Tíminn - 16.03.1975, Qupperneq 36

Tíminn - 16.03.1975, Qupperneq 36
36 / n>UN\ . Sunnudagur 16..mjarz 1975. Ályktun Kven- réttindafélagsins AÐALFUNDUR Kvenréttindafé- lags tslands, var haldinn 4. marz sl., og var þá samþykkt svohljóð- andi ályktun: Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir þeim áhuga á bættri stöðu kvenna, sem komið hefur fram i tilefni Alþjóölega kvennaársins 1975 og vonar að hann megi verða baráttumálum kvenna lyftistöng. A tslandi hafa konur að mestu öðlazt lagaiegt jafnrétti, þótt mikiö vanti á, að framkvæmd þeirra laga sé viðunandi. Benda má á, aö störf, sem nær eingöngu er sinnt af konum, eru undan- tekningarlitið lægra metin en þau störf, sem karlar eða bæði kynin gegna. Af þessu leiöir, að lægstu launaflokkarnir eru að mestu skipaðir konum. Möguleikar kvenna til starfsframa eru yfir- leitt mun minni en karla. Barátta kvenna hefur aukiö skilning á nauðsyn þess að koma til móts við þarfir fjölskyldunnar vegna gjörbreyttra þjóðfélags- hátta. Enn skortir þó mikiö á að konur fái jafna hvatningu og sömu aðstöðu og karlar til að velja sér lífsstarf. Kvenréttindafélag fslands, leggur áherzlu á þá meginstefnu félagsins, að i öllum lögum og reglum svo og framkvæmd þeirra, sé jafnrétti i heiðri haft svo takast megi að útrýma hvers konar misrétti einstaklinga. Viö stjórnarkjör á aðalfundin- um, baðst Guðný Helgadóttir, sem hefur verið formaður sl. 4 ár, eindregið undan endurkjöri. Guð- ný hefur átt sæti i stjórn félagsins rúma 2 áratugi og gegnt fjöl- mörgum trúnaðarstörfum fyrir félagiö. Formaöur var kosin Sól- veig ólafsdóttir. Sdlvaxtar fyrir kennara Dagana 15.-26. marz verður efnt til sérstaks sálvaxtarnám- skeiðs fyrir kennara, er nefnist: Mannúðleg menntun og sálar- sameining. Námskeiðinu stýra Ingibjörg Eyfells fóstra, og Geir V. Vilhjálmsson sálfræðingur, en þau hafa bæði dvalið árlega I Bandarlkjunum siðan 1970, og hafa kynnt sér sállækningar, hóp- lækningar, rannsóknir á vitund mannsins og ýmsar sálvaxtarað- ferðir á námskeiðum og ráðstefn- um. A námskeiðinu verða athugað- ar kenningar bandarisku mann- úðarsálfræðinganna Abraham Maslow og Carl Rogers, um sálvöxt, sjálfsbirtingu og annað, sem máli skiptir fyrir skólastarf og menntun. Námskeiðið er á mánudags- og miðvikudagskvöldum og á laugardagseftirmiðdögum á ofangreindu timabili. Hámarks- fjöldi þátttakenda er tólf manns og skal þátttaka tilkynnt i sima 25995. Hestamannafélagið Hörður Árshátíð félagsins veröur haldin að Fólkvangi, Kjalarnesi, laugardaginn 22. marz kl. 20.30. Verðlaunaafhending. Dans. Hljómsveit Gissurar Geirs. Aðgöngumiðar hjá Sveini á Bjargi, Teiti á Móum og Haraldi á Fremsta-Hálsi. SVALUR ^Þegar Pinta er frátalinn, ^ er ég einn og ég verð aö /Bíddu, Obero,VHvaö þálæknir,) ekki segja I Se*;ur hann > neitt strax . treyst okkur?| Læknir, ég verð að segja einhverjum frá Leyndarmái? Nei, bídduí 1-2 daga. Þú ert undir áhrifum sterkra lyfja, og myndir þvf segja jafnvel meira en þú vilt sjálfur. —-----i Eg skil að þú telur aðég tali af mér, ég treysti ykkur enn meir fyrir vikið. Komdu öiggi, nú höfum við YHvalurinn er tíma tilað “n lön6u heimsækia A hnrfin^ Pinta.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.