Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 7

Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 7
Sunnudagur 16. marz 1975. TÍMINN 7 Helgiog Harald íhlutverkum slnum. Leikfélag Reykjavíkur: FRUMSÝNING Á ÞRIÐJUDAG — finnskt nútímaverk eftir þekktan höfund BH-Reykjavik. — Leikfélag Reykjavikur frumsýnir þriðjudaginn 15. marz finnskt leikrit, „Fjölskyldan” eftir Claes Anderson, og er þetta fimmta verkefni Leikfélagsins i vetur. Aðalhlutverkin eru i hönd- um Helga Skúlasonar, Sigriðar Hagalin og Guðrúnar Asmunds- döttur, en leikstjóri er Pétur Einarsson. Finnski rithöfundurinn Claes Andersen er kunnur um öll Norðurlönd, aðallega fyrir ljóðabækur sinar, en ein þeirra kom til greina við verðlauna- veitingu Norðurlandaráðs á þessu ári. Hann er geðlæknir að starfi, 38 ára gamall, og yrkisefni sitt sækir hann mikið til starfsins og fjallar um það utangarðsfólk, sem hann hefur afskipti af þar. Claes Andersson var kunnur jazzplanóleikari á yngri árum, og hefur fengizt við tónlist auk rit- starfa. Hann hefur skrifað fyrir leikhús, en þó aðallega kvik- myndahandrit fyrir sjónvarp. Leikritið „Fjölskyldan” er nýtt af nálinni — var frumsýnt i Lilla Teatern i Helsinki á siðast- liðnu sumri, og gengur þar ennþá. í leikriti þessu er áhorfandinn leiddur að skráargati náungans, svo að fjölskyldulifið blasir við. Og þar gefur á að lita heimilisföð- ur, sem er alkóhólisti — en er að hætta — en það hefur sinar marg- vislegu hliðar. Eiginkonan er orð- in mædd eftir 20 ára hjónaband og það segir sina sögu. Hér er þó ekki um neitt bölsýnisverk að ræða, fjarri þvi. Það fjallar um vandamál, eins og öll leikrit gera I sjálfu sér, en það er ekkert vandamál leyst i þessu sviðs- verki. Hér bregður nýstárléga við. Inni á milli atriða kemur trúður og syngur og flytur heimspekileg- ar hugrenningar um verkið og tilveruna yfirleitt. Tónlistina hefur Gunnar Þórðarson samið, og var það að vilja höfundar, sem samdi upprunalega tónlistina við verkið, en var ekki sérlega ánægöur með hana og hvatti leik- stjórann, Pétur Einarsson, til að fá gerða tónlist fyrir uppsetninguna hér. Það eru þau Helgi Skúlason, og Sigriður Hagalin, sem leika hjónin, börn þeirra þrjú leika Hrönn Steingrimsdóttir, Harald G. Haralds og Sigrún Erna Björnsdóttir, og er þetta frumraun hennar á sviði. Trúðinn leikur Guðrún Ásmundsdóttir og loks fer Sigurður Karlsson með hlutverk geðlæknis. Jón Þórisson gerði leikmyndirnar og Magnús Axelsson annaðist lýsingar, en hann er nýkominn frá sviðsljósa- námi i Bandarikjunum, og sá fyrsti, sem sérmenntar sig á þvi sviði. Finnsk leikrit eru afar sjaldgæf sviðsverk hér á landi. Finnskar myndir hafa hins vegar sézt i sjónvarpi og vakið mikla eftir- tekt. Það er full ástæða til að fagna þvi, að Leikfélag Reykja- vikur skuli taka sér fyrir hendur að kvnna finnskt nútimaverk sem þetta. eldhúsinnréttingarnar eru íslenzk smíði Þær bera með sér blæ gamla tímans að tvennu leyti: Útliti og handbragði, þar sem vinnan er ekki spöruð og mörg handtök liggja að baki hverrar einingar og hverrar boglínu. Við höf um nokkrar innréttingar til af- greiðslu í marz, apríl og maí — á þessu verði: 76 sm. breið eining (yfir- og undir- skápur) kr. 64.300. 40 sm. breið eining (yfir- og undirskápur) kr. 56.700. 76. sm. breiður kústaskápur kr. 64.300. 40 sm. breiður kústaskápur kr. 57.500. 60 sm. breiður toppur og hlið fyrir ís- skáp kr. 39.800. Lausir toppar og hillur pr. stk. kr. 3.900. Verðið er með söluskatti — tilbúnar einingar til uppsetningar. Kaupandi leggur til plastplötuna á borðið. Greiðsluskilmálar eru: Við pöntun 15% verðsins. Við af hendingu 25% verðsins. Lán til 6 mánaða 60% verðsins (jafnar mánaðagreiðslur). Einingarnar eru smíðaðar úr birki og brenni og eru ýmist viðarlitar eða bæsaðar brúnar. Aðra liti er hægt að sérpanta. ARAAULA SIAAI 86-112 Auglýsið í Tímanum FRAMSOKNARVIST OG DANS • • Onnur framsóknarvistin af þriggja vista spilakvöldunum verður að Hótel Sögu miðvikudaginn 19. marz Heildarverðlaun fyrir 3 kvöld: Spdnarferð DEMPARAR í flestar gerðir bíla Húsið opnað kl. 20,00 Framsóknarfélag Reykjavikur Auk þess verða veitt góð verðlaun fyrir hvert kvöld Baldur Hólmgeirsson stjórnar Halldór r Asgrímsson alþingismaður flytur óvarp Ánægjuleg kvöldskemmtun fyrir alla fjölskylduna

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.