Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 13

Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 13
Sunnudagur 16. marz 1975. TÍMINN 13 Bíll í bingó vinning sólarferða BINGÓ ALDARINNAR segja þeir i Knattspyrnufélaginu Þrótti um bingó , sem þeir gangast fyrir á fjórum sunnudögum á næst- unni, þ.e. 16. marz, 23. marz, 6. aprfl og 13. aprfl, — en þaö er handknattleiksdeild félagsins, sem gengst fyrir bingóinu. Segja þeir i fréttatilkynningu, sem Timanum hefur borizt, að verðmæti vinninga sé samtals tæpar 4.000.000.00. ,,Já, skrifað i bókstofum fjórar milljónir króna, ótrúlegt en satt, og verður ekki um villzt að þetta er bingó aldar- innar og stendur svo sannarlega undir nalni. Meðal vinninga er bifreið af gerðinni FÍAT 127 að verðmæti 653.000.00, — og verður spilað um bflinn 13. aprfl i sér umferð, og þeir sem hafa komið i öll hin þrjú skiptin, fá ókeypis eitt bingóspjald gegn framvisun sér- stakra miða, sem afhentir verða i hvert skipti. Þá er boðið upp á 56 sólarferðir með Ferðaskrifstofunni Sunnu til Mallorca, auk 24 annarra stór- glæsilegra vinninga. Svavar Gests mun stjórna bingóunum. Leikfélag Reykjavíkur: Nýtt leikrit eftir Jónas — gamanleikur með rómantísku ivafi BH-Reykjavik. — Sjötta verkefni Leikfélags Reykjavikur á þessu starfsári verður nýtt leikrit eftir Jónas Arnason, og hefjast æfing- ar á þvi næstu daga, um leið og sýningar eru hafnar á finnska leikritinu, sem frumsýnt verður á þriðjudaginn. Að þvi er forráðamenn Leik- félagsins tjáðu blaðinu er hér um að ræða gamanleik með róman- tisku ivafi, og gerist leikritið á styrjaldarárunum. Hefur leikrit- inu ekki verið gefið nafn ennþá, en slikt gerist iðulega ekki fyrr en æfingar eru langt komnar, þegar um frumsamin islenzk verk er að ræða. Þau leikrit Jónasar Arnasonar, sem Leikfélagið hefur tekið til meðferðar hafa jafnan hlotið hina beztu aðsókn, og ástæða til að fagna hverju nýju verki frá hans hendi. Þá hefur blaðið fregnað, að á vegum húsbyggingarsjóðs Leik- félagsins standi til að sýna gamanleik með vorinu, og mun grlnleikurinn þekkti ,,Húrra krakki” eftir Arnold og Bach vera ofarlega á baugi. Eftir sömu höfunda var hinn vinsæli skop- leikur „Spanskflugan”, sem hvað mesta aðsókn fékk í Austurbæjar- bfói og viðar fyrir nokkru. Jónas Arnason, rithöfundur. „Húrra krakki” slær i gegn i Kaupmannahöfn um þessar mundir með Dirch Passer i aðal- hlutverkinu. Seinast er leikritið var sýnt hér i Reykjavik var Haraldur A. Sigurðsson, gaman- leikarinn snjalli, i aðalhlutverki og vakti mikla kátinu i þessu hlut- verki sem öðrum. Um aðalhlut- verkið i næstu uppsetningu vörð- ust forráðamenn Leikfélagsins allra frétta, en frá öðrum heimildum höfum við það, að unnið sé að þvi að fá þekkta gamanleikara úr Þjóðleikhúsinu til að starfa með Leikfélaginu að þessu verkefni. Við bjóðum yður nytsamar vörur til FERMINGARGJAFA: Skatthol, snyrtikommóður, kommóður í ýmsum stærðum, skrifborð, svem- bekkir, stakir stólar í mörgum gerðum o. fl. o. fl. VERZLIÐ AAEÐAN VERÐIÐ ER LÁGT Opið til kl. 7 á föstudögum — Lokað á laugardögum Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt 28-600 Byggingavörukjördeild 28-602 Raftækjadeild 28-601 Húsgagnadeild 28-603 Teppadeild Atriði úr Manni og konu: Brynhildur Stefánsdóttir, Hugrún Hauks- dóttir og Jakob Magnússon, i hiutverkum sinum. Maður og kona sýnd að Logalandi Frímerki íslendingur, búsettur í Sviþjóð, óskar eftir frímerkjaskiptum. Get látið Danmörk, Noreg, Svíþjóð, Katalog Facit. Karel Gudmundsson Von Lingensvag ll 21370 Malmö Sverige. JOHNS-MANVILLE ® eínangrun er nú sem fyrr vinsælasta og öruggasta glerull- areinangrun á markaðnum I dag. Auk þess fáið þér frlan álpappir með. Hagkvæmasta einangrunarefnið i flutningi. Jafnvel flugfragt borgar sig. Munið Johns-Manville i alla einangrun. Ungmennafélag Reykdæla i Reykholtsdal sýnir um þessar mundir sjónleikinn „Mann og konu” I félagsheimiíi sinu að Logalandi. Frumsýning var 6. marz og 4. sýning verður 15. marz. Fleiri sýningar verða svo eftir þvi sem aðsókn segir til um. Akveðið er að fara ekki með sýninguna frá Logalandi, þvi að leikarar margir eiga ekki heimangengt vegna búsanna. Ungmennafélag Reykdæla hefur sýnt leikrit flest ár um langt skeið. Mann og konu sýndi það siðast fyrir 25 árum, þ.e. árið 1950. Nokkrir sömu leikarar leika nú, sem léku þá, en að sjálfsögðu fáir. Þeir, sem séð hafa Mann og konu nú láta vel af og hafa skemmt sér vel. ® SHODfí ffOff - GULI PARDUSINN 5-MANNA, TVEGGJA DYRA. VÉL 62 HESTÖFL. BENSlNEYÐSLA 8.5 LÍTRAR Á 100 KM. FJÖGURRA HRAÐA ALSAMHÆFÐUR GlRKSSI. GÓLFSKIPTING. VIÐBRAGÐ 18,5 SEK. I 100 KM. Á KLST. INNIFALIÐ I VERÐI: HOFUÐPÚÐAR, RALLY- STYRI, SPORTSTOKKUR, SNÚNINGSHRAÐA MÆLIR, OLlUPRÝSTIMÆLIR, RAFMAGNSRÚÐUSPRAUTUR, BLÁSTUR Á AFTURRÚÐU ÚTISPEGLAR, HALOGEN-LUKTIR O.M.FL, VERÐ MEÐ SÖLUSKATTI KR. 6 79.000,00 VERÐ TIL ÖRYRKJA KR. 499.000,00 TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDI H/E AUÐBREKKU 44 - 46 SÍM/ 42606 9

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.