Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 17

Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 17
Sunnudagur 16. marz 1975. TÍMINN 17 iflokkur Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum? segir Hrönn Hafliðadóttir í þessu viðtali, en hún hefur sungið svo lengi sem hún man, og nú syngur hún á að minnsta kosti fimm tungumálum, auk íslenzkunnar. Mæðgurnar Hrönn Hafliðadóttir og Andrea Jónheiður taka lagið saman, og auðvitað leikur mamma undir. Timamynd Róbert. — En hvað hefur þú sungið eft- ir að þú komst i Söngskólann? — Ég byrjaði þar i haust, og siðan hef ég sungið islenzk lög og auk þess lagt stund á raddæfing- ar, enda eru þær sjálfsagður þátt- ur i söngnámi hvar sem er. Ég hef verið að spreyta mig á alt-radd- ararium, allt niður i contraalt, hvernig sem það nú gengur! — Þú hlýtur að vera fædd með tónlistina i blóðinu, fyrst þú hefur svona gaman af henni? — Ég hef haft gaman af söng og hvers kyns tónlist, siðan ég man fyrst eftir mér. Faðir minn er hljóðfæraleikari, það hefur verið tónlist i kringum mig svo lengi sem ég man, og sjálf hef ég verið syngjandi frá þvi ég var smábarn. — Þú hefur þá auðvitað verið i barnakór i skólanum þinum? — Það skrýtna er, að það get ég varla sagt. Þegar ég var i tólf ára bekk i Miðbæjarskólanum, mynd- aði söngkennarinn okkar, Jón G. Þórarinsson kór, þar sem ég söng svokallaða millirödd. Það er eini barnakórinn, sem ég hef sungið i, en hins vegar söng ég i Pólýfón- kórnum. Ég held að það hafi verið haustið 1967, er ég byrjaði að syngja þar, og þar fékk ég mikla og dýrmæta reynslu. — Syngur þú kannski enn i Pólýfónkórnum? — Nei, ég hef hvorki verið þar i fyrra né heldur á þessu starfsári, einfaldlega vegna þess, að ég hef ekki haft neinn tima til þess. Það er mjög mikil vinna að syngja i slikum kór, ef maður ætlar að gera það almennilega, og að þvi verður aðvitað að keppa, þvi ann- ars þýðir ekki neitt að vera að þessu, og er þá alveg eins gott að láta það ógert. Við vorum með kór i Söngskólanum fyrripartinn i vet- ur. Það var skylda, liður i nám- inu. Við fluttum Imperialmess- una eftir Haydn tvisvar i Háteigs- kirkju, og sungum hana lika suð- ur i Keflavik, þegar Sinfóniu- hljómsveit Islands hélt þar tón- leika, Þá togaði píanóið fastara í en námsbækurnar — Þetta var söngurinn, en hvað heldur þú að þú hafir verið gömul, þegar þú barst það fyrst við að leika á hljóðfæri. — Ég veit það ekki, þvi að pabbi var búinn að eignast hljóð- færi áður en ég fer að muna eftir mér. Sjálfsagt hef ég byrjað á að spila með einum fingri, og trúlega hef ég ekki verið gömul þá, þvi að börn byrja fljótt að bera sliku við, ef hljóðfæri er við hendina. Hins vegar man ég, að ég var niu ára þegar ég byrjaði fyrst að læra að spila á pianó. En það nám stóð ekki lengi, þvi að áhuginn var, þvi miður ekkert alltof mikill. Ég var löt að æfa mig á þeim árum. Þeg- ar ég svo var komin i mennta- skóla, vaknaði áhuginn aftur. Þá fór ég að æfa mig og sækja kennslustundir i þessu, en þá brá svo við, að pianóið togaði fastara i mig en námsbækurnar, svo það varð hálfgert jafnvægisleysi úr öllu saman hjá mér. Siðan hef ég ekki stundað skipulegt nám i hljóðfæraleik. Skömmu eftir að ég gifti mig, keypti ég mér pianó, af þvi, mér fannst það öldungis ómögulegur búskapur að eiga ekki neitt hljóðfæri. Ekki get ég þó sagt, að ég spili mikið, utan hvað ég reyni að æfa mig og jafn- vel að bæta ofurlitlu við þá þekk- ingu sem fyrir var — kenna sjálfri mér. En i vetur er þetta fullt tónlistarnám hjá mér, tónfræði, tónheyrn og svo söngurinn. Get helzt ekki lesið illa skrifaðar bækur, — en krosssaumur þykir mér skemmtilegur — En þá eru það bækurnar. Hvað heldur þú að þér sé kærast á þvi sviði? — Ég hef alltaf haft mestar mætur á öllu, sem við kemur is- lenzkri tungu og þjóðlegum fróð- leik. Mér þótti óskaplega gaman að læra islenzku i skóla, og held ég að ég hafi haft sæmilegt vald á henni, en þó varð hún ekki min bezta námsgrein á stúdentsþrófi. Liklega hef ég treyst mér of vel, — en við höfðum nú lika mikið að lesa, og ef til vill hef ég eitthvað slegið slöku við islenzkulesturinn, af þvi að þar þóttist ég standa vel að vigi. Ég hef löngum reynt að ná i sem mest af þeim tegundum bóka, sem mér þykja skemmti- legastar, og það sem á annað borð nær til min, man ég — flest. Aftur á móti gleymi ég þvi jafnóðum, sem mér finnst litið til koma. Ég var einhvern veginn þannig gerð (og það er sjálfsagt hvorki lof né last um mig), að ég get helzt ekki lesið það, sem skrifað er á mjög lélegu máli, hvort sem það er i bókum eða blöðum. Það 'hefur komið fyrir að ég hef lagt frá mér bók, af þvi einu, að hún var skrif- uð á svo hörmulegu máli, að mig hreinlega brast þrek til þess að berjast i gegnum hana. Meira að segja lélegur prófarkalestur angrar mig mjög, enda las ég prófarkir i fjögur ár, og siðan á ég alltaf erfitt með að lesa bækur sem eru subbulega unnar, að ég ekki tali nú um, ef sjálft málið á þeim er lika slæmt. Það er jafn- erfitt eins og hitt er dásamlegt, að lesa bækur sem bókstaflega anga af fögru máli, auðugu að orðfæri, myndum og likingum. — Þú lézt þess getið áðan, að þér þætti gaman að handavinnu, en gefst nokkurn tlma tækifæri til þess að fást við slika hluti? — 0, jú, jú, það kemur fyrir, og satt að segja finnst mér ágætt að láta bókalestur og handavinnu skiptast á. Ég er þá ýmist að prjóna, hekla eða sauma — út- saum eða fatasaum, eftir þvi sem á stendur, og allt þetta finnst mér mjög skemmtileg vinna. Ég var i Kvennaskólanum i Reykjavik og bý að þvi enn. Þar var ákaflega gott að vera, og við lærðum mik- ið. — Hvað heldur þú að þér þyki skemmtilegast að fást við af þessu, sem þú nefndir? — Þvi á ég óhægt með að svara, af þvi að mér finnst gaman að þessu öllu. Þó er mér nær að halda, að mér finnist skemmti- legast að telja út krosssaum. Það er ákaflega gaman að sjá mynd- irnar birtast, hv^rja af annarri. Svo er lika gaman að hnýta rýja- teppi, og finna munstrið upp sjálf um leið og hnýtt er. — Hefur þú aldrei ofið? — Nei, þvi er nú verr og miður. Mig hefur oft langað til þess að læra að vefa, en ég hef bókstaf- lega aldrei haft tima til þess. En kannski á ég þetta eftir, einhvern tima. Ég vona það að minnsta kosti. —Áttu þá ekki mikið af — list- munum, liggur mér við að segja? — Nei. Ég hef ekki lagt stund á þessa hluti til þess að raða i kringum mig hlutum, gerðum af mér, — þótt það gæti sjálfsagt verið gaman — heldur hefur mér fundizt þetta handhæg aðferð þegar gefa þarf tækifærisgjafir. Þannig hefur þetta, sem ég hef gert, dreifzt viðs vegar á milli skyldfólks, vina og kunningja en minnst af þvi á ég sjálf. Austfirðir/ Eyjafjörður og ferðalög um ókunn lönd — Eitt er enn, sem við höfum minnzt á, en ekki rætt. Það eru ferðalögin. Viltu ekki byrja á þvi að segja mér frá ferðum þinum hér innan lands? — Lengi vel einskorðuðust ferðalög min hér innan lands við það að fara i sveitina á vorin og heim aftur á haustin. Ég var þá barn, og dvaldist á hverju sumri austur á Kolfreyjustað i Fáskrúðsfirði. Seinna var ég i sveit norður i Eyjafirði, svo að kynni min af islenzku sveitalifi voru ekki bundin Austfjörðum einum. 1 fyrrasumar fór ég ásamt fjölskyldu minni i hringferð um landið. Það var gaman, þótt veðr- ið væri ekki alltaf eins og bezt varð á kosið, en á Suðurlandi fengum við ljómandi veður og nutum ferðarinnar i rikum mæli. — Hvar heldur þú að þér hafi þótt skemmtilegast að koma? — t Austur-Skaftafellssýslu. Þar hafði ég aldrei komið áður, svo að mér var allt nýtt, en auk þess fengum við svo gott veður þar. Mér finnst ég mega til með að koma þar eins fljótt og ég get aftur. Hið sama má i rauninni segja um Vestur-Skaftafells- sýsluna. Við vorum mjög heppin með veður þar, og ég var ákaf- lega hrifin af náttúrufegurðinni i þessum sýslum báðum. — En hvað um önnur lönd en tsland? — Min fyrsta sigling varð árið 1960. Ég fór þá til Danmerkur og var i vinnu á Jótlandi, hjá miklu ágætisfólki. — Gekk þér ekki neitt illa að skilja józkuna? — Fyrst eftir að ég kom þarna, fannst mér sem fólkið talaði óskiljanlegt tungumál, liklega helzt frá einhverjum framandi hnetti. En svo kom þetta smátt og smátt. Þau hættu að tala við mig „fina” dönsku, en létu józkuna sina nægja, og skilningur minn óx fljótt, eftir að ég var komin á sporið. Ég kom aftur til þessa ágæta fólks sumarið 1973, og þá gekk mér samræðan við þessa fornvini mina ágætlega, þótt þrettán ár væru liðin siðan ég sá þau og heyrði siðast. Sumarið 1967 lögðum við systir min i ítaliuferð. Veturinn áður hafði ég lært dálitið i spænsku, og gat bjargað mér með henni og öðru, en ensku tala ítalir yfirleitt alls ekki. Það er tilgangslaust að ætla að gera sig skiljanlegan itölskum almenningi á þvi máli. Arið 1970 fór ég með Pólýfón- kórnum til Graz i Austurriki, þar sem kórinn tók þátt i Evrópu- söngmóti. Það var ákaflega gam- an og dýrmæt reynsla, sem við fengum. Við fluttum þar bæði okkar eigin tónleika, sem við héldum i dómkirkjunni i Graz, en auk þess tókum við þátt i söng með tvö hundruð manna kór. Verkið, sem við sungum, höfðum við, pólýfónfólk, aldrei séð áður, en við lærðum það á viku og gát- um sungið það með. Það var nýstárlegt og gaman að sitja á veitingahúsi innan um fólk af ýmsum þjóðernum, en allir sungu sama lagið og á sama tungumálinu. Árið 1973 fór Pólýfónkórinn i annað ferðalag, en að þessu sinni til þess að láta taka söng sinn upp á plötu i Sviþjóð. Voru þar á ýmis lög, sem við höfðum sungið áður hér heima. Við sungum i Stokk- hólmi, og svo aftur i Kaupmanna- höfn, og alls staðar var okkur vel tekið, og fengum yfirleitt góða dóma. Allar þessar ferðir hafa verið mjög lærdómsrikar og skildu mikið eftir, að minnsta kosti hjá mér. Ég hef búið að þeim siðan. //Ef hóstinn sækir svo fast á, aö...." — Við megum ekki alveg gleyma að tala um þá tómstunda- iðju þina, sem frægust er og flest- ir þckkja, þularstarfið hjá sjónvarpinu. — Já, liklega er bezt að minn- ast eitthvað á það. Ég hóf störf þar i byrjun nóvembermánaðar 1970, og er þvi búin að gera þetta i rúm fjögur ár. — Er gaman að þessu? — Það er alis ekki leiðinlegt, miklu fremur hið gagnstæða. — Fannst þér ekki neitt erfitt að sitja þarna, vitandi alla glápa á þig? — Satt að segja man ég ekki glöggt hvað ég hugsaði fyrstu skiptin, en ég held þó, að ég hafi ekki verið svo mjög að velta vöngum yfir þvi, hvort horft væri á mig eða ekki. Og þó að þetta sé auðvitað staðreynd sem ég veit, þá hugsa ég ekki mikið um hana. Ég er með allan hugann við að vanda mig og reyna að gera ekki mjög margar vitleysur. — Er ekki óþægilegt að vinna i þessum sterku ljósum? — Nei, það þarf.ekki að vera neitt óþægilegt. Við erum i sér- stöku herbergi, þularherberginu, og þurfum ekki að vera þar nema rétt á meðan við erum fyrir framan myndavélina. Þegar við höfum lokið okkar verki og búið er að útiloka öll hljóð frá okkur, getum við farið þangað sem aðal- stjórnin fer fram, og þar eru ekki svona sterk ljós. — Eruð þið ekki ósköp fegin að geta yfirgefið þularklefann stund og stund? — Jú, það er ósköp gott að geta rétt úr sér og hresst sig á kaffi- sopa til þess að hreinsa röddina, svo að maður verði ekki mjög rámur i næstu kynningu. — En hvað gerist nú, ef þið þurfið að hósta eða ræskja ykkur á meðan þið eruð að lesa dagskrá eða kynna næsta atriði? — Ef hóstinn sækir svo fast á, að ekki er nokkur leið til þess að bæla hann niður verður hann að fá að koma, og þeðer engin leið til þess að fela hann. Maður verður þá ofur einfaldlega að hósta, eða ræskja sig, og biðja svo afsökunar strax á eftir. — Og þú getur hugsað þér að lialda þessari vinnu áfram og láta alla þjóðina horfa á þig, þótt þú sjáir ekki þá, sem horfa? — Já, já, mér likar þetta auka- starf mitt vel. Það er fremur skemmtilegt, samstarfsfólkið er ljómandi gott og andinn á vinnu- staðnum sömuleiðis. Ég er ánægð og uni vel þeirri tilbreytingu að skreppa i sjónvarpið einu sinni i viku eða svo. — V'S. lokkur Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.