Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 5

Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 5
Sunnudagur 1,6. marz 1975. TÍMINiN' 5 Rosmarie Frommhold, sem er fimmtug að aldri, er hæst setta konan i vestur-þýzku lög- reglunni. Hún var til skamms tima yfirmaður deildar óein- kennisklæddra kvenlögreglu- þjöna, en hefur nýlega verið hækkuð i tign og stýrir nú saka- máladeild Hamborgarlögregl- unnar styrkri hendi. Þessi forfrömun er ekki i neinum tengslum við margum- rætt alþjóðlegt kvennaár. Astæðan er einfaldlega 'sú, að frúin hefur frá upphafi unnið kappsamlega i geysilega harðri samkeppni við starfsbræður sina, auk þess sem hún hefur að sjálfsögðu til að bera nauösyn- lega þekkingu og skarpskyggni. Eftir miklar vangaveltur æðstu manna var hún þvi vaiin til að gegna þessu ábyrgðarmikla starfi, þar eð hún var talin hæf- ust allra umsækjenda til að gegna þvi á viðunandi hátt. Hún hefur lika áunnið sér virðingu keppinauta sinna, sem viður- kenna hiklaust, að hún sé rétt kona á réttum stað. Nýja skrifstofan hennar Ros- marie Frommhold er i St. Pauli, sem allfelstir fslendingar kann- ast við, að minnsta kosti af af- spurn, og hún er ekki i neinum ★ Þjóðfræðaauð- æfi norðurslóða Tónfræði- og þjóðfræðaleið- angur Tónskáldafélags Sovét- rikjanna hefur lokið störfum i héruöum norðan heimskauts- baugs. Þátttakendur i leiðangr- inum söfnuðu yfir 200 þjóð- lögum, þjóðsögum og ævin- týrum, þjóðkvæðum og gátum þjóðflokka er byggja norðurhéruð Austur-SIberiu: Dolgans, Nentsi, Evensks, Kets o.fl. Auk þess var safnað sýnis- hornum af áður óþekktum eða littkunnum þjóðlegum hljóð- færum. Meðal þeirra eru flautur búnar til úr hreindýrshornum, lúðrar úr tré og rostungs- tönnum, tamúrinur klæddar fiskroði, o.fl. Sérfræðingar segja, að það efni, sem leiðang- urinn safnaði, muni verða notað við rannsóknir og til þess að leggja rækt við frumlega list þjóöa Norður-Siberiu. ,x. EKKI í tilefni af kvennaóri vandræðum meö að rata um þetta alræmda og heimsfræga hverfi, þvi að það var einmitt á þessum slóðum, sem hún hóf feril sinn innan lögreglunnar, fyrir tæplega þrjátiu árum. Hún er mjög stolt af aö gefa með sanni sagt, að allan þennan tima hafi hún aldrei borið vopn, og hún leggur áherzlu á, að hún telji sálfræðilegar aðferðir og höfðun til skynsemi vænlegri til árangurs i viðkomandi starfi heldur en valdbeitingu og ógn- anir. ★ Starfssystur með sameigin- leg óhugamól Jehan Sadat, forsetafrú Egyptalands (t.v. á meðfylgj- andi mynd), og Mildred Scheel, starfssystir hennar i Vestur- Þýzkalandi (t.h.), hittust fyrst fyrir tveimur árum i Kairó. Þær endurnýjuðu svo kynnin i Bonn, ekki alls fyrir löngu. Frú Sadat dvaldist þá fimm daga i Vestur- Þýzkalandi, og ræddi þá m.a. mikið og lengi við frú Scheel um mannúðarmál, sem þær hafa mikinn sameiginlegan áhuga á. Frú Sadat starfar af miklum krafti að uppbyggingu sjúkra- húsa og endurhæfingarstöðva i heimalandi sinu, og frú Seheel, sem er menntuð á sviði röntgen- tækni, hefur einkum látið krabbameinsrannsóknir til sin taka. Hún var þvi ekki i neinum vandræðum með að ákveða, hvaða stofnanir hún ætti að sýna frú Sadat meðan á heimsókninni stæði. Þær þeyttust frá einu sjúkrahúsinu til annars, og þetta voru greinilega engar kurteisisheimsóknir tignar- gesta, farnar af skyldurækni einni saman, þvi að frú Sadat sýndi ósvikinn áhuga á öllu, sem fyrir augu og eyru bar, og spurði i þaula, og ekki stóð á svörunum hjá frú Scheel.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.