Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 23

Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 23
Sunnudagur 16. niarz 1975. TÍMINN 23 Garðabær i Hafnarfirði. Hér er bæði fagurt og friðsælt — góður staður fyrir rithöfund —og ekki spillir aö geta lika horft á ferfættan vin sinn spigspora í kringum húsið á góðviðrisdögum. TÉKKNESKA BIFREIDA UMBODID Á ÍSLANDI H/F AUÐBREKKU 44 46 SÍMI 42606 Rithöfundar A vissan hátt lit ég á þau öll sem eins konar áfanga, ekkert þeirra er i námunda við það takmark, sem ég hef sett mér, en á hinn bóginn þykist ég ekki hafa getað betur gert á þeirri stundu sem ég lét þau frá mér fara. — Vinnur þú lengi að leikritum þinum? — Já, yfirleitt er ég mjög lengi með þau, jafnvel mörg ár, og breyti þeim oftast mikið. bað get- ur jafnvel verið, að hin endanlega gerð sé svo ólik frumgerðinni, að tæplega sé hægt að sjá að um sama verk sé að ræða. Að þessu leyti hefur þó eitt leikritá minna sérstöðu. bað er Kertalog. Kerta- log er eina leikritið, sem ég hef fullunnið við skrifborð. Ég sendi það inn i samkeppni, og þess vegna var ekki um annað að gera en að vinna það i einrúmi, enda skrifaði ég það á einni viku og get ekki sagt, að ég hafi hnikað staf- krók f þvi frá upphaflegri gerð. ,,Ef þú færð snjalla hugmynd, þá gleymdu henni! — Fyrst við minntumst á vinnu- brögð: Hvernig skipuleggur þú vinnu þina? — Vinnubrögð og vinnutlmi eru með ýmsu móti og varla hægt að gefa nein algild svör um þá hluti. Um mig er það að segja, að ég vinn oftast í skorpum. Er lengi með leikritin i smiðum, eins og ég sagði áðan, og vinn þau i skorp- um. Stundum kemur það fyrir, að fólk spyr mig, hvort ég sé ekki með hugmynd að góðu leikriti, og það kemur jafnvel fyrir, að til min er komið og sagt: ég hef fengið bráðsnjalla hugmynd, get- ur þú ekki hjálpað mér til þess að koma henni á pappirinn? Slíkum spurningum er ég vanur að svara á þessa leið: Ef þú ert með góða hugmynd þá skaltu reyna að gleyma henni. Ef til vill er það dálitið út i hött að ráðleggja fólki svona, en þetta er einmitt sjálfs min reynsla. Ef ég fæ góða hug- mynd, reyni ég að gleyma henni, þvi að mér hefur aldrei tekizt að „færa úthugmyndir”, eins og það er kallað. Hitt getur verið, að ég heyri setningu sagða með sérstökum blæbrigðum raddar, viss stemn- ing sæki mig heim eða að allt i einu beri fyrir hugskotssjónir minar mann eða konu i einhverju sérstöku umhverfi — inn i her- bergi og húsgögnin i kring. betta getur orðið til þess að nokkrar setningar komi á pappirinn. Ég get stundum séð fólkið fyrir mér i huganum lengi, áður en það fer að tala, en þótt smátt sé byrjað og setningarnar hversdagslegar i fyrstu, kemur þarna örlitill þráð- ur, sem hægt er að fikra sig eftir. bessi starfsemi getur iðulega minnt á fornleifagröft. Maður veit ekki hvað undir leynist, en heldur áfram að vinna með múr- skeiðinni — eða jafnvel aðeins með teskeið — og það getur liðið langur timi þangað til verkið fer að fá ákveðið svipmót og örlög persónanna fara að birtast — og hugmyndin þá væntanlega um leið. Að sjálfsögðu eru þetta aðeins þau vinnubrögð, sem ég nota og henta mér. Aðrir rithöfundar fara sjálfsagt allt öðru visi að. Sumir byrja á þvi að leggja stórt plan og vita nákvæmlega hver enda- punkturinn er, þegar þeir byrja á verkinu. En þetta er tfmafrek vinna. Ég skrifa oft sama verkið tíu, tólf eða fjórtán sinnum, og alla kafla eitt- hvað talsvert oftar en einu sinni. Á þessari löngu ferð verða þær stórbreytingar á verkinu, sem ég minntist á, hérna dálitið framar. Hér er nágrenni gott, bæði með mönnum og álfum. — bá er það næðið, sem oft er talað um, þegar sköpun skáld- verka er annars vegar. Er ekki gott að skrifa hér á þessum frið- sæla og fallega stað? — Jú, ég get ekki hugsað mér neinn stað á tslandi, þar sem betra væri að skrifa en hér. Staðurinn er afskekktur á sinn hátt, þótt skammt sé til byggða, og hér eru góðir nágrannar. I þessum litlu og lágreistu húsum sem þú sérð hér I kring, býr ein- staklega gott fólk, og i álfa- borgunum eru aðrir nágrannar, engu siðri. Að visu er ég ekki svo dulspakur, að ég hafi getað átt samskipti við álfana, en ég veit, að gamlar konur, sem bjuggu hér um það leyti, sem við fluttumst hingað, drukku morgunkaffið sitt með álfunum hérna, rétt eins og frúmar i blokkunum f Reykjavik bregða sér inn i næstu ibúð til þess að drekka ellefu-kaffið með grannkonum sinum. bað eru ákaflega- góðir straumar hér I hrauninu, og þar er gott að sitja i skjólsælum hvömmum. Ég er staðráðinn i þvi að eiga hér heima eins lengi og mér er unnt, og hef hvergi unað mér eins vel og hér. bað vill svo heppilega til, að land- iðhér i kringum okkur er friðlýst, svo að við munum ekki þurfa að óttast jarðýtur eða skurðgröfur. Um annað næði er það að segja, að mjög fáir menn á landi hér hafa getað lifað á skáldskap ein- göngu, og það get ég ekki heldur. Jökull Jakobsson hefur tekið sér frf frá ritvélinni og sezt með pipu sina I stól hjá skrifborðinu. Og vist er það lika þreytandi að sitja langtimum saman við ritvél, það vita þeir, sem reynt hafa. Ég hef unnið við sjónvarp og út- varp jafnhliða leikrituninni, og þar áður var ég blaðamaður. Auðvitað bútar þetta tlmann dá- litið I sundur fyrir mér en það hef- ur lika þann kost i för með sér, að ég kynnist mönnum og málefn- um, sem ég hefði ekki kynnzt að öðrum kosti, svo það er langt frá að ég kvarti undan þvi að hafa þessi aukastörf við hliðina á skáldskapariðkunum. — Og þá er það lokaspurningin, Jökull, — þessi sjálfsagða, sem alltaf er uppi höfð, þegar talað er við rithöfunda: Hvað er I poka- horninu? — Ja, hvað er þar? Liklega er bezt að hafa sem fæst orð um það, þvi að það er ennþá i poka horn- inu.en er ekki farið að fylla neitt út i sjálfan pokann, sem enn er tómur. Á meðan byrjunin er ekki nema byrjun, er aldrei hægt að vita með vissu hvað úr henni kann að verða. Að visu á ég ófullgert leikrit, sem ég hef verið með i smiðum siðast liðin niu eða tiu ár. Á þeim tima hef ég fullsamið mörg leikrit, þótt þetta sé ekki nema hálfnað, eða kannski rúm- lega það. bessi mikla timalengd segir auðvitað ekkert um gæði verks- ins, þótt hún gæti að visu bent til þess að ég ætlaði mér eitthvað stærri hlut með þessu leikriti en öðrum. Hvort mér tekst nokkurn tima að koma á það þvi sköpulagi sem ég ætla, er aftur annað mál, en hvað sem þvi liður býst ég við að ég eigi eftir aö skrifa ein tvö eða þrjú leikrit, áður en ég lýk þessu. —'VS. TILBOÐ ■ 11 l.mai Spariö þúsundir I Sumardekk Jeppadekk •/ aff ffveim 7 dekkjum % aff fjórum dekkjum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.