Tíminn - 16.03.1975, Blaðsíða 31
Sunnudagur 16. marz 1975.
TÍMINN
31
HLJÓMPLÖTUDÓMAR
DÓMARI: GUNNAR GUNNARSSON
★ ★ ★ ★+ ★
TI IE ERIC BURDON BAN
I
EIN AF þeim stjörnum, sem um
þessar munir skin bjartast á
poppheimi Bandarikjanna er
söngkonan Linda Ronstandt, en
hún hóf feril sinn, sem sólósöng-
kona árið 1968, og hefur gefið út
fimm LP-plötur. Tvær siðustu
plötur hennar hafa fengið
beztar móttökur, — og þó sér-
staklega sú nýjasta „Heart Like
AWheel” sem hafnaði I fyrsta
sæti LP-listans i Bandarikjun-
um fyrir stuttu, — og lagið
„You’re No Good”, sem er af
plötunni hefur einnig náð fyrsta
sæti vinsældarlistans þar i
landi.
A Heart Like A Wheel blandar
Linda saman soft-rokki og
country-rokki á afar
smekklegan hátt. A plötunni
er að finna þekkt lög eins og
„Park Land Of The Street” og
klassiska lagið „Willin’” ásamt
lögum eftir James Taylor,
Every Brothers og Hank
Williams.
Lindu til aöstoðar eru þekktir
úrvals hljóðfæraleikarar sem
ásamt Lindu sýna sinar beztu
hliðar.
ÞA ER Eric Burdon kominn á
kreik með nýja hljómsveit, er
hann nefnir The Eric Burdon
Band. Fyrir þá fáu, sem ekki
'þekkja Burdon þá var hann
söngvari i hljómsveitinni The
Animals, sem fræg var á sinum
tima m.a. fyrir lagið „The
House Of The Rising Sun.”
A þessari nýju plötu „Sun
Secret misþyrmir Burdon
mörgum gömlum og góðum
Animals-lögum, eins og t.d.
„When I Was Young” og „Ring
Of Fire” og fær dyggilegan
stuðning frá hávaðasamri og
leiðinlegri hljómsveit.
Ég fæ ómögulega skilið hvers
vegna maður eins og Burdon,
sem hefur yfirleitt gert mjög
góða hluti og er viðurkenndur
sem góður tónlistarmaður, skuli
geta sent frá sér aðra eins
hörmung, eins og þessi plata er,
— þvi miður.
Við skulum bara vona, að
Burdon sjái að sér og finni’
sjálfan sig aftur
Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar. Fremst á myndinni er Jakob
Magnússon, pianóleikari, þá kemur Halldor Pálsson,
saxófónleikari, Asgeir Óskarsson, trommuleikari, Ari Jónsson,
trommuieikari snýr hnakkanum i myndavélina, Pálmi Gunnars-
son, bassaleikari og fjærst okkur er hijómsveitarstjórinn
Gunnar Þórðarson. Tlmamynd G.E.
Poppjass í
Tónabæíkvöld
KLÚBB 32 efnir til popp-jass
kvölds I Tónabæ I kvöld en þar
mun jasshljómsveit Gunnars,
Þórðarsonar leika. Hljöm-
sveitin er sem kunnugt er að
halda af landi brott til hljóm-
leikahalds á Norðurlöndum, — i
sambandi við nokkurs konar
mótinælaaðgerðir gegn
Europevision — siinglaga-
keppninni, sem Öþarft er að
kynna.
Hljómsveit Gunnars Þórðar-
sonar skipa auk hans, Ari
Jónsson, trommur, Pálmi
Gunnarsson bassi, Jakob
Magnússon orgel, pianó,
Iialldór Pálsson, saxófónn og
Asgeir óskarsson trommur, en
sá siðastnefndi er ókominn til
landsins — ásamt félögum
sinum í Pelican.
Popp-jass-kvöldið i kvöld er
einstakt tækifæri, þvi að ósenni-
legt er að jass-hl jómsveit
Gunnars Þórðarsonar leiki
opinberlega saman aftur hér á
landi. Það er þvi ástæða til að
hvetja fólk til að fara I Tónabæ
og hlusta á góða tónlist í kvöld.
Góð bók er gott
veganesti
ungs fólks á
lífsbrautinni
Margir
munu gefa
Biblíuna í fermingar-
gjöf og þeim sem það gjöra
viljum við benda á/ að
Biblíuhandbókin er til þess
ætluð að auðvelda fólki lest-
ur Heilagrar ritningar og
öðlast dýpri skilning á inn-
taki hennar og boðskap.
Við höfum frá upphafi
sérhæft okkur í útgáfu handbóka
og heimildarrita, sem væru
handhæg og nauðsynleg
uppsláttarrit, þegar leitað er
skyndisvara um hin ólíklegustu
efni en auk þess ánægjuleg
samfelld lesning þeim,
sem gefa sér tíma með góðri
bók að loknu dagsverki.
LANDID ÞITT/ 1. og 2.
bindi eftir Þorstein Jó-
sepsson og Steindór
Steindórsson, veitir ó-
metanlegan fróðleik
um sögu og sérkenni
lands og þjóðar.
HEIMURINN ÞINN er
sambærilegt rit og
Landið þitt, en það
fjallar um allar þjóðir
og lönd heims. (sland
og íslendingar eru þar
ekki undanskildir.
LÖGBÓKIN ÞIN eftir
Björn Þ. Guðmunds-
son, borgardómara er
lögfræðihandbók fyrir
almenning. Hún snert-
ir flestar hliðar mann-
legra samskipta og
segir þér hver er réttur
þinn.
MANK YNSSAGAN SÖGÐ FRA
NÝJU SJÓNARHORNI í TVEIM BÓKAFLOKKUM
FRUMHERJAR
I LANDALEIT
er fyrsta bókin af 20
um könnunarsögu ein-
stakra heimshluta,
fagurlega skreyttar
litmyndum. Á þessu
ári bætast f imm bindi i
flokkinn, þar á meðal
bók um fund íslands.
Þýðandi þessara bóka
er Steindór Steindórs-
son.
Mannkynnssöguna má
skoða frá mörgum sjón-
arhornum. Eitt þeirra er
könnunarsaga veraldar-
innar, sem er í senn fróð-
leg og spennandi. Við höf-
um sent frá okkur tvo
nýja bókaflokka, sem
fjalla um könnunarsögu
jarðarinnar, annar ber
samheitið Frömuðir
landafunda en hinn Lönd
og landkönnun. Hér er i
rauninni mannkynssagan
sögð með nýjum hætti.
Þróunarsaga mannkyns-
ins er samofin sífelldri
leit þess að löndum og
leiðum og hver nýr áfangi
að baki þeirra er gerðust
frömuðir landafunda er
merkur kafli í mann-
kynssögunni. i þessum
nýju bókaflokkum er
saga mannsins rakin frá
nýju og spennandi sjónar-
horni.
MAGELLAN
og fyrsta hnattsigling-
in er fyrsta bókin um
frömuði landafunda.
Næsta bók fjallar um
Kaptein Scott og
hörmuleg örlög hans á
suðurskautinu og með-
al vætnaniegra bóka
má nefna Leif heppna,
Livingstone, Lewis og
Clark o.fl.
GÓÐ BÓK ER GULLI BETRI
ÖRN OG ÖRLYGUR
Vesturgötu 42 sími 25722
löarAOMHANOBOK FYSIR AtMENHINO
JAPHT SEM UIKA
Ynr9.»wn tpp»MKií.m KM.tvutif
W«*T «n*nrt*gfn
»,*f »« M.ltðMli »P'Jínmcun>.
t< vpp f ím' Vi