Fréttablaðið - 06.03.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 06.03.2005, Blaðsíða 1
HÁ BOÐ Í VÍÐIDALSÁ Tilboðin í leigu Víðidalsár fyrir næsta ár eru helmingi hærri en leigugreiðslur fyrir ána í dag. Talið er að leigan hækki úr rúmum þrjátíu milljónum í um það bil fimmtíu milljónir króna. Sjá síðu 2 ÁTJÁN PRÓSENTA HÆKKUN Kjara- samningur SFR og fjármálaráðuneytisins þýðir að lægstu laun verða 113 þúsund krónur á mánuði í maí á næsta ári. Formaður félagsins er sáttur við samninginn. Sjá síðu 2 HÚSLEIT Á KRÁM Starfsmenn Skatt- rannsóknarstjóra gerðu húsleit hjá á öðrum tug kráa og skemmtistaða í fyrrakvöld. Tugir manna tóku þátt í húsleitinni. Skattrann- sóknarstjóri segir að markmiðin með hús- leitunum hafi náðst. Sjá síðu 4 ÓTTAST MENGUNARSLYS Norsk yfirvöld óttast mengunarslys eftir að kviknaði í olíuflutningaskipi undan ströndum landsins. Flytja þurfti áhöfn skipsins á brott í þyrlum. Sjá síðu 2 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 Kvikmyndir 30 Tónlist 30 Leikhús 30 Myndlist 30 Íþróttir 20 Sjónvarp 32 SUNNUDAGUR DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG 6. mars 2005 – 63. tölublað – 5. árgangur BJARTVIÐRI FYRIR NORÐAN OG AUSTAN Litilsháttar súld öðru hvoru vestan til. Hiti víðast 3–8 stig. Sjá síðu 4 TÓNLEIKAR 140 ungmenni koma fram á tónleikum Skólahljómsveitar Kópavogs í Háskólabíói sem hefjast klukkan 14. Dag- skráin er fjölbreytt, meðal annars verk eftir Rossini og Queen. Dagblaðalestur á sunnudögum* 63% 54% *Landið allt skv. fjölmiðlakönnun Gallups, nóv. 2004. LÓÐAMÁL Menn buðu allt að 17,2 milljónir króna í lóðir fyrir einbýlis- hús í lóðaútboði fyrir þriðja áfanga í Norðlingaholti. Boðinn var út bygg- ingarréttur á fjórtán lóðum fyrir fjölbýlishús, raðhús og einbýlishús og bárust 885 tilboð frá 123 fyrir- tækjum og einstaklingum í lóðirnar. Ekki verður þó af því að borgar- yfirvöld fái rúmar 17 milljónir fyrir einstakar lóðir. „Ég ætla að falla frá þessu tilboði, það var aðeins of hátt,“ sagði Óli Þór Barðdal hjá Grandavör sem átti hæsta tilboðið í einbýlishúsalóðir. Nokkuð var um tilboð upp á tólf til fimmtán milljón- ir í einbýlishúsalóðir. Boðin eru töluvert hærri en í síðasta útboði. Hæsta tilboð í lóð fyrir tólf íbúða keðjuhús nam 111,4 milljónum króna, andvirði rúm- lega níu milljóna á íbúð. Hæst voru boðnar 120,5 milljónir í lóð þar sem byggja á samtengd tvíbýlis- hús með fjórtán íbúðum, tæpar níu milljónir á hús. Þá barst boð upp á 183 milljónir króna fyrir 27 til 30 íbúða fjölbýlishús og samsvarar það því að lóðarverð á hverja íbúð nemi sex til sjö milljón krónum. Helgi Hákon Jónsson í Eigna- kaupum er ekki í vafa um að þetta hátt lóðaverð geti leitt til verð- hækkana um allt höfuðborgar- svæðið, ekki síst þegar tekið er tillit til hás verðs í lóðaútboði í Garðabæ fyrir skemmstu. „Það segir sig sjálft að hærri lóðaverð þýða hærri fasteigna- verð,“ segir Helgi Hákon. „Svo er spurning: Hvað er upphaf og end- ir? Ef lóðirnar eru of dýrar þá ættu þær ekki að seljast.“ Stöðugar verðhækkanir hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu. „Þetta kjaftar upp verðið. Það hlýtur að koma að því að markaðurinn mettist,“ segir hann og kveðst merkja örvæntingu meðal sumra sem eru búnir að selja en eiga eftir að kaupa. - bþg STJÓRNMÁL Magnús Þór Hafsteins- son vann sannfærandi sigur í kosningu um embætti varafor- manns Frjálslynda flokksins. Hann fékk tæp 70 prósent at- kvæða en mótframbjóðandi hans, Gunnar Örlygsson, fékk rúm 30 prósent. Guðjón Arnar Kristjánsson var endurkjörinn formaður og Margrét Sverrisdóttir er áfram ritari en hvorugt þeirra fékk mót- framboð. Guðjón Arnar segir að barátta Magnúsar og Gunnars hafi verið góð og báðum til sóma. Hann hafði sjálfur lýst stuðningi við framboð Magnúsar en taldi ekki að það hafi haft úrslitaáhrif. Hins vegar skipti miklu að Margrét Sverrisdóttir ákvað að láta ekki undan þrýstingi þinggesta um að gefa kost á sér. Sjá síðu 2 MISKÁTIR Á KAFFI REYKJAVÍK Þeir Gunnar Örlygsson (t.v.) og Magnús Þór Hafsteinsson fengu fyrstir manna að vita um niðurstöðu kosningar milli þeirra um embætti varaformanns Frjálslynda flokksins. Magnús átti erfitt með að leyna gleði sinni á leið í þingsalinn enda fékk hann tæplega sjötíu prósent atkvæða. Tekin hús á Laugavegi Ekki eru allir á eitt sáttir um þá ákvörðun skipulagsyfirvalda að leyfa að tuttugu og fimm hús við Laugaveginn verði rifin. Hvað segja þeir sem eiga lifibrauð sitt undir þökum húsanna? SÍÐA 36 ▲ Liza Marklund: Vann að fataframleiðslu í 49 ár SÍÐA 24 ▲ Þórarinn Elmar Jensen: SÍÐUR 18 & 19 ▲ Bauð 17 milljónir í einbýlishúsalóð Tilboð í nýjar lóðir í Norðlingaholti eru mun hærri en í fyrri áföngum hverfisins. Verktakar bjóða andvirði tæpra sjö milljóna á hverja íbúð í fjölbýlishúsum. Sá sem hæst bauð í einbýlishús dregur tilboðið til baka. MÖGNU‹ TILBO‹ Á N†JUM VÖRUM Kaup 3.-6. mars Sí›asti dagurinn!í i i Fyrsta bók sænska höfundarins komin út á íslensku SÝRLANDSFORSETI Assad hét brotthvarfi hersins en útlistaði ekki hvernig það yrði. Sýrlandsher í Líbanon: Assad lofar brotthvarfi SÝRLAND, AP Bashar Assad, forseti Sýrlands, hét því í gær að draga hersveitir Sýrlendinga í Líbanon til líbansk-sýrlensku landamær- anna. Líbanskir stjórnarandstæðing- ar, sem vilja herinn burt, voru þó fullir efasemda og töldu orðalag forsetans svo loðið að engin leið væri til að skilja hvort herinn ætti að fara frá Líbanon eða að- eins í héruð landsins sem liggja að sýrlensku landamærunum. Assad sagðist myndu kalla herinn fyrst í Beekadal í Líbanon og síðan til landamæranna. ■ Mahmoud Abbas: Órói vegna veru Ísraela PALESTÍNA, AP Það kemst enginn friður á í borgum Palestínumanna á Vesturbakkanum fyrr en Ísrael- ar fara þaðan með herlið sitt, sagði Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar. Abbas hvatti Ísraela til að hefja aftur viðræður um brott- hvarf hersveita sinna frá fimm borgum á Vesturbakkanum. Ísra- elar hættu þátttöku í viðræðunum eftir sjálfsmorðssprengjuárás í Tel Aviv um síðustu helgi. Ísraelar segjast ekki taka nokkurn þátt í viðræðunum fyrr en Palestínumenn finna þá sem stóðu að árásinni og koma lögum yfir þá. Embættismenn hafa sak- að Abbas um að fara sér hægt í að handsama mennina sem bera ábyrgð á dauða fimm Ísraela. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L Átök um embætti hjá Frjálslyndum: Guðjón og Magnús endurkjörnir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.