Tíminn - 05.01.1975, Side 21

Tíminn - 05.01.1975, Side 21
Sunnudagur 5. janúar 1975. TÍMINN 21 FÚGUMYND (1940), svonefnt Fúgutfmabilið, er áhugavert i listferli Svavars. Eigandi iistasafn íslands. (Stærö 130 x 81) ir til þess að kaupa þessa list fyrst framanaf. Það kom hérna maður um dag- inn, sem hafði i fórum sinum myndir eftir mig frá þessum ár- um, myndir sem danskur maður hafði keypt. Hann fékk þær að mig minnir á hundrað krónur stykkið, en nú voru þær bopnar á 200.000 krónur á Islandi. Þetta voru fremur litlar myndir og voru svona byrjendaverk. Þessar myndir voru úr einhverju dánar- búi, eða fyrri eigandi myndanna var dauður og svo komu þær fram hér þær tilheyra Expression- ismanum. Heim eftir strið. Sýning í Listamannaskálanum — Nú kemur þú heim eftir strið og sýnir, hvernig tóku menn ab- straktinu? — Já, ég kom heim eftir strið og sýndi i Listamannaskálanum, þessum rétt við alþingishúsið. Kom með þessar myndir og i raun og veru minnti það svolitið á horfna tið, þegar ég rúllaði sam- an léreftin og stakk undir hendina til að sýna þau i Charlottenborg til aö komast á skóla, — en nú var Sýningin 1942: ...þarna gat maður séð spillinguna tegundahreina ég að ganga til prófs hjá minni eigin þjóð. Heimslistin var þá i eins konar terpentinukrús, eins og við á Hornafirði keyptum frá Reeves i London, það helltist ekkert niður á hverju sem gekk með litaspjöld hjá einhverjum mönnum. — Slóstu þá,i gegn? Það stendur eiginlega einhverj- um öðrum nær að skera úr um það. Eitthvað bifaðist þó þetta þunga hjól. Ég held að mörgum sem voru mikið á móti mönnum eins og Gunnlaugi Scheving og fleiri, sem voru með nýjungar, og þóttu ósvifnir gagnvart listinni, — hafi þegar þeir sáu þessa sýningu fundizt, að þarna gæti maður þó séð spillinguna alveg tegundar- hreina. Mig minnir að Jónas frá Hriflu hafi sagt eitthvað i þá áttina i ein- tSABROT eftir Svavar Guönason. Myndin er I Listasafni tslands. hverju blaði. Það fór hrollur um þessa menn, sem fram til þessa höfðu aðeins orðið að berjast við einhverja hálfdrauga. — Ýmsir sem komu á sýning- una fleygðu skránni i þann, sem gætti hennar. Konan min hún Ásta var við vörzlu á sýningunni og það voru menn, sem fleygðu i hana sýningarskránni, þegar þeir strunsuðu út aftur. Sumir komu inn og snéru við straz, fullir vand- lætingar. Erlendur í Unuhúsi skirði myndirnar — Einhverjir hafa þó tekiö þessu vel? • — Já, já. Ragnar i Smára. Hann var opinn fyrir þessu og ýmsir fleiri, menntamenn og aðr- ir, sem ekki voru með sálina i tvö- földum ramböldum. Erlendur i Unuhúsi lika. Hann skýrði mynd- irnar og hjálpaði mér að hengja þær á veggina og Ragnar aðstoð- aði við þetta lika. Var boðinn og búinn til þess að hjálpa til. — Keyptu menn þessar mynd- ir? ■ — Já ,' einn og einn. Auður, kona Halldórs Laxness, keypti af mér vatnslitamynd. Lika Ragnar, og Nikulás á skattstofunni keypti, þá eða skömmu siðar. Já, Ragnar keypti liklega fyrsta oliumál- verkið eftir mig. Annars seldi ég litið, en það var feiknarleg aðsókn að sýningunni. Skokkandi milli Reykja- vikur og Kaupmanna- hafnar — Nú kemur það fram hér aö framan, aö þaö er næstum yfirskilvitlegt hvernig þér tekst aö draga fram lifið, án þess að ánetjast einhverri rómantik eöa lyrikk I staö þess aö vera tegundahreinn I myndinni. Hvernig gekk þér aö kijúfa þetta, aö flytjast heim meö þennan vonda farangur, abstraktmál- málverkin? — Illa. Ég fékk ekki einu sinni húsnæði. Það var húsnæðisskort- ur I borginni og kannski hefur mönnum lika þótt það bezt að hrista af sér þessa óværu i eitt skipti fyrir öll. Næstu árin var ég þvi skokkandi milli Kaupmanna- hafnar og Reykjavikur. Ég hafði húsnæði i Höfn sem ég sleppti ekki, og I raun og veru þá gekk mér betur i Kaupmannahöfn en i Reykjavik, þar sem ég þótti ekki eins hrollvekjandi málari. Danir voru komnir dálitið lengra þá. Svona gekk þetta árum saman, og segja má að ég hafi raunveru- lega ekki komið heim fyrr en 1952. Ég sýndi samt tvisvar eða þrisvar á íslandi, meðal annars myndir, sem ég hafði unnið hérna heima. Pina septembermanna uppspuni? — Nú hefur blaðinu verið snúið við. Hvenær telur þú að þér verði fyrst vært i landinu með þessar myndir? Ég get nú i raun og veru ekki timasett það. Ég fylgist eiginlega ekki með þessu þannig lagað. Aöalatriðið var fyrir manni á þessum árum, að hafa aðstöðu til þess að vinna. Halda áfram að vinna. Að geta haldið þvf striki i kúnstinni, sem maður trúir á. Sigla þann kompáskúrs, sem maður trúir á. Frjárhagslega eru þessi mál hins vegar ekki leyst fyrr en nokkuð seint. Ég hlæ nú alltaf þegar ég sé þessa stráka, þessa „septembermenn”. Þeir hafa árum saman, i tugi ára, alltaf verið að taía um þessa feiknarlegu pinu, sem þeir lifðu i. Mér finnst þetta i rauninni hlægi- legt, þvi að þetta er fjöldi manna, sem snúa bökum saman um ákveðinn hlut, gagnvart umhverfi sinu. Ég er viss um að þegar þeir seinna fóru að sýna undir ein- hverju „septembernafni” að það hefur ekki verið sú hund un sem þeir tala um eða að raun veruleg andúð hafi mætt þeim eins og þeir vilja halda fram. Það er dálitið rikt i sumu fólki að gera litið úr vissum stað- reyndum timatalsins, þegar verið er að minnast viðburða. Sér i lagi um þróun i listum. — Nú ég er á skokki milli land- anna, húsnæðislaus. Helzt var það að ég fékk inni i einhverjum súmarbústöðum upp á Mosfells- heiði, eða i einhverjum öðrum kofum langt frá mönnum. Þátttakandi i heims- frægum sýningum 1 Þú veröur þvi sameiginlegur máiari fyrir Danmörku og Isiand — Ekki er nú rétt að orða þetta svo. Það var ávallt lögð á það rik áherzla að ég væri íslendingur. Eigi að siður kom ég fram með dönskum abstraktmálurum, og var I ákveðnu samfélagi þar, sem kom á breytingum I viðhorfum Dana til nútimalistar. Þetta varð nú til löngu áður. Ég var farinn að mála svona svipað og ég geri, þegar árið 1936 og byrjaður að sýna með sérstökum mönnum. Það var sama sagan i Danmörku. Fólk áleit fyrst að maður væri stórlegur spaugari og svindlari, að bera fram svona nokkuð á list- sýningum i landi, þar sem hlut- irnir voru i föstu formi. Það átti bara ekki nógu gróf orð yfir þetta, þrátt fyrir frjálslyndi á mörgum sviðum. Danir voru lika vanari málverki, áttu renesans og impressionisma. En þetta var þeim of stór biti, svona til að byrja með. Þessir félagar minir, og ég þá sjálfur lika, fengum áskoranir um að halda sýningar hér og þar viða um heim. T.d. sýndi ég með dönskum málurum á ítaliu og i Bandarikjunum og viðar. Höstudstillingen — Cobra Þetta hófst með hneykslanlegri sýningu Corner — og Höstudstillingen i Kaupmanna- höfn 1 október 1936, en þó má rekja feril hennar til ársins 1932 undir ýmsum nöfnum. — Þarna voru fræg nöfn? — Þetta voru 18 menn, sem voru meðlimir þessara samtaka, eða Haustsýninganna eins og þær voru oftast nefndar. Sumir náðu heimsfrægð eins og Asger Jorn, sem reyndar hét hinu alþýðlega nafni Asger Jörgensen i þá daga. Ejler Bille, sem var eiginlega myndhöggvari fyrst og fremst og mælskusnillingur og svo sýndu þarna oft gestir. Uppsuða úr þessum haustsýningum er grúppa, sem gengur undir þvi alþjóðlega nafni Cobra. — En Grönningen. Þú er féiagi þar? — Grönningen er listfélag menntamanna og alls konar furðumanna sem bundizt hafa samtökum um að sýna nýja list, einu sinni á ári. Þeir velja lista- menn i lokaða grúppu sem verða fastir félagar. Aðrir félagsmenn eru styrktarmeðlimir, sem greiða árgjald og fá svo boðsmiða á sýningar hópsins. Ég kom þarna árið áður en Jón Stefánsson dó. , en sýndi samt ekki með fyrsta ár- ið, þar eð ég var um þær mundir með stóra einkasýningu i Kaup- mannahöfn. Siðan hefi ég oft sýnt með þeim og tekið þátt i starfinu, en þó ekki á hverju ári, þvi maður trénastupp á þessu, sem auðvitað er þó út i hött, þvi aö sýningum fylgir ýmislegt stúss, sem veitir manni næringu. Menn storma þangað með það skázta sem þeir hafa látið sér detta i hug og Grönningen reynir að hafa upp á þvi eftirtektarverðasta. Ég kom þarna 1962 og sýndi fyrst árið 1963. Eins og sagt var hér áðan var Jón heitinn Stefánson félagi i Grönningen. Við lát hans minnt- ust þeir hans i timariti sinu, Grönningen og fóru lofsamlegum vitnisburði um verk hans. Minntu á að hann hefði verið nemandi Matisse á sinum tima og maður getur gefið þvi gaum, að merkilegt verður að teljast, að þessi frægi málari Matisse skuli með þessum hætti koma við is- lenzka listasögu. Að leika fátækling — En nú eru 40 ár siðan þú byrjar að sýna raunverulega út- færð abstraktmálverk. Er þetta ekki orðið gamaldags núna. Hvað um poppið? — Popplistin á fremur örðugt Sósíalhöfundar og popparar: Leika fótæklinga og skæruliða — í list, sem ætluð er undirokuðum þjóðum þarf ekki að sviðsetja fótæktina uppdráttar á Islandi, vegna þess að hér eru ekki nauðsynlegar að- stæður — sem betur fer liggur mér við að segja. — A tslandi hafa menn allt til alls. Hvergi er betra að búa i raun og veru. Socialrithöfundar og popplista- menn reyna svo að leika fátækl- inga og skæruliða og framleiða þjáningu i andlit sitt og hjarta. Mér finnst þetta i rauninni hlægilegt, enda sér hver heilvita maður hvernig þessum blessuð- um vesalingum vegnar. Þeir koma með einhver stórpólitisk slagorð fyrir kosningar, slagorð sem henta i miðaldarikjum og enginn botnar upp né niður i þessu. Sárafárir fylgja þessu fólki. Þetta hefur ekkert með list- ina að gera, sem betur fer. Hið pólitiska drama, sem er jarðveg- urinn fyrir socialrómantikina er ekki fyrir hendi. En kannski ættu þeir heldur að reyna við Afriku, ef þeir vilja endilega frelsa ein- hverja. Þetta er sá beizki sann- leikur. Virkileiki þjóðfélagsins gefur ekki rétta svörun við list, sem ætluð er undirokuðum ólæs- um þjóðum, þar sem ekki þarf að sviðsetja fátæktina. Svo lengi sem við erum sú þjóð Iheiminum, sem getur leikið sér að vild sinni, þá er ekki von að unnt sé að styðja einhverja hugs- jónaþánka, einhverja pólitiska kenningu eins og „socialroman” höfundar og málarar bjóða upp á nú á dögum. — Svo að lokum. Málarðu litið núna? — Ég veit það ekki. Liklega fremur litið þessa stundina. Ég er „maniskur” var það og er, — og svo koma þokudalir á milli. Þetta gengur i öldum. Umhugsunin um málverkið er þá ávallt jafn áleitin, jafnvel þjak- andi og maður hugsar mikið. Það hefur aldrei verið skilgreint hvenær raunveruleg listsköpun fer fram. Ef til vill er sjálf vinnan I málverkinu minnsti þáttur þess sambærileg t.d. vélritun á leik- riti. Meginn timinn fer i að þroska ákveðnar hugmyndir, og breyta þeim svo i málverk. Þegar menn missa þessa hugsun hætta þeir að mála og oft mála þeir menn mest, sem fæst málverk liggja eftir, segir Svavar Guðnason. Jónas Guðmundsson. VETURINN ER KOAAINN S&/WVBK eymarnír eitt þekktasta merki Norðurlanda - fást hjá okkur i miklu úrvali Einnig: Rafgeymasambönd, kaplar, skór og kemiskt hreinsað rafgeymavatn ■ ARAAULA 7 - SIAAI 84450

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.