Tíminn - 05.01.1975, Blaðsíða 11
Sunnudagur 5. janúar 1975.
TÍMINN
11
Academy og Phiiadelphia College
of the Bible. Siöan lauk hann guö-
fræöinámi sinu I Wheaton College
i Illinois, og var vigður til prests
hjá Independent Presbyterian
Church árið 1953. Tveimur árum
siðar tók hann við stjórn Kristi-
legs æskulýsðsambands i
Indianapolis, og þegar hann var
28 ára gamall var hann gerður að
varaforseta kvikmyndafyrir-
tækisins Gospel Films of Muske-
gon I Michigan og tók siðan við
yfirstjórn þess fyrirtækis. Zeoli
hefur tekizt að gera þetta að einu
stærsta bibliukvikmyndafyrir-
tæki i heimi, en kunningjar hans
lýsa honum sem duglegum og
áræðnum i viðskiptum. Arið 1972
gerði hann myndina So Long,
Joey, sem er heimildarmynd um
lif poppsöngvara, sem snerist frá
drykkjuskap og eiturlyfjum til
kristindómsins.
Faðir Zeolis sjálfs, Anthony, er
trúmaður, sem sjálfur var áður
fyrr heroin-neytandi og eyddi sex
árum æsku sinnar i betrunarhús-
um og fangelsum, m.a. fyrir
að háfa brotizt inn og verið
vopnaður. Anthony Zeoli segir, að
hann hafi komizt á réttan kjöl i
lifinu þegar hann var 22 ára gam-
all, eftir að hann fór að lesa i
Bibliu, sem einhver hafði skilið
eftir i fangaklefanum. Hann og
sonur hans Billy eru mjög nánir
vinir.
Billy Zeoli er að þvi leyti ólikur
þeirri hugmynd, sem fólk al-
mennt gerir sér af prestum, að
hann er mjög hressilegur i fram-
göngu og klæðir sig i samræmi við
tizku dagsins i dag. Þar við bætist
svo, að hann er náinn vinur
margra iþróttamanna. Þegar fólk
spyr Billy um klæðaburð hans, en
hann gengur m.a. oft á tiðum i
hvitri sportskyrtu, bindislaus,
segir hann: ,,Ég er sendiboði
Guðs, og mig langar til þess að
klæða mig sem bezt fyrir hann.”
Russel Kniff, kaupsýslumaður i
Grand Rapids, sem er i stjórn
Gospel Films segir: „Billy hegð-
ar sér og klæðir sig á þann hátt,
sem margt ihaldssamt kristið
fólk telur, að ekki eigi að gera. En
Guð litur á fólkið hið innra, og sé
litið á Billy á þann hátt hefur
hann næstum allt til að bera sem
kristinn maður”. Bobby Richard-
son, sem var i New York Yankee-
liðinu segir ennfremur: „Þegar
þú sérð Billy i fyrsta skipti, furð-
arðu þig á þvi, eftir hverju hann
er að sækjast, en svo kemstu að
raun um, að hann er einstök
manneskja, stórkostlegur fé-
lagi.”
Don Cockoft, sem er i Cleveland
Brown-iþróttaliðinu, og hefur átt i
nokkrum erfiðleikum i iþrótta-
grein sinni, segir að Zeoli hafi
eytt töluverðum tima með hon-
um, og hjálpað honum i iþróttinni
og það svo mjög, að honum tókst
að vinna verðlaun, sem kallast
Golden Toe, eða gulltáin. Einnig
hefur Zeoli tekizt að hjálpa til við
að bæta liferni eins af liðsmönn-
um Dallas Cowboy, sem var að
þvi kominn að lenda i hjónaskiln-
aði. Eftir að þessi iþróttamaður,
og kona hans, höfðu rætt nokkuð
við Zeoli, féll allt i ljúfa löð með
þeim, og nú er þetta hið trúaðasta
fólk og tekur mikinn þátt i trúar-
lifi safnaðar sins i Dallas.
Góður sölumaður
Bannkastjóri Old Kent Bank of
Grand Rapids John Canepa gaf
Billy Zeoli góða einkunn
sem kaupsýslumanni. Billy er
harðskeyttur viðsemjari. Hann er
einn þeirra, sem þekkir allar
staðreyndir i hverju máli, og er
alltaf vel undir samningaviðræð-
ur búinn. Hann stjórnar Gospel
Films af mikilli hörku, og fjár-
málavit hans kemur gleggst fram
i hinni góðu fjárhagslegu afkomu
fyrirtækisins. Hann er alltaf að
selja framleiðsluvörur Gospel
Films, eins og góðum sölumanni
sæmir. Hann er mjög góður kaup-
sýslumaður, hvernig svo sem
á hann er litið.
Marilyn, kona Billys er stór-
kostlega aðlaðandi, nákvæm með
útlit sitt og klæðaburð. Þau hjón
eiga þrjú börn, Steven, 14 ára,
Patty 11 ára, og David, niu ára.
Vinir þeirra kalla Billy „sérstak-
an fjölskylduföður, sem á hverj-
um degi eyðireinni klukkustund á
heimili sinu i Grand Rapids með
börnum sinum — venjulega les
hann þá fyrir þau kafla úr sögu
Bandarikjanna, eða ræðir við þau
um eitthvert atriði úr Bibliunni.
Zeoli svarar ekki i simann, á
meðan hann er með börnum sin-
um, og áður en hann skilur við
þau biður hann ævinlega bæn.
„Fjölskylda min er það allra
mikilvægasta i lifi minu,” segir
hann.
Náið samband
1 ágúst 1973, hittust þeir Ford
og Zeoli við morgunverð og til
þess að ræða Bibliuna, en þessi
fundur þeirra átti sér stað i Pant-
lind hótelinu i Grand Rapids. Eft-
ir þennan fund þeirra bauð Ford,
sem þá var leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar i Fulltrúadeildinni,
Billy að hafa bænastund i deild-
inni. Dagurinn, sem fyrir valinu
varð fyrirþessa bænasund var 11.
október, en svo fór, að þetta var
daginn eftir að Spiro Agnew sagði
af sér embætti varaforseta, og
daginn áður en Nixon valdi Ford
til þess að taka að sér embætti
Agnews. Eftir að Zeoli haföi flutt
bæn sina, ávarpaði Ford fulltrúa-
deildina og sagði: „Það er stór-
ko.stlegt að fá tækifæri til þess að
hafa vin minn hér, séra Billy
Zeoli, til þess að biðja með okkur
bæn. Hann er trúr borgari, góöur
faðir, sem á dásamlega fjöl-
skyldu, og trúarleiðtogi, sem hef-
ur geypileg völd.”
Eftir að Ford varð varaforseti
höfðu hann og Zeoli með sér hálf-
tima bænastundir með viku milli-
bili i skrifstofu Fords i Washing-
ton. Zeoli átti fyrsta fundinn með
Ford, sem forseta 28. ágúst, dag-
inn sem hann hélt sinn fyrsta
blaðamannafund. Þrem vikum
siðar dvaldist Zeoli með konu
sinni hjá forsetafjölskyldunni, og
gaf hann þá forsetanum
marmarafil, sem hann kom þeg-
ar fyrir á skrifstofu sinni.
Zeoli eyðir niu vikum á ári i að
predika á æskulýðsmótum oft átíð-
um i smábæjum. Hann er þekktur
fyrir það, hversu óþvingaður
hann er i framkomu, og hann not-
færir sér oft á tiðum hina allra
minnstu smámuni, sem koma
fyrir meðal áheyrendanna, til
dæmis ef einhver hnerrar, eða
einhver er klæddur óvenju skær-
lituðum jakka og leggur slðan út
af þessu i upphafi, fremur en að
hefja ræðu sina með einhverjum
velundirbúnum ræðustúfi. Hann
leggur sig allan fram um að láta
áheyrendurna finna til velliðunar
i návist hans, og segir þar að lút-
andi: „Einungis þegar ég hef
unnið trúnað þeirra, hef ég rétt á
að tala við þá um Guð.”
Zeoli leggur mikiö að sér við
æslulýðsstarfið, og þetta æsku-
lýðsstarf færir honum mikið af
sendibréfum.
Ungur piltur, sem ákvað að
læra til prests, eftir að hafa kom-
izt i kynni við Zeoli, skrifaði hon-
um nýlega og þakkaði honum
fyrir bréf, sem hann hafði fengið
frá honum, og sagöi „það er mér
svo mikils virði, að heyra frá
þér.” Zeoli segir, að timanum,
sem hann eyðir meðal þekktra
iþróttamanna, sé vel varið, þvl
þeir þurfi jafn mikið á aðstoð að
halda eins og hverjir aðrir. „Fólk
hefur alltaf rangar skoðanir á
iþróttamönnum.” Það heldur, að
iþróttamaðurinn hafi allt,
sem hugurinn girnist, þar með
talda peninga og frægð. En það er
mikið óöryggi i lifi iþróttamanns-
ins. Minnizt þess, að iþróttamað-
ur endist venjulega ekki nema 4.7
ár, og þá er hann ekki gjaldgeng
vara lengur á þvi sviði.
Sambandið milli forsetans og
Zeoli er svo náið, að sumir hafa
látið i það, skina, að hann gæti átt
eftir að verða „prestur” Hvita
hússins
Þegar Billy var spurður að
þessu sagði hann: „Ég hef ekki
áhuga á þvi, að geast prestur
Hvita hússins. Byggingar þurfa
ekki á prestum að halda. Þar við
bætist svo það, að þegar Ford
varð forseti hét ég þvi að segja
aldrei eitt einasta orð um þær
stjórnmálaákvarðanir, sem hann
á eftir að taka.”
Hvað svo sem þessu liður, þá er
sambandið milli þessa dugmikla
prests, og hins nýja forseta
ekkert að rofna. Gagnkvæm virð-
ing rikir milli þessara tveggja
manna og þeir finna til hlýju hvor
frá öðrum. Þegar Billy varð
fertugur, sendi Ford honum
skeyti og sagði: „Ég er mjög
þakklátur fyrir vináttu þina, og
vona að hún eigi enn eftir að
styrkjast á komandi dögum og
mánuðum.”
Ekkert bendir til þess, að hann
myndi hafa afmælisóskina öðru
visi þótt hann sendi hana i dag.
þýttFB)
mT| • i' * 4 ■■ :'m
Hérer Zeoli úti I skógi með fjölskyldu sinni: Steven, 14 ára, Marilyn, kona Zeolis, Patty 11 ára, David 9
ára. Þau búa i Grand Rapids, heimaborg Fords forseta.
Zeoli situr hér á tali við Michael, son Fords forseta, og konu hans Gayle. Myndin var tekin i Bethesda
hersjúkrahúsinu, þegar verið var aö skera konu Fords upp við krabbameini.
gripur
’uohnsoi
Sks&HarsB
ótrúlega
Vélsleöi í sérflokki
varðandi búnað og
verð, því
ALLT ER
INNIFALIÐ Jt
í VERÐINU v HÉá
hagstætt
verö
.... /
'S/nufiar %j£ehöóo// h.í
Ow ■ - ••• 'L/ < • '
ureyrl • Glerárgötu 20 •
Suöurlandsbraut 16 •
Sími 2-22-32
Sími 3-52-00