Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 28

Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 28
28 TÍMINN Sunnudagur 16. marz 1975. Frægt hjónaband hefur beðið skipbrot: Allar tilraunir til sátta fóru aO lokum út um þúfur. Eiizabeth Taylor og Richard Burton voru vafalítið hamingjusöm í miskunnarlausri hreinskilni — Ég get ekki lifað án Eliza- beth. Hún er mér eitt og allt, andardráttur minn, blóð mitt, vit mitt, hugmyndaflug mitt. Ef það kæmi eitthvað fyrir hana, myndi ég veslast upp og deyja, sagði Richard Burton fyrir nokkrum árum. — Ég elska Richard, og gæti ekki hugsað mér að vera með öðr- um karlmanni. Ef það kynni að gerast eftir nokkur ár, að við fær- um hvort frá öðru, held ég, að ég myndi svipta mig lifi, sagði Elizabeth Taylor fyrir nokkrum árum. Nú sitja þau hvort i sinu horni eftir tiu ára hjónaband og sleikja tilfinningasár sin. Og þeir, sem allt sjá fyrir, segja, að svona hljóti það að fara, þegar saman lendir sjálfselskri stúlku með met I þvi að eyðileggja hjónabönd og ennþá sjálfselskari manni, sem leggur kvenfólkið að fótum sér, og hefur gortað af þvi að hafa verið með fjórum kvenmönnum á sama degi. Þeir, sem bezt þekkja til mála, vita, að Elizabeth Taylor hefur tekið það nærri sér að skilja — i fyrsta skipti á ævinni, frá þvi að hún giftist I fyrsta sinn, 18 ára gömul Hún gerði allt hvað hún gat tii þess að bjarga hjónabandi þeirra Richard Burton — sem i rauninni var björgunaraðgerða virði, segja vinirnir. Einu sinni minntist Richard Burton á fyrri menn konu sinnar. Þeir fengu eftirfarandi bombur: Nicky Hilton var algjör mis- skilningur —■ Michael Wilding naut sin ekki vegna alltof mikils aldursmunar — Mike Todd var ágætur, en hann dó — Og Eddie Fisher, ja, hann er nú ekki nema einnar axlaypptingar virði! Við þetta gat Elizabeth Taylor bætt þessu um fimmta eigin- manninn sinn: Richard Burton var stórkostlegur, en hann drakk of mikið. Við þessu gat Richard Burton sagt það, að þetta hefði ekki átt að koma henni á óvart. Hann hefur alltaf drukkið. Þau hittust i fyrsta skipti, þegar verið var að taka Kleópötrumyndina — 22. janúar 1962 I Róm — og þá var hann svo gffurlega timbraður, að hún varð að halda á kaffibollanum hans. Það er sagt, að strax þá hafi móð- ureðlið kviknað i Elizabeth Tayl- or. Richard Burton hefur alltaf verið villtur og ótaminn. Hann er gæddur djúpstæðri frelsisþrá og er fæddur foringi. Hann er stað- ráöinn I þvi að ráða sjálfur hraðanum — engum skal liðast að segja honum fyrir verkum. Vin- irnir hafa alltaf gert sér ljóst, að færu böndin i hjónabandinu að þrengja að honum, myndi hann ekki linna látum fyrr en hann hefði slitið þau. Með tilliti til þess er tiu ára sambúð með Elizabeth Taylor enn furðulegri. Fyrri kona hans, Sybil, hefur ekkert nema vinsamieg orð um hann. Hún hefur alltaf viðurkennt villimennsku hans og aldrei reynt að umbreyta honum. Hún þekkir sveiflurnar i skapgerð hans og hefur látið þær afskiptalausar. Þetta talar hún um i dag ásökunarlaust og með þakklátum huga. Vissulega var hjónaband þeirra Richard Burton hamingjsamt á sinn hátt. Þau eignuðust tvö börn á þessum fjórtán árum, sem sambúðin stóð. Þá fyrst sótti Sybil Burton um skilnað „vegna andlegrar grimmdar og langvar- andi fjarvista frá heimili.” Sambúð Burton og Elizabeth Taylor stóð i tiu ár, þar af var hún eiginkona hans I átta ár. Hún vék ekki frá honum til þess að reyna með ástúð að halda aftur af áfengisneyzlu hans — þ.e.a.s. tveim flsökum af vodka á hverj- um degi, að sagt er — og óhemju- legan áhuga hans á öðru kven- fólki. Þau voru aldrei fjarri hvort öðru lengur en nokkra daga i senn. Þetta getur að vissu marki verið ákaflega heppilegt til að halda hjónabandinu saman, sérstaklega á starfsvettvangi, þar sem aðskilnaður vegna starfsins leiðir oft til endanlegs skilnaöar. Elizabeth Tylor og Richard Burton voru alltaf hreinskilin gagnvart hvort öðru. Það er eftir- tektarvert á starfssviði, þar sem lygar og slúður dafnar jafn áber- andi og þar. Það er álit manna, að hjónabandið hafi staðið jafn lengi og það gerði vegna þessarar hreinskilni. Hann gortaði iðulega af kvennamálum sinum og hélt þvi fram, að hann hefði kynnzt náið um tvö hundruð konum. Hann sagði Elizabeth Tylor frá þeim öllum — eða svo til öilum — allt frá stúlkunni, sem hann var með, meðan Þjóðverjar gerðu loftárás á Liverpool árið 1940. Það var með þessari vissu, sem heimsfræga kvikmyndastjarnan gekk inn I fimmta hjónaband sitt, með þvi að játast Richard Burton — á herbergi nr. 810 á Ritz-Carl- ton hótelinu i Montreal 15. marz 1964. Hún afber með góðu allar móðganirnar, sem Burton hafði yndi af að ausa yfir hana. Hann talaði um undirhökurnar á henni, sveitastelpu-framkomu hennar, stutta fætur hennar og slapandi brjóst. Og hún hlustaði á kvenna- gortið i honum, vitandi það, að það var ekki gort allt saman. Upphafið að endalokunum var árið 1972, þegar Burton lék i myndinni um Bláskegg, sem sýnd var hér I Laugarásbiói á siðasta ári. Þessi kvikmynd var tekin I Ungverjalandi. 1 fyrsta skipti lék hann á móti nöktum konum, og þarna gerðist eitthvað það, sem sáði frækornum afbrýðiseminnar I huga Elizabeth Taylor. Sjálfur sagði Burton: — Ég er búinn að eiga fimm vikur út af fyrir mig, meðan Liz var að leika i kvikmynd. Það er mergurinn málsins. Mér hefur aldrei liðið betur á ævi minni. Þetta var i fyrsta skipti, sem þau voru aöskilin svo lengi I einu — og upphafið að endalokunum, eins og áður segir. Nakin dama i kvikmyndinni um Bláskegg lagði meir. ástriðu i leik sinn en Elizabeth Tylor fannst viðeigandi. Hún hét Doka gagnvart hvort öðru. En þau brenndu hvort annað upp, svo að loksins var ekki um frekari sættir að ræða. Zakablukowa, og hún fékk glymj- andi löðrung hjá Elizabeth fyrir frammistöðuna. — Ég kunni ekki við frygðar- svipinn á henni, sagði Elizabeth i miklum hugaræsingi. — Og ég held, að Richard hafi sleppt fram af sér beizlinu oft eft- ir þetta. Að minnsta kosti jós hann yfir mig dýrindis gjöfum, svo að ég varð tortryggin. Hann var aö biðja um fyrirgefningu fyrir eitthvað, sem hann hafði gert — lika með augunum. Upp úr þessu komu rifrildin. Eftir rifrildi i New York flaug Elizabeth Tylor til móður sinnar i Kaliforniu, en hann varð eftir hjá Mariu, fósturdóttur sinni, i New York. 1 Hollywood sást Elizabeth i fylgd með PeterLawford, sem

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.