eignum þess sé stefnt i bráð- an voða meðan aðrir baða sig i jólaljósunum. Hér er greinilega óunnið geysilegt verk sem ekki verður unnið á neinni svip- stundu. A nýliðnu ári vannst sá stór- sigur að Byggðasjóði var ætlað fast árlegt tillag miðað við þjóðartekjur. Hér er ekki um timabundna ákvörðun að ræða heldur mótun stefnu til fram- búðar, og er mikið undir þvi komið að framkvæmdir verði i samræmi við þann góða ásetn- ing sem réð ákvörðun Alþingis i þessu efni. óðaverðbólgan Annar arfur nýliðins árs er sú geigvænlega verðbólga sem æð- ir yfir efnahagslif þjóðarinnar og raunar flestra nágranna- þjóða okkar. Vitaskuld getum við ekki hindrað það að erlend verðbólga hafi sin áhrif hér inn- an lands, svo mjög sem við er- um háðir utanrikisviðskiptum. Hitt á að vera i okkar valdi sjálfra að verðbólgan innan lands verði ekki meiri en gerist i helztu viðskiptalöndum okkar. Sú rikisstjórn sem tók við völd- um á siðasta hausti hefur sett sér það meginverkefni að vinna bug á hinni sérislenzku óðaverð- bólgu og verður að treysta þvi að ekkert verði til sparað að sigri, eða að minnsta kosti áfanga, verði náð i þeirri bar- áttu á þessu ári. Jafnframt verður þjóðin sjálf, og almanna- samtökin i landinu, að gera sér grein fyrir þeim skyldum sem þeim eru á herðar lagðar ef árangri skal náð. Landhelgismálið Útfærsla landhelginnar er enn meginverkefni Islendinga á þvi ári sem nú gengur i garð. Það er ekkert smáviðvik að færa út úr 50 mllum i 200, svo sem fjar- lægðirnar sjálfar sýna. Hjá þvi getur ekki farið að auka þarf og bæta landhelgisgæzluna til að mæta nýjum aðstæðum og verk- efnum, en i annan stað að kynna rækilega hagsmuni og sjónar- mið íslendinga á erlendum vett- vangi. Reynslan hefur kennt okkur að i þessu máli verðum við að treysta á okkur sjálfa, og er fyrir öllu að enginn bilbugur verði á íslendingum fundinn. Það er sjálfsagt að reyna samn- inga og sættir að þvi marki sem hagur og réttur þjóðarinnar leyfir, en hinu verður ekki breytt að það sem máli skiptir eru sjálfstæðar ákvarðanir sjálfstæðrar þjóðar. Hvernig kemur kjararýrnunin niður? Það er ljóst að nokkur kjara- rýrnun varð á siðara hluta þjóð- hátiðarársins, og kom hún raun- ar engum á óvart eins og allt var I pottinn búið i efnahags- málum. Nú þarf að lita á það af mikilli gaumgæfni hve réttlát- lega kjararýrnunin hefur komið niður á hinum ýmsu samfélags- hópum. 1 okkar samfélagi eru nokkrir minnihlutahópar sem gjarna bera mjög skarðan hlut frá borði. Þar ber fyrst að nefna þá sem af ýmsum ástæðum geta ekki séð sér farborða, svo sem elli- og örorkulifeyrisþega. Þvi er haldið fram að kjararýrnunin hafi komið þyngra niður á þessu fólki en ýmsum þeim sem njóta fullra starfskrafta. Ef eitthvað er hæft i þessu verður að bæta þar úr umsvifalaust. í ööru lagi má nefna það fólk sem býr i leiguhúsnæði, en eins og allir vita liggur við að húsa- leiga á íslandi sé almennt okur Sérstaklega ber að vara við þvi að svo kynni að fara að sam- dráttur yrði i ibúðabyggingum, en slikt hefði iskyggilegar af- leiðingar fyrir þá sem minnst mega sin að þessu leyti. Mikil- vægt er að ráðizt verði I fram- kvæmd á þeirri áætlun vinstri- stjórnarinnar að reisa leiguhús- næði viða úti um land sem leigt verði við hóflegu gjaldi. Vissulega má benda á fleiri slika samfélagshópa þótt hér verði látið staðar numið. En minna má á að verkalýðs- hreyfingunni er mikill vandi á höndum að standa betur vörð um hagsmuni láglaunafólksins en hún reyndist fær um á siðasta ári. Ýmsar blikur á lofti erlendis Þjóðinni munu að sjálfsögðu mæta mörg og margvisleg önn- ur vandamál og úrlausnarefni á nýju ári, og er engin ástæða til að ugga um það sem i hönd fer ef þjóðin er einbeitt og sæmilega samhent. Hins vegar eru sem endrarnær ýmsar blikur á lofti erlendis, og verða Islendingar að kunna að bregðast við þvi sem þar kann að gerast. Það er alveg ástæðulaust að taka þessu nýja ári af of mikilli bjartsýni hvaö snertir efnahagsástandið I ýmsum af okkar helztu við- skiptalöndum. Margt bendir til þess að samdrátturinn muni enn aukast þar frá þvi sem þegar er orðið. Við verðum að gera okkur grein fyrir þvi að slikt kynni að hafa uggvænleg áhrif á islenzkt efnahagslif, og er fyrir miklu að þjóðin verði vel i stakkinn búin ef ekki hægist um erlendis. Það er nefnilega gömul saga og sönn að þegar harðnar á dalnum reynir hver og einn að búa að sinu og bjarga sjálfum sér. -JS UTANRÍKISMÁL 2. Af fyrstu grein, sem birtist hér 15. desember s.l., á að sjást, að utanríkismál okkar Is- lendinga eru fleiri en land- helgismálið og hermálið. Þau mál hafa hinsvegar verið meira i sviðsljósinu frá lýðveldisstofn- un en flest, ef ekki öll mál, er snerta samskipti okkar við önn- ur riki. Þótt sumum þyki e.t.v. að bera I bakkafullan lækinn að ræða meira um hermál og land- helgismál nú, verður þessi önn- ur yfirlitsgrein helguð land- helgismálinu, en þriðja og sið- asta greinin hermálinu. Margt kemur til, að þeirri umræðu skuli hér fram haldið, og ber fyrst að nefna siðustu stjórnar- skiptin, sem hafa þegar haft nokkrar breytingar I utanrikis- málum okkar i för með sér. Frekari breytingar eiga e.t.v. enn eftir að fylgja i kjölfarið. Landhelgismálið 1971-1974. Fyrir kosningarnar 1971 varð útfærsla landhelginnar eitt helzta umræðuefni kosninga- baráttunnar. Þáverandi stjórnarandstæðingar vildu ákveða útfærsludaginn, en tals- menn stjórnarinnar vildu biða, m.a. eftir niðurstöðum haf- réttarráðstefnu S.Þ. Ef siðar- nefnda stefnan hefði orðið ofan á, stæði sú bið enn þann dag i dag. Þvi má ekki gleyma. Er úrslit kosninganna 1971 lágu fyrir, varð það eitt helzta verkefni rlkisstjórnar Ólafs Jó- hannessonar, ,,að landhelgis- samningunum við Breta og Vestur-Þjóðverja verði sagt upp og ákvörðun tekin um útfærslu fiskveiðilandhelgi i 50 sjómllur frá grunnlinum, og komi sú út- færsla til framkvæmda eigi sið- ar en 1. september 1972.” Al- þingi samþykkti siðan sam- hljóða, að útfærslan sfeyldi fara fram 1. sept. 1972, enda hafði al- menningsálitið i landinu þau áhrif á forystumenn „við- reisnarflokkanna”, að þeir tóku að yfirbjóða, eins og það er kall- aö, er stjórnmálaflokkar, sem áður voru andvfgir ákveðnu máli, snúast i þvi og vilja enn meira en það, sem þeir upphaf- lega voru alveg á móti. Er rikisstjórn Ólafs Jó- hannessonar tók við völdum, hóf hún þegar mikla kynningu fyrir málstað Islands á alþjóðavett- vangi, — kynningu, sem van- rækt hafði verið að halda uppi á „viöreisnarárunum”. Var tim- inn fram að útfærsludegi (1. sept. 1972) notaður, m.a. til þess aö efla samstöðu rikja með svipaða hagsmuni og við höfum. Þar komu til ýmsir nýir banda- menn, t.d. úr þriðja heiminum. Segja má, að dvergríkinu fs- landi hafi orðið ótrúlega mikið ágengt á alþjóðavettvangi varð- andi útfærslumálin. Við útfærsluna stækkaði ís- lenzka landhelgin úr 75 þúsund ferkllómetrum I 216 þúsund fer- kflómetra. Það lá þvi fyrir, að efla þyrfti landhelgisgæzluna. Samið var um smiði nýs varð- skips, sem senn kemur til lands- ins, skipt var um vélar I Þór 1972, Hvalur 9. var tekinn leigu- námi og gerður að varðskipinu Tý. Tvö hvalveiðiskip voru sið- an tekin á leigu. Tvær Bell-þyrl- ur, ein Sikorsky-þyrla og ein Fokker-Friendship-véi voru keyptar fyrir Landhelgisgæzl- una. Er þetta örasta uppbygg- ing landhelgisgæzlu íslendinga frá upphafi. Þau tvö riki, sem einkum hafa verið á móti útfærslunni, (Nato- bandaiagsþjóðir okkar) Bret- land og V.-Þýzkaland, hafa reynt að halda uppi vörnum fyr- ir úrelt sjónarmið, — sjónarmið, sem er nú að daga uppi, meira að segja innan þessara tveggja rikja. Um tima var rætt um gildi Nato-þátttöku okkar, er þessar tvær bandalagsþjóðir héldu uppi lögbrotum hér við land. Lá við um nokkurt skeið, að stjórnmálasambandi yrði slitið við Breta, (eftir Hallorms- staðarsamþykktina 4.-7. sept. 1973), svo sem alkunnugt er. Samþykktir þingflokks og framkvæmdastjórnar Fram- sóknarflokksins á Hallormsstað I sept. 1973, rikisstjórnarsam- þykktin 11. sept. um að frekari ásiglingar þýddu slit stjórn- málasamskipta íslands og Bret- lands, ásamt rikisstjórnarsam- þykktinni 27. sept. 1973 um að tilkynna brezku stjórninni, að til slita stjórnmálasamskipta landanna kæmi, ef dráttarbátar og herskip Breta yrðu ekki kom- in út fyrir 50 milna mörkin mið- vikudaginn 3. október, hrifu. Bráðabirgðasamkomulag náð- ist svo i London, eins og alþjóð veit, og var það staðfest á Al- þingi 13. nóvember 1973 með 54 atkvæðum gegn 6. Gildir það i tvö ár, og rennur þvi út síðla þessa árs. Viðræður við V.-Þjóðverja hafa ekki borið árangur, og hafa þeir fengið framgengt innan EBE að tengja viðskipta- og tollafriðindi okkar við banda- lagið saman við fiskiveiðirétt- indi þeirra hér við land. Taka Arctúrusar nú á dögunum hefur vafalitið gert það að verkum, að um samninga við V.-Þjóðverja verður vart að ræða varðandi undanþágur innan 50 mllnanna. Enda er öll þróun á alþjóðavett- vangi okkur i hag. Núverandi rikisstjórn Ljóst er, að landhelgisstefna þeirrar stjórnar, sem nú situr, þ.e. að færa út I 200 milur á ár- inu, á visan stuðning þjóðarinn- ar allrar. Landhelgismálið er hiklaust eitt aðalmál þess árs, sem nú er að byrja. Útfærslan i 200 milur verður mun auðveld- ari en ella vegna þeirra miklu ávinninga, sem unnust á stjórnarferli rikisstjórnar ölafs Jóhannessonar. Það er stað- reynd, sem framsóknarmenn eru hreyknir af. 1 samstjórn Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks er ekki ágreiningur um útfærsluna 1975. Við megum hinsvegar ekki gleyma hverjir það voru, sem mest og bezt studdu okkur á al- þjóðavettvangi i 50 milna bar- áttunni og hverjir það voru, sem harðast réðust gegn lifshags- munum okkar þá. Eðlilegt má telja, að við skipum okkur oft i sveit þriðja-heims-rikjanna, t.d. á S.-þ.-þingúm, án þess þó að láta góð samskipti okkar við nánustu vinaþjóðir biða hnekki. H.W.H. KortiO sýnir 200 mila efnahagslögsöguna við island. M.a. sést hvernig svæOunum milii Grænlands og tslands og Færeyja og islands þarf að skipta til helminga. Óvist er um skiptingu svæOisins miili islands og Jan Mayen.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.