Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 30

Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 30
30 TÍMINN Sunnudagur 16. marz 1975. Nú-tíminn kynnir: Eagles HLJÓMSVEITIN EAGLES var stofnuð árið 1971 af Don Henley, Randy Meisner, sem fyrr á árum lék með hljóm- sveitinni Poco, Glen Frey, sem lék með John David Souther, og Bernie Leadon, sem áður lék með Lindu Ronstandt, Dillard and Clark - og var meðlimur i The Flying Burrito Brothers i tvö ár. Fyrsta plata hljómsveitar- innar Eagles kom út árið 1972 og bar einfaldlega nafn hljómsveitarinnar. Á þeirri plötu er meðal annars lagið ,,Take it easy” eftir Jackson Brown, — en það lag átti seinna einna mestan þátt i frægð Eagles. Arið 1973 gefa þeir út rokk- óperuna „Desperado” sem auðvitað gerist i villta vestrinu, en eins og ljóst má vera af fortið þeirra, leika þeir það sem kallast country- rokk. Desperado er af mörgum talin þeirra bezta og vandaðasta plata, þótt sú sfðasta ,,On The Border” (1974) hafi náð mestri hylli, en hún er sú rafmagnaðasta og að mörgu leyti gróf miðað við fyrri plötur hljöm- sveitarinnar — að undan- skildu einu lagi plötunnar, hinu gullfallega lagi ,,Best of My Love”, sem nýlega gisti fyrsta sæti bandariska vinsældarlistans. Nú á þvi herrans ári 1975 berast þær fréttir helztar af Eagles, að þeir séu um þess- ar mundir að leggja siðustu hönd á nýja breiðskifu og verður gaman að fylgjast með hinum nýja meðlimi hljómsveitarinnar — þvi að á meðan á upptöku ,,On The Boarder” stóð, gekk i iið Eagles Don nokkur Felder að nafni, — og mun hann þvi að öllum likindum njóta sin fullkomlega á væntanlegri plötu frá þeim félögum. Það er fremur kalt úti. Ég kem að læstum dyrunum. Tvær bjöllur. Hvor skyldi vera sú rétta? Ég rýni á nær óskiljanlega skrift. Kemst að raun um að hvorug bjallan er mér til gagns. Demant á enga bjöllu. Skrifstofan hjá þeim er mannlaus. Hvar er Gunnar Jökull? Hann ætlaði að koma. Sennilega bezt að doka við. ,,Ertu að biða eftir Gunnari” er spurt úr fjar- lægð. Lárus Grimsson heitir maðurinn. ,,Við biðum i sjoppunni” segir hann. Við göngum þar inn. Haraldur Þorsteinsson biður einnig. Við bíðum. „Þarna koma Hebbi og Steini” segja þeir. Leigubill rennur I hlaðvarpann hjá De- mant. Herbert Guðmundsson og Þorsteinn Magnússon stiga út. Þeir fara likt að og ég fyrrum. Rýna i bjöllurnar og tvistiga. Svo halda þeir i átt að „biðstof- unni”. Steini kemur inn i sjopp- una, Hebbi stigur inn I rauðan bil, er kemur þarna að i sama mund. Óli á bilinn. „Hann er næstum eins og fluga” segir Þorsteinn siðar við Óla, — og átti við bilinn. „Já, það vantar bara vængina” segir Ólafur Sigurðsson. „Heyrðu elskan, má ég ekki hringja?” spyr Hebbi um leið og hann kemur inn á biðstofuna. Hann velur númer. „Það voru 347 i Stapanum. Ertu ekki að koma? Hvað ertu að pæla? Við biðum hérna, blaðamaður, ljós- myndari og öll hljómsveitin. Hvað ertu að pæla? ” Hann legg- ur á. Við biðum. „Gunni er kominn” er sagt. Hersingin þeysir út. Ég heilsa Jöklinum. Það er ennþá kalt. Lyklarnir vilja ekki i skrána. „Þetta er skrltið. Hef ég verið íátinn fá vitlausa lykla?”. „Láttu mig reyna”, segir Hebbi. Hann reynir og gefst upp. Þetta ætlar að verða erfitt. „Það eru Ibúðir á efri hæöinni og þar er einhver heima,” segir einn þeirra. Gunnar hefur lykla að skrifstofunni. Annarri bjöll- unni er hringt. Það liður smá stund. Þá kemur loðinn haust út um gluggann. „Við erum i stökustu vand- ræðum. Gæturðu opnað fyrir okkur?” Smá þögn og maðurinn svarar ekki. Hann virðist vera ráðalaus. Svo segir hann: „Ég get það bara ekki. Ég er nefni- lega I baði. Hringið á hinni bjöll- unni” Það er bara svona. Svo er hringt á hinni bjöllunni. Ekkert svar. Löng bið. „Hringj- um aftur á manninn” er sagt. Það er hringt aftur á manninn. Ekkert svar. Allar bjargir bannaðar. „För- um heim til min”, segir Gunnar. „Eða heim til min, segir Hebbi. Akveðið að fara til Hebba. Eik er stofnuð um páskaleytið 1972. Stofnendur Haraldur Þor- steinsson, ólafur Sigurðsson og Gestur Guðnason. Léku sem trió i stuttan tima. Þá kom Þor- steinn Magnússon inn og þannig var hljómsveitin skipuð allt til febrúar 1973. Þá koma Lárus Grimsson og Mike og Ari inn i hljómsveitina, en þeir siðar- nefndu voru blökkumenn. „Mike og Ari töluðu við út- lendingaeftirlitið og skýrðu þeim frá þvi, að þeir vildu syngja og leika hér á landi. Báðu um leyfi til þess, — og allir álitu að það væri engin fyrir- staða fyrir þvi, þar sem svipuð tilfelli höfðu oft áður komið upp. En það var nú öðru nær. Þegar útlendingaeftirlitið sá að þeir voru svartir á hörund kipptu þeir að sér hendinni. Mike og Ari komu þrisvar fram með Eik, en þá var þeim tilkynnt, að þeir hefðu 24 klst. til að hypja sig úr landinu.” 1 byrjun s.l. vetrar léku þeir i Eik eingöngu lög án söngs. Léku mest á tónlistarkynningum. Svo kom Hebbi úr Sólskini, „með birtu og il fyrir Eikina svo hún fór að dafna.” Þeir hafa oft tvö prógrömm. Annars vegar danstónlist. Hins vegar lög án söngs, sem flest eru frumsamin. 1 danstónlist- inni eiga þeir lika mörg frum- samin lög. Frá 1. marz atvinnuhljóm- sveitarmenn. Gunnar Jökull framkvæmdastjóri. „Við þyrft- um að hafa 70 þús. kr. lág- markskaup fyrir dansleik” seg- ir framkvæmdastjórinn. 1 bigerð er að fara til Kanari- eyja og leika þar I vor. Eins hef- ur framkvæmdastjórinn Norðurlöndin I sigtinu. „Það þarf að opna Norðurlanda- markaðinn. Hann er betri fyrir islenzkar popphljómsveitir að minni hyggju heldur en t.d. sá brezki eða sá bandariski. Það ætti siðar meir að vera hægt að skreppa kvöld og kvöld til Kaupmannahafnar, — alveg eins og til Akureyrar. Skipting- ar kæmu vel til greina. Ef Is- lenzk hljómsveit fer til Kaup- mannahafnar, kemur dönsk hljómsveit og leikur hér. „Þegar fólkið er ánægt erum við ánægðir” segir hljómsveit- in. Mikið að gera hjá Eik. Annað hvort kvöld siðustu tvo mánuði. LP-plata I deiglunni. Sáuð þið sjónvarpsþáttinn I vikunni? „Þeir eru búnir að hasla sér völl á Suðurnesjum, Norður- landi og i skólum” segir fram- kvæmdastjórinn. „Þeir vilja fá okkur á Akranesi, en við erum bara fullbókaðir”. „Við reynum að láta fólk taka þátt I þvi sem við gerum” segir hljómsveitin. Textar við frumsömdu lögin þeirra eru eftir þá sjálfa og eru á ensku. „Enska er alþjóða- tungumál poppsins, alveg eins og ítalskan var alþjóðatungu- mál óperunnar á sinum tima”. „Við djömmum” segir hljóm- sveitin. „Við gætum kallað það mauk á islenzku ellegar frjálsa tjáningu”. Það vantar klúbba hérna. „Skilyrði fyrir vinveitingaleyfi, 5 millj.kr. eldhús. Má bjóða þér upp á heitan rétt I Klúbbnum n.k. laugardagskvöld? Eða I Silfurtunglinu?” „Það er erfitt að sameina popphljómlistarmenn undir eitt merki. Of margir sem vilja ein- göngu ná sér i aura. „Það er ekki atriði að vera góðir, heldur að hafa nóg að gera” segja þeir kappar, sem þannig hugsa. Þetta sjónarmið er plága á bisnessnum”. Hljómsveitin EIK: Ólafur Sigurðsson, trommur Þorsteinn Magnússon, gitar Haraldur Þorsteinsson, bassi Lárus Grimsson, pianó, flauta Herbert Guðmundsson, söngur Gunnar Jökull, fram- kvæmdastj. —Gsal— Plaggat sem meðlimir Eikar liljómsvekinni. hafa látið gera til kynningar á

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.