Tíminn - 05.01.1975, Qupperneq 10
10
TÍMINN
Sunnudagur 5. janúar 1975.
Séra
Billy
Zeoli
1 Hvtta húsinu: Nánir vinir ræöast hér viö, Ford forseti og séra Billy Zeoli, en forsetinn metur hjálp Zeolis.
ANDLEGUR RÁDGJAFI
BANDARÍKJAFORSETA
Þegar Betty Ford var fyrir
nokkru skorin upp vegna
krabbameins í brjósti var
Billy Zeoli, 42 ára gamall
prestur og starfsmaður
kvikmyndafyrirtækis, einn
af þeim fáu semekki voru
skyldir frúnni, en biðu þó í
ofvæni eftir að frétta af
því, hvernig uppskurður-
inn hefði heppnazt.
Skömmu áður en frúin var
skorin upp haföi hinn snyrtilega
klæddi Zeoli, sem kallar sig
„sendifulltrúa Krists” hænastund
með frúnni i herbergi hennar i
sjúkrahúsinu, en siðan var hann
hjá fjölskylduni næstum sam-
fleytt næstu fjóra daga.
Michael Ford, elzti sonur for-
setans segir: „Billy hefur hjálpað
okkur sem fjölskyldu til aö blanda
geði hvort viö annaö og hafa
stjórn á skapi okkar. Hann hefur
Ultima
STOR-
ÚTSALA
Karlmannaföt
Stakir jakkar
Stakar buxur
Allt aÖ
ÚTSALA
gefiö okkur styrk”.
Frú Ford segir, eftir þvi sem
haft er eftir hennar mestu
hjálparhellu, Nancy Howe:
„Billy flytur kirkjuna til okkar.
Hann þarf ekki á byggingu að
halda til þess að láta fólk finna
nærveru Guðs. Hann finnur helgi-
dóm guðs hvar svo sem hann er
sjálfur. Börnin min dá hann öll.
Hann getur gert Guð mannlegan i
augum unga fólksins. Hann er
stórkostlegur maður”.
Billy Zeoli hefur veriö fjöl-
skyldúvinur Ford-fjölskyldunnar
allt frá árinu 1960, en þá hitti hann
fyrst fulltrúadeildarmanninn frá
Michigan, sem var i heimsókn i
Washington. Samband þessara
tveggja manna hefur orðið enn
nánara eftir að Ford var gerður
að varaforseta og siðan að forseta
Bandarikjanna.
I hverri viku sendir Zeoli bæna-
minnisblaö upp á eina vélritaða
siðu til forsetans, en Ford lifir
dagsdaglega eftir boðskap guð-
spjallanna. Bænablaðið er sent i
pósti frá Muskegon i Michigan,
þar sem Zeoli vinnur, á föstudegi,
og siöan er það lagt á borðið fyrir
framan Ford næsta mánudag. A
blaðinu stendur „Guö hefur betri
hugmynd”, og á þvi eru vers úr
bibliunni eða aðrar tilvitnanir,
sem Zeoli bætir svo nokkrum orð-
um við frá eigin brjósti. Dæmi-
gerð bæn frá Zeoli hljóðar eitt-
hvað á þessa leiö: „Kæri Guð,
hvers vegna kemur þú ekki til
min og sezt á þennan stól og segir
mér, hvað skuli gera? Þaö væri
svo einfalt, ef þú kæmir og værir
hjá mér, og segðir mér, hvað ég
ætti að gera i lifinu, og til hvaða
bragös skuli taka.”
Bréf forsetans
Ford forseti skrifaði eftir-
farandi til Zeoli 3. september sl.
nokkrum dögum eftir að hann tók
við embætti: „Eins og þú veizt
Biliy, hefur kirkjan alltaf átt mik-
il itök i mér. Náið samband við
fjölskyldu mina, hefur einnig haft
mikla þýðingu fyrir mig, þar sem
við stöndum saman i trúnni á
Krist.... Þar sem ég hef treyst
Kristi fyrir að vera frelsari minn,
þá er lif mitt helgað honum.... og
Billy, ég hef orðiö var við hand-
leiðslu hans, rétt eins og þú hefur
orðið var við hana.” 1 lok bréfs-
ins, þakkar Ford Zeoli fyrir „að
hafa eytt tima sinum i að hjálpa
honum til þess að læra meira um
frelsarann.”
Upphafið að sambandi Zeolis og
Fords var sameiginlegur áhugi
þeirra á iþróttum. Ford var i fót-
boltaliði Michiganháskólans, og
Zeoli hefur alla tið haft mikinn
áhuga á iþróttafólki, og hefur
verið náinn vinur manna eins og
Joe Namath og Tom Landry, og
haft bænastund með liðum eins og
Dallas Cowboys.
Kostir hans
Zeoli ólst upp i Philadelphia, og
útskrifaðist frá Germantown
1 1 K V , ^ ^ j í£||Pl| - 1
- ' A' ^ ik' ?\
Lengst til vinstri má sjá Gerald Ford þá þingmann. Þessi mynd var tekin, þegar Zeoll hélt fund meö
iþróttamönnum i Washington.