Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 6

Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Sunnudagur 16. marz 1975. Hof i Hörgárdal (1900) Ingólfur Davíðsson: Byggt og búið í gamla daga LXV Laxdalshúsið á Akureyri „A Bægisá ytri borinn er býsna valinn kálfur, vænt um þykja mundi mér, mætti ég eig’- ann sjálfur”. Svo kvað annað höfuðskáld þess tima — og enn- fremur: „Fátæktin er min fylgi- kona frá þvi ég kom i þennan heim. Við höfum lafað saman svona sjötiu ár og fátt i tveim” — og i léttari tón: „Vakri-Skjóni hann skal heita, honum mun ég nafnið veita, þó að meri það sé brún”. Jú, séra Jón Þorláksson gerði garðinn frægan, en hann var presturá Bægisá 1788 til dauða- dags 1819. Liklega hafa húsa- kynni verið heldur fátækleg þá, sennilega lágreistur torfbær. Byggingarnar, sem hér er sýnd mynd af, tekin um eða fyrir aldamótin 1900, eru sjálfsagt miklu reisulegri. Ibúðarhús ný- legt að sjá og að baki þess leifar af gömlum torfbæ. Litil turnlaus timburkirkja. Þá hefur Theodór Jónsson verið prestur að Ytri- Bægisá. Bærinn blasir við af þjóðveginum, á mótum Hörgár- dals og öxnadals. Hof er neðarlega i dalnum, neðan við veginn til Akureyrar. Timburhúsið á Hofi er byggt 1827 og er enn i góðu ásigkomu- lagi. Myndina tók séra Bjarni Þorsteinsson, prestur á Hvann- eyri við Siglufjörð um aldamót- in. 1 dyrunum sjást hjónin Sig- riður ólafsdóttir Briem og séra Daviö Guðmundsson. Tengda- sonurinn Stefán Stefánsson frá Fagraskógi, faðir Daviðs skálds og þeirra bræðra, stendur við húsgaflinn. Guð- mundur og Hannes Daviðssynir og Valgerður systir þeirra horfa út um gluggann. Dagverðareyri stendur niðri við sjóinn. Margir muna eftir sildarverksmiðjunni þar. Gamli bærinn sem hér er birt mynd af, mun vera byggöur á síðari hluta 19. aldar, sbr. minningar Stefáns Jóhanns Stefánssonar. Myndarlegur bær, fjórar burstir snúa fram að sjónum og. tvær i suöur. Hjá Oddi Gunnarssyni á Dagverðareyri og konu hans var Bólu-Hjálmar I fóstri vetr- arlangt, þá á 6. ári i byrjun 19. aldar. Sagði Hjálmar siðar: „Gott átti ég hjá þeim hjónum og var þess enginn munur og ég væri þeirra son. Lét Oddur mig oft yrkja fyrir sig á kvöldin i myrkrinu, þegar fólkið svaf, og hló aö m jög dátt. Spáði hann þvi oft aö ég mundi skáld verða”. Eitt sinn voru þeir saman úti á sjó og kom hrefna við bátinn. Kvað þá Hjálmar i angist sinni: „Eitthvað heggur kaldan kjöl, kippir leið af stafni”, Oddur botnaði þegar: „Okkar beggja ferjufjöl, flýtur i drottins nafni”. E.t.v. er þetta þjóðsaga, en liklegt er að Oddur hafi örvað skáldgáfu Hjálmars. Litum ' á elzta hús Akureyr- ar nú, Laxdalshús við Hafnar- stræti, byggt 1795. 1 þvi búa nú tvær fjölskyldur. Þetta er „vatnssúðarhús” úr timbri, kennt við Eggert Laxdal, sem var faktor hjá Gudmann kaup- manni. Nú mun húsið eign bæj- arins og er heldur illa farið. Lagt hefur verið til að húsið yröi varðveitt, enda sögulegur og fallegur gripur. Minjasafn Akureyrar hefur léð þessar myndir meö skýringum um ald- ur o.fl. Dagveröareyri viö Eyjafjörö um aldamótin

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.