Tíminn - 05.01.1975, Síða 27
Sunnudagur 5. janúar 1975.
TÍMINN
27
AAark Twain:
Tumi gerist
leyni-
lögregla
eftir öllu, og nú sá
hann, að gamla græna
ginnutreyjan var
horfin af sinum stað,
enda þótt hún hefði
hangið þar, þegar
við fórum út, að þvi er
hann sagði. Þetta
þótti okkur mjög
einkennilegt, og eiðan
fórum við app að
hátta.
Við heyrðum,
hvernig Benný var á
stjái i herbergi sinu
sem lá við hliðina á
okkar herbergi. Við
gátum okkur þess til,
að hún væri áhyggju-
full út af föður sinum
og gæti þess vegna
ekki sofið. Okkur varð
reyndar ekki svefn-
samt heldur. Við sát-
um þess vegna uppi
góða stund og reykt-
um og skröfuðum
saman i hálfum hljóð-
um og vorum næsta
daufir i dálkinn og
leiðir. Við töluðum um
morðið og afturgöng-
una aftur og aftur, og
við gerðum hvorn
annan skelkaðan og
myrkfælinn, svo að nú
var alveg loku fyrir
það skotið, að við gæt-
um sofnað.
Timinn leið, og loks
var komið langt fram
á nótt, og allt svo
hátiðlegt og öll hljóð
voru undarleg eins og
þau -eru oft eftir
miðnættið. Þá kleip
Tumi allt i einu i
handlegginn á mér og
hvislaði til min, að ég
skyldi lita út. Það
gerði ég auðvitað, og
þá sáum við mann
vera að laumast um i
aldingarðinum, eins
Álfabrenna í Kópavogi
Tómstundaráð Kópavogskaup-
staðar hefur haft forgöngu um að
halda að þessu sinni álfabrennu i
Kópavogi, sunnudaginn 5. jan. og
er það nýlunda i bæjarlifinu.
Tómstundaráð hefur fengið i lið
með sér ýmis iþrótta- og æsku-
lýðsfélög, sem leggja munu fram
krafta sina til að gera atburð
þennan sem eftirminnilegastan.
Dagskráin hefst kl. 17.00,
klukkan fimm með skrúðgöngu
frá Vallargerðisvelli.
Hestamenn úr hestamanna-
félaginu Gusti munu fara fyrir
göngunni og verður gengið niður
á Smárahvammsvöll við Fifu-
hvammsveg, þar sem álfabrenn-
an fer fram. Auk brennunnar
sjálfrar verður sitthvað til
skemmtunar. Hornaflokkur
Kópavogs leikur álfalög. Félagar
úr þjóðdansafélagi Reykjavikur
skemmta. Hinir óviðjafnanlegu
Halli og Laddi koma fram. Jóla-
sveinarnir Askasleikir og
Stekkjastaur verða þarna á ferð-
inni og félagar úr Gerplu annast
álfadans og álfaleiki.
Mönnum er i fersku minni stór-
kostleg flugeldasýning á þjóð-
hátiðinni i sumar i Kópavogi i
umsjá hjálparsveitar skáta.
Sömu aðilar munu standa fyrir
flugeldasýningu.
Almennur söngur verður undir
stjórn Egils Bjarnasonar, sem
jarnframt verður kynnir.
Þeir, sem að þessari álfa-
brennu standa, vænta þess, að
þessi þáttur i bæjarlifinu veki
áhuga ungra og gamalla og verði
árviss liður i framtiðinni.
hefur þó meira verið gert á þessu
eina sumri heldur en .áður á
fimmtán til tuttugu árum.
Viðhorf fólks i þessum byggðar-
lögum hafa gerbreytzt. Það veit,
hvaða fyrirgreiðslu það fær—
sem sagt áttatiu af hundraði
kostnaðar, ýmist sem lán eða ó-
afturkræft framlag, og það er
sama hlutfallstala og tryggja á til
hinna margumtöluðu þúsund
leiguibúða sveitarfélaga úti á
landi. Reynslan af Inndjúps-
áætluninni er að sjálfsögðu mjög
mikilvæg, þegar að þvi kemur að
hrinda svipuðum áæltunum af
stað annars staðar.
Hólsfjöll og Efra-Fjall
Þingsályktunartillaga var
einnig samþykkt i fyrra um
byggðaáætlun á Hólsfjöllum og
Efra-Fjalli. Þar eru aðeins sjö
bændur á fimm býlum. Þetta
svæði gegnir mjög mikilvægu
hlutverki sem varðstöð á löngum,
erfiðum og fjölförnum fjallvegi,
sem getur lokazt vegna snjóa á
hvaða tima árs sem er, og má þvi
jafnvel likja byggðinni þarna við
hin frægu munkaklaustur i fjalla-
skörðum Mið-Evrópu.
Allri gagnasöfnun vegna
byggðarinnar á Hólsfjöllum og
Efra-Fjalli er þegar lokið, og
verður gengið frá áætlun, sem á
þessum gögnum byggist, á næstu
vikum. A fundi sem haldinn var á
Kópaskeri i haust, var þessi
áætlun rædd. Mun æskileg byggð
á Hólsfjöllum talin sex til átta
heimili, auk þriggja heimila á
Efra-Fjalli, og er gert ráð fyrir,
að fjölgun býla verði I landi
Grimsstaða og Grundarhóls. Eitt
vandamálanna á þessu svæði, er
hvernig þessu byggðarlagi verði
séð fyrir rafmagni, fyrst til
bráðabirgða og siðan til frambúð-
ar, og hefur verið rætt um, að býl-
in á Hólsfjöllum yrðu tengd
héraðsrafveitum á áætlunar-
timanum, sem verður fimm ár,
og þá væntanlega i Reykjahlið.
N-Þingeyjarsýsla og
Langanesströnd
Gagnasöfnun vegna land-
búnaðaráætlunar i Norður-Þing-
eyjarsyslu og Skeggjastaða-
hreppi i Norður-Múlasýslu er að
mestu lokið og áætlunin sjálf á
undirbúningsstigi. A Kópaskers-
fundinum var vakin athygli á
þvi, að vandamál Skeggjastaða
hrepps væru engu minni en Hóls-
fjalla, og yrði skjótt að bregðast
við, byggðarlaginu til bjargar.
Skeggjastaðahreppur — öðru
nafni Langanesströnd — er að
mestu á þjónustusvæði Þórshafn-
ar og þess vegna væri eðlilegt að
þessi sveit yrði felld inn i Norður-
Þingeyjarsýsluáætlunina.
Gagnasöfnun þar mun þó
skemmra á veg komin en i Norð-
ur-Þingeyjarsýslu.
Norður-Strandir
I fyrra var hafin undirbúningur
sams konar áætlunar vegna
þriggja nyrztu hreppa Stranda-
sýslu, Arneshrepps, Kaldrana-
neshrepps og Hrófbergshrepps.
Bændur eru þar á milli fimmtiu
og sextiu. Þetta svæði hefur þá
sérstöðu, að það liggur vel viö
rækjumiðum á Húnaflóa, það hef-
ur skilað miklum gjaldeyri vegna
hrognkelsaveiða, sem þó hafa
viða verið stundaðar af fólki, er
ekki hefur fasta búsetu i þessum
Góður órangur
sveitum, og þar er reki og ýmis
önnur hlunnindi, sem ekki nýtast
nema að nokkru, ef byggðin fer i
eyði.
Inndjúpsáætlunin hefur orðið til
þess að glæða vonir manna á
þessum slóðum og auka þeim
áræði, og i Árneshreppi, sem er
nyrztur þessara byggðarlaga,
hefur búseta verið furðutraust hin
seinustu ár. Á hinn bóginn finnst
bændum þar eðlilega, að þeim
beri sams konar fyrirgreiðsla i
erfiðri aðstöðu og grannar þeirra
i Inndjúpi hafa hlotið, enda reiðu-
búnir til þess að axla þær byrðar,
sem af þeim verður krafizt, ef
þeir fá hana. Meðal annars munu
bændur I Trékyllisvik og þar um
slóðir vera þess mjög fýsandi, að
Hvalá, sem er mikið vatnsfall, er
steypist af hárri fjallsbrún niður i
Ófeigsfjörð, verði virkjuð.
Vestfiröir
Búnaðarsamband Vestfjarða
hefur farið þess á leit, að gerð
verði búnaðaráætlun fyrir Vest-
firði alla. Þar munu bændur vera
um 260. Þetta mál er þó komið
skammt á veg, og er aðeins búið
að afla gagna i Austur-Barða-
strandarsýslu.
Tilmæli Vatnsnesinga
Loks var lögð fram á fundi á
Hvammstanga i haust samþykkt
hreppsnefnda á Vatnsnesi, i
Þverárhreppi og Kirkjuhvamms-
hreppi, þar sem þess var farið á
leit að bændum þar yrði veitt
fyrírgreiðsla. Var ákveðið að
hefja undirbúning að gerð
búnaðaráætlunar fyrir Vatnsnes-
ið. Enn hefur ekki reynt á,
hvaða viðtökur þessi hugmynd
fær hjá þeim stofnunum, sem um
málið eiga að f jalla, og er það enn
á undirbúningsstigi hjá Land-
námi rikisins.
Byggðafundir á Laugar-
bakka og Hofsósi
Eins og kunnugt er hafa verið
samin frumdrög að almennum
inngangi landshlutaáætlunar
fyrir Norðurland allt og Strandir.
Forráðamenn sumra staða hafa
talið byggðarlög sin afskipt við
undirbúning og gagnasöfnun
vegna þessarar allsherjaráætlun-
ar. Segir svo i fréttabréfi frá
Fjórðungssambandi Norðlend-
inga, að þess vegna hafi verið efnt
til viðræðufunda i haust á
Laugarbakka i Miðfirði og Hofs-
ósi. Hefur hreppsnefnd Ytri-
Torfustaðahrepps uppi ráðagerð-
ir um eflingu þéttbýliskjarna á
Laugarbakka og meðal forráða-
manna á Hofsósi komu fram hug-
myndir að hafnargerð og hlut-
verk Hofsóss, þar sem atvinnulif
var bókstaflega i rúst fram á sið-
ustu ár, sem útgerðarbæjar og
fiskvinnslustaðar.
Aðfaranótt laugardags var gerð
tilraun til þess að brjótast inn i
Klausturhóla við Lækjargötu.
Mjög fullkomið þjófavarnarkerfi
hefur þar verið sett upp og virk-
aði eins og til var ætlazt, þannig
að það hringdi hjá fleiri en
einum aðila úti i bæ. Fór lög-
regian strax á vettvang, og hafði
innbrotsþjófum ekki unnizt timi
til þess að komast inn i
verzlunina, og var á hlaupum i
burtu, en vagfarandi gat bent á
hvar hann fór er lögreglan kom.
riniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiTi swí o (1111 35fl. l'N
Framsóknarfélag Kjósarsýslu
og AAosfellssveitar
cuni ui sKemmuKvoiQS í megaroi, nmmiuaagmn ib. jan. ki.
20.30. Ólafur Jóhannesson flytur ávarp. Guðmundur Jónsson
óperusöngvari syngur. Karl Einarsson fer með gamanmál, að
lokum verður spiluð. framsóknarvist. Guðmundur G.
Þórarinsson stjórnar, mjög glæsileg verðlaun.
VStjórnim___________________”_____~________________________
r FUF Reykjavík
Aðalfundur FUF i Reykjavik verður haldinn 30. janúar næst-
komandi. Tillögur um fulltrúa i fulltrúaráð skulu berast stjórn-
inni fyrir 15. þessa mánaðar, að Rauðárstig 18, Reykjavik
^ ___________________________Stjórnin ^
Kona gengur fram
fyrir skjöldu
BÆJARYFIRVÖDLIN eru ekki
búin að bita úr nálinni með stöðu-
mælana i gamla austurbænum.
Mikil kurr er i fólki, sem heima á
við Grettisgötu, er hvergi getur
haft bila sina, nema við stöðu-
mæla, sem þeir eru þreyttir á að
mata, og ekki bætir úr skák, að
tilkynningar um sektir fylgja i
kjölfarið.
Timanum hefur borizt skjal frá
konu einni við Grettisgötu, Guð-
laugu Sveinbjarnardóttur, sem
hefur neitað að sinna sektarkröf-
um, og ber fyrir sig mörg atriði.
Er það raunar langt bréf til lög-
reglustjórans i Reykjavik.
Meðal annars segir hún, að
stöðumælavörðurinn sé starfs-
maður Reykjavikurborgar, en
festi á bila tilkynningar frá lög-
reglunni sem sé rikislögregla og
segir hún, að sér séu ekki kunnir
neinir samningar eða lög, er
heimili starfsmanni sveitarfélags
að koma þannig fram i nafni lög-
reglunnar. Þá sé ákvæði i reglum
frá 1966 þess efnis, að gjald i
stöðumæla sé leigugjald, og beri
að greiða aukaleigugjald, fimm-
tiu krónur, standi bifreið við mæli
fram yfir tilsettan tima. Gjöld
þessi renni i stöðumælasjóð, sem
er eign Reykjavikurborgar, en á
kröfuplöggum sé lögreglan i
Reykjavik tilgreind sem inn-
heimtuaðili, og þar að auki hljóði
krafan upp á hundrað krónur.
Segir hún sér ókunna nokkra aug-
lýsingu borgaryfirvalda um
breytingu á þessu gjaldi, enda i
gildi bann við hækkunum af sliku
tagi, nema að fengnu leyfi verð-
lagsyfirvalda
Loks telur Guðlaug, að upp-
setning stöðumæla við Grettis-
götu hafi verið óheimil, og vitnar
þar til itaks og hefðar um rétt til
gjaldfrjáls stæðis fyrir bifreiðar,
auk þess sem tilkoma mælanna
valdi með aukinni bilaumferð
röskun á stöðu og högum ibúa við
Grettisgötu. Gerist lögreglu-
stjóri þess vegna, á ábyrgð rikis-
sjóðs, úrskurðaraðili i flóknu
máli, án þess að sá, sem brotleg-
ur er talinn, hafi haft tækifæri til
þess að kynna rök sin i málinu.
O Kattarklær
rauninni að stöðvast. Eins og við
leituðurn upphafsins á jólunum,
var veröldin nú að finna sitt
upphaf. Kúvæt búið að kaupa
Mercedes — Benz og írarnir og
kaupa Pan Am og á íslandi berja
nemendurnir kennara sina fyrir
smæstu yfirsjónir og hann Jónas
Hallgrimsson er dauður úr syfilis.
Hvað er að?
— Sýslumaðurinn veit það ekki,
guð veit það ekki og ég veit það
varla, sagði séra Brynjólfur á
Ólafsvöllum, þegar hann var
spurður um það hve englarnir
væru margir. Og nú var að koma
nýtt ár.
— Verða rjúpur?
— Verður soðinn fiskur?
— Verða kattarklær þá i kæfum
og farsi?
Ó guð komdu með sólina aftur,
með buffin, með jarðaberjalitu
hökkin, með alla vixlana, með
hann pál og hann séra Bjarna svo
við getum haldið áfram að elska
þessa jörð. Jónas Guðmundsson
Einangrun — Frysti* og kæliklefar
Takum að okkur að einangra frysti- og kæliklefa. Skiptum
uro einangrun I eldri klefum. Notum eingöngu sprautaða
poiyurethane einangrun. Tökum aö okkur hvers konar
húsnæði.
EINANGRUNARTÆKNI H.F.
Pósthólf 9154 — Reykjavfk — Simi 7-21-63 á kvöldin.
Laus störf
Laus eru til umsóknar störf tveggja rann-
sóknarlögreglumanna.
Upplýsingar um störfin og umsóknar-
eyðublöð fást á skrifstofu dómsins,
Borgartúni 7. Umsóknarfrestur er til 25.
janúar 1975.
Sakadómur Reykjavikur.