Tíminn - 16.03.1975, Page 12
12
3$
Fjármálaráðuneytið
14. marz 1975.
Auglýsing
um skoðun ökurita
Með tilvisun til fyrri auglýsingar ráðuneytisins um
skoöun ökurita i stýrishúsi í disilbifreiðum yfir 5 tonn
að eigin þyngd hefur ráðuneytið hlutast til um að
skoðunarmenn verði staddir á eftirtöldum stöðum og
tima dagana 17.—19. marz n.k. tii hagræðis fyrir við-
komandi bifreiðarstjóra.
Búðardalur
v/Kaupfélagið kl. 10-14 mánudagur 17. marz.
Stykkishólmur
v/Lögreglust. kl. 9-11 þriöjudagur 18. marz.
Ólafsvik
v/Lögreglust. kl. 14-18 þriðjudagur 18. marz.
Borgarnes
v/Bifreiðaeftirlit kl. 9-16 miðvikudagur 19. marz.
Skoðunarmaður verður ekki sendur aftur á framan-
greinda staði. Komi umráðamenn viðkomandi bif-
reiða þvi ekki við, aö láta skoða ökuritana á hinum.
auglýstu timum verða þeir að koma með bifreiðina eða '
senda ökuritann til V.D.O. verksjæðisins, Suðurlands-;
braut 16, Reykjavlk, fyrir 1. april n.k.
m
11
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTAL-
ANNA:
RITARI óskast á skrifstofu rikis-
spitalanna frá 1. april n.k. eða eftir
samkomulagi. Starfssvið vélritun
. og almenn skrifstofustörf.
Umsóknum ber að skila til skrif-
stofunnar fyrir 21. þ.m.
Umsóknareyðublöð fyrirliggjandi
á sama stað.
Reykjavik, 14. marz 1975.
SKRIFSTOFA
RÍKISSFÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍM111765
Menningartengsl íslands og Ráðstjórnar-
rikjanna:
Tónleikar og
þjóðdansasýning
i tilefni 25 ára afmælis MÍR i dag,
sunnudag, ki. 14.30 i samkomusal Mennta-
skólans við Hamrahlið
Efnisskrá:
Einsöngur, V. Gromadski bassi frá
Moskvu.
Einleikur á pianó, S. Zvonaréva.
Einleikur á balalæka B. Feoktistof.
Þjóðdansar, G. Sjein og V. Vibornof.
Kórsöngur, Karlakórinn Fóstbræður.
í upphafi samkomunnar flytja stutt
ávörp: Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra, S. Stúdentski vara-
sjávarútvegsráðherra Sovétrikjanna og
Margrét Guðnadóttir, prófessor.
öllum heimill ókeypis aðgangur meðan
húsrúm leyfir.
Stjórn MÍR.
TÍMINN
Myndin er úr Herbergi 213, eða Pétri mandólln eins og leikritið er lika kallað. Það eru fjórar af konunum
kringum Pétur, sem við sjáum hér: dóttirin (Guðrún Alfreðsdóttir), Stella ástkonan (Brynja Bene-
diktsdóttir), Dóra, ekkja Péturs (Sigrlður Þorvaldsdóttir) og Lovlsa móðir hans (Guðbjörg Þorbjarnar-
dóttir). Herbergið verður sýnt 118. sinn á sunnudagskvöld.
ÁTTA LEIKRIT Á FJÖLUAA ÞJÓÐLEIKHÚSSINS
Atta verk eru nú sýnd i Þjóð-
Ieikhúsinu, og er mjög óvenjulegt
að svo mörg leikrit séu samtimis
á verkefnaskránni. Öll þau leik-
rit, sem frumsýnd hafa verið á
leikárinu, eru enn sýnd við góða
aðsókn og hefur þvi verið ákveðið
að fresta frumsýningu á Þjóðnið-
ingi Ibsens, sem frumsýna átti I
lok mánaðarins. Verður leikritið
frumsýnt um miðjan maí. Það
verður flutt i leikgerð Arthurs
Miller og þýðingu Arna Guðna-
sonar. Leikstjóri er Baldvin
Halldórsson, leikmyndir gerir
Snorri Sveinn Friðriksson og
aðalhlutverkið, Stokkmann lækni
leikur Gunnar Eyjóifsson.
Æfingar standa nú yfir á Silfur-
túnglinu eftir Halldór Laxness og
verður það afmælissýning húss-
ins I tilefni 25 ára afmælisins 20.
april. Silfurtúnglið var frumflutt
á sviði Þjóðleikhússins fyrir rúm-
um tveimur áratugum og hefur
ekki verið leikið siðan. Höfundur-
inn hefur gert á þvi nokkrar
breytingar og setið æfingar en
leikstjórar eru Briet Héðinsdóttir
og Sveinn Einarsson. Leikmynd
gerir Sigurjón Jóhannsson, og
með helztu hlutverk fara Anna
Kristin Arngrimsdóttir (Lóa)
Erlingur Gislason (Feilan Ó.
Feilan), Róbert Arnfinnsson (Mr.
Peacock), Sigmundur örn Arn-
grímsson (Öli) og Ingunn Jens-
dóttir (Isa).
Um helgina er fimm sýningar i
Þjóðleikhúsinu, tvær á Karde-
mommubænum, sem hefur nú
verið sýndur yfir 40 sinnum og er
ekkert lát á aðsókn. Þá verður
ballettinn Coppelia sýndur en
hann hefur hlotið ágætar undir-
tektir, svo og leikritin Hvernig er
heilsan? eftir sænsku höfundana
Andersson og Bratt og leikrit
Jökuls Jakobssonar Herbergi 213,
sem sýnt er á litla sviðinu i kjall-
ara hússins.
Atorkusamar Akureyrarkonur:
Barnadeild F.S.A. fær stórgjafir
KVENFÉLAGIÐ Hlif á Akureyri,
sem hafði um tuttugu og tveggja
ára skeið rekið barnaheimilið
Pálmholt og slðan gefið Akur-
eyrarbæ það árið 1972, hefur af
miklum skörungsskap snúið sér
að þvl að styrkja barnadeild
fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri.
Árið 1973 gaf félagið barna-
deildinni vandaðan hitakassa,
svonefnda fóstru, einnig súrefnis-
mæli og ljósalampa, sem notaður
er við gulu i nýfæddum börnum.
Næsta ár gaf félagið deildinni
blóðþrýstingsmæli, sem gerir
kleift að mæla blóðþrýsting, jafn-
vel hjá fyrirburðum og sjúkling-
um i losti, sem annars hefur verið
erfitt að mæla blóðþrýsting hjá
með venjulegum mælum. Einnig
gáfu konurnar vökvadælu, sem
stjórnar nákvæmlega því magni
vökva, sem gefið er i æð á
ákveðnum tima.
Nýlega hefur deildin fengið
barnavöggur, upphitaðar með
ljósaperum, handa fyrirburðum,
sem ekki þurfa að dveljast i
lokuðum hitakassa með súrefnis-
gjöf.
Auk alls þessa hefur minn-
ingarsjóður Hlifar gefið barna-
deildinni þessi tvö ár vönduð leik-
föng, bækur og klukkur i sjúkra-
stofurnar.
Baldur Jónsson yfirlæknir hef-
ur af hálfu barnadeildarinnar
fært félaginu hinar beztu þakkir
fyrir þetta allt, og segir svo i bréfi
hans til þess um gjafirnar:
„Þetta er ómetanlegt fyrir
deildina að njóta stuðnings hinna
mætu félagskvenna. T'æki þessi
hafa þegar komið að góðu gagni
og skapa mikið öryggi við hjúkr-
un barnanna”.
MUNIÐ
ibúðarhappdrætti H.S.í.
2ja herb. ibúð að
verðmæti kr. 3.500.000.-
Verð miða kr. 250.
V _________/
Forystukonur úr kvenfélaginu Hllf, ásamt yfirlækni barnadeildar, for-
stjóra sjúkrahússins og hjúkrunarkonum með upphitaða vöggu, blóð-
þrýstingsmæli og fleiri tæki, sem konurnar hafa gefið.
SUMARDEKK Á
GÖMLU VERÐI
Yokohama
145 -13 Radial kr. 3.582-msk.
155 -13 Radial kr. 3.762-msk.
165 -13 Radial kr. 3.858-msk.
175-13 Radial
kr. 4.421-msk.
520-12-4 strigalaga
550-12-4 strigalaga
615-13-4 strigalaga
500/520-14-4 strigalaga
590-14-4 strigalaga
645-14-4 strigalaga
640-15-4 strigalaga
165/380-15-4 strigalaga
kr.3.294- msk.
kr.3.192- msk.
kr. 4.144- msk.
kr.4.158- msk.
kr. 4.129- msk.
kr.4.495- msk.
kr.5.332- msk.
kr. 5.321- msk.
Véladeild
Sambandsins
HJÓLBARÐAR
HÖFÐATÚNI 8
SÍMAR 16740 OG 38900 ,