Fréttablaðið - 06.03.2005, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 06.03.2005, Blaðsíða 19
SUNNUDAGUR 6. mars 2005 19 Glæsilegar páska- og vorferðir Kanarí 2.-18. mars - á Marbella Golf miðað við að 2 ferðast saman. Netverð á mann frá 49.900 kr. Benidorm 19.-31. mars - á Halley 60.180 kr. ef 2 ferðast saman Netverð frá 43.140* kr. Portúgal 17.-29. mars - á Alagoamar 70.115 kr. ef 2 ferðast saman Netverð frá 47.790* kr. Costa del Sol 8.-19. maí - á Santa Clara miðað við að 2 ferðast saman. Netverð á mann frá 53.700 kr. Alicante Páskar 19.-31. mars á mann Netverð - flugsæti 29.980 kr. Mallorca 18.-25. maí - á Pil Lari Playa 45.960 kr. ef 2 ferðast saman Netverð frá 38.435* kr. Innifalið: Flug, gisting og flugvallarskattar. *M.v. að 2 fullorðnir og 2 börn 2ja - 11 ára, ferðist saman. Plúsferðir • Hlí›asmára 15 • Kópavogur • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is Verð miðast við að bókað sé á netinu, ef bókað er í síma eða á skrifstofu bætast 2.000 kr. við hverja bókun. Bókaðu strax - besta Plúsferðaverðið á netinu! Bolli Kristinsson kaupmaður í Sautján er baráttumaður um bættan miðbæ en hann hefur rekið verslanir við Laugaveginn hátt í 30 ár. Verslunin Sautján hóf rekstur sinn árið 1976 við Laugaveg 46 og segir Bolli það ekki hafa verið boðleg húsa- kynni. „Það var erfitt að versla í þessu gamla húsnæði. Aðgengi var slæmt og aðstaða starfsfólks mjög bágborin. Þetta gerði það að verkum að áhugi minn vakn- aði á skipulagsmálum. Ég sá að það hlyti að vera hægt að sjá þetta betra,“ segir Bolli. Árið 1985 fór hann að vinna með Sigurði Gísla Pálmasyni að skipulagsmálum fyrir Kringl- una. Í gegnum það samstarf segist Bolli hafa kynnst mörgum góðum arkitektum og skipulags- mönnum og hann var fljótur að læra. „Mér fannst þetta mjög skemmtilegt. Ég hef verið áhugamaður um skipulagsmál síðan og tel mig vera mjög fljótan að sjá hvað betur megi fara í þeim efnum,“ segir hann. Gott að alast upp á Laugavegi Það er ekki að undra að Bolli hafi áhuga á Laugaveginum því þar bjó hann sem barn og flutti þang- að aftur þegar hann komst á full- orðinsár. „Laugavegurinn er kannski ekki besti uppeldisstaður í heimi en ég ólst þar upp og lærði bara að passa mig,“ segir hann og bætir við að það hafi verið svo mikið líf á Laugaveginum þegar hann var lítill. „Þeir sem muna eftir Laugaveginum þegar hann iðaði af mannlífi vilja endur- vekja þá stemningu. Því miður virðast húsafriðunarsinnarnir ekki skilja til hvers það þurfi uppbyggingu. Fólk hefur engan áhuga á að koma hingað niður eftir til að upplifa aðalverslunar- götuna sem Árbæjarsafnsgötu. Síðasta húsið sem ég byggði við Laugaveg er húsið númer 89, þar sem 17 Jeans er á götuhæðinni. Mér finnst það mjög fallegt borgarhús. Egill Helgason hefur kallað þennan byggingarstíl „Reykjavíkklassík“ og finnst mér það eiga vel við,“ segir hann og bendir á Laugaveg 42, Lauga- vegsapótek, Gamla bíó og Egils Jacobsens-húsið, sem nú hýsir skemmtistaðinn REX, en þau eru öll í sama byggingarstíl. „Ég myndi vilja sjá meira af húsum í þessum stíl í bland við litrík og falleg bárujárnshús. Saman myndi þetta spila skemmtilega sinfóníu.“ Kringlan borgar brúsann Bolli átti lengi vel húseignir við Laugaveg 51 og 42 en hann segir að hann hafi orðið að selja þær því það hafi ekki borgað sig að leigja þær út og reksturinn hafi verið rekinn með tapi. „Við erum með níu verslanir í Kringlunni og eina í Smáralind en okkur langar gríðarlega mikið að opna fleiri búðir hérna við Laugaveg- inn. Verslanir eins og Kultur og Karen Millen ættu vel heima við Laugaveginn. Eins og staðan er núna er hins vegar enginn grundvöllur fyrir því vegna þess að það er ekki til boðlegt hús- næði.“ Bolli segir að peningarnir í rekstri verslana hans komi úr Kringlunni en hjartað slær hins vegar í miðbænum. „Ég væri löngu orðinn gjaldþrota ef ég væri bara með verslun við Laugaveginn. Húsafriðunar- fólkið verður að fara að skilja að verslun á þessari götu gengur mjög erfiðlega og er haldið uppi af einyrkjum sem vinna 12, 14 tíma á sólarhring. Undanfarin ár hafa fullt af verslunum yfirgefið miðbæinn, til dæmis TopShop, Tékkkristall og Cosmo. Við telj- um þetta vera aðalverslunargötu borgarinnar og önnur eins gata verður ekki byggð hvorki í Kópavogi, Garðabæ eða Hafnar- firði. Það verður annaðhvort þessi gata eða engin gata. Ef húsafriðunarfólkið heldur svona áfram verður engin verslunar- gata og bara örfáar búðir hér í einhverju hoki,“ segir Bolli sem vill fara að sjá breytingar. „Framkvæmdirnar á Lauga- veginum mega alveg gerast hratt. Það skiptir þó mestu máli að þær gerist vel og fallega. Við verðum að setja miklu meiri kröfur á arkitekta, borgarskipu- lag og þá aðila sem standa vörð um það að hér verði byggð falleg miðborgarhús. Í framhaldinu af því þurfum við að huga betur að bílastæðamálum. Það eru um 800 manns að flytjast búferlum í Skuggahverfið og tónlistarhúss- framkvæmd í bígerð. Það er því mjög auðvelt að sjá fyrir sér að Reykjavík gæti orðið gjörbreytt borg sem við gætum verið stolt af.“ Vill búa í fegurri borg Bolli hefur líka verið talsmaður þess að fá meira líf í Hljómskála- garðinn og að byggja við Sund- höll Reykjavíkur. Til þess hefur hann fengið arkitekta til að teikna upp hugmyndir sínar og hefur hvergi verið til sparað. „Ég hef bara gaman að þessu. Það er svo miklu betra að sýna hlutina myndrænt heldur en tala um hlutina,“ segir Bolli. Hann segist þó alls ekki vera mikill sundmaður þó hann hafi lært að synda í Sundhöllinni. „Mér finnst þessi græni grasbali sunnan- megin við Sundhöllina, sem ekk- ert er notaður, tilvalinn fyrir úti- laug og baðstæði. Það er fárán- legt að fólk sem býr í miðbænum þurfi að fara upp í Árbæ eða í Laugardalinn til að fara í sund undir berum himni.“ Aðspurður um hvort eitthvað sé að gerast í þessum sundlaugarmálum segist hann lítið vita. „Út af fyrir sig finnst mér það voða skrítið því allir tóku svo vel í þessa hug- mynd enda myndi þetta auka mannlífið í hverfinu. Ég veit ekkert hvað borgaryfirvöld eru að gera. Mér finnst að þau eigi að hrinda þessu í framkvæmd,“ segir hann og bætir við að Reykjavík sé besta borg í heimi, hann vilji bara gera hana fallegri. ■ Laugavegurinn á ekki að vera Árbæjarsafn BOLLI KRISTINSSON Í 17. Hefur unnið að málefnum miðbæjarins af mikilli hugsjón um árabil. Hann vill sjá fleiri byggingar í þessum stíl við Laugaveginn en þetta hús reisti hann árið 1989. Bolli Kristinsson kaupmaður í Sautján er mikill fagurkeri og hefur lagt sitt á vogarskálarnar til að gera miðbæ Reykjavíkur fallegri. Hann vill sjá meiri uppbyggingu við Laugaveginn áður en öll verslun deyr í hjarta borgarinnar. Við teljum þetta vera aðalverslunar- götu borgarinnar og önnur eins gata verður ekki byggð hvorki í Kópavogi, Garðabæ eða Hafnarfirði. Það verður annaðhvort þessi gata eða engin gata. ,, FRÉTTAB LAÐ IÐ /TEITU R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.