Fréttablaðið - 06.03.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.03.2005, Blaðsíða 2
2 6. mars 2005 SUNNUDAGUR Tilboð opnuð í útleigu Víðidalsár: Tugmilljóna hækkun milli ára VEIÐI „Þetta eru tilboð upp á fimm- tíu prósenta hækkun frá því sem nú er,“ segir Ragnar Gunnlaugsson á Bakka, formaður veiðifélagsins sem á Víðidalsá, um tilboðin sem bárust í leigu árinnar næsta ár. Gera má ráð fyrir að tilboðin nú hljómi upp á um fimmtíu milljónir króna. Ragnar vildi ekki nefna ákveðna tölu, sagði að stjórnin ætti eftir að leggjast yfir tilboðin og jafnvel fá einhverjar skýringar á þeim, en sagði þó að þessi tala væri ekki fjarri lagi. Ragnar segir hækkunina ekki koma á óvart. Þeir sem hafa ána á leigu hafi boðið í áframhaldandi leigu árinnar í janúar og það tilboð hafi slagað upp í þau tilboð sem hafi borist núna. „Menn hafa hækkað sig fremur en hitt.“ Þegar Ragnar er inntur eftir ástæðum fyrir hærri tilboðum vísar hann til þess að veiði hafi verið mjög góð síðasta sumar. „Hér hafa verið mörg léleg sumur undanfarið en margar húnvetnsku árnar komu vel út síðasta sumar.“ - bþg Nýr kjarasamningur SFR: Lágmarkslaunin verða 113 þúsund á mánuði SAMNINGAR Laun félaga í SFR – stéttarfélagi í almannaþágu hækka um átján prósent sam- kvæmt nýgerðum samningi við fjármálaráðuneytið. Samningur- inn verður undirritaður næsta miðvikudag og mun gilda aftur- virkt frá 1. febrúar síðastliðnum til 30. apríl 2008. Jens Andrésson formaður SFR var nokkuð sáttur við samkomu- lagið sem náðist klukkan hálf sex í gærmorgun. Með samningnum er tryggt að lágmarkslaun fari ekki undir 113 þúsund krónur á mánuði eftir 1. maí 2006 og einnig felur hann í sér hærri orlofsuppbót. Þar sem nýi samn- ingurinn náði ekki að leysa þann gamla af hólmi á tilsettum tíma fær launafólk 20 þúsund króna eingreiðslu. Í svokallaðri HASLA-könnun sem félagsvísindadeild H.í. gerði fyrir heildarsamtök opinberra starfsmanna kom fram „óútskýr- anlegur” launamunur kynjanna. Nú stendur til að gera úttekt á málinu í samvinnu við jafnréttis- ráð til að eyða því óútskýranlega og bregðast svo við því með úr- bótum í maí 2006. Ári síðar fer fram endurskoðun og ráðist verður í nánari úrbætur. – jse Margrét vildi ekki í varaformanninn Magnús Þór Hafsteinsson vann öruggan sigur í varaformannskosningu á þingi Frjálslynda flokksins. Margir þingfulltrúar vildu kjósa Margréti Sverrisdóttur, framkvæmdastjóra flokksins, en hún gaf ekki kost á sér. STJÓRNMÁL Magnús Þór Hafsteins- son vann öruggan sigur á Gunnari Örlygssyni í kosningu um vara- formannsembættið á landsþingi Frjálslynda flokksins í gær. Tæp- lega 140 greiddu atkvæði og fékk Magnús Þór 70 prósent gildra at- kvæða. Formaðurinn Guðjón Arnar Kristjánsson var einnig endur- kjörinn en enginn bauð sig fram gegn honum. Sömu sögu er að segja um Margréti Sverrisdóttur, ritara flokksins. Mikil spenna var í loftinu á Kaffi Reykjavík fram eftir degi í gær. Í upphafi landsþings var ljóst að töluverður hópur fundar- manna vildi hvorki Magnús Þór eða Gunnar í embætti varafor- manns og því hófst undirskriftar- söfnun til stuðnings Margréti. Þegar óskað var eftir tilnefning- um í embætti varaformanna í gær nefndi fjöldi manna nafn Margrétar en í stuttri ræðu af- þakkaði hún að vera tekin til greina í varaformannsembættið hún gaf hins vegar til kynna að hún ætti hugsanlega eftir að leita eftir þessum stuðningi síðar. „Ég tel mig núna vera í mjög sterkri stöðu en eins og í pottinn er búið þá sækist ég ekki eftir emb- ætti varaformanns. Mér þætti hins vegar vænt um að eiga ykkur að þegar ég gef kost á mér til trúnað- arstarfa fyrir flokkinn í framtíð- inni,“ sagði hún við þinggesti. Um fimmtíu þinggestir höfðu undirritað áskorun um að Margrét gæfi kost á sér og sjö at- kvæðaseðlar í varaformannskjör- inu báru nafn hennar, auk þess sem um fjörutíu þinggestir tóku ekki þátt í kosningunni þegar í ljós kom að Margrét gæfi ekki kost á sér. Gunnar Örlyggson segir niður- stöðu kosninganna ekki hafa kom- ið sér á óvart. „Ég átti von á því að tapa þessu kjöri, alveg sérstak- lega eftir að formaðurinn lýsti því yfir í upphafi baráttunnar að hann tæki afstöðu með Magnúsi,“ segir Gunnar en tekur fram að hann virði afstöðu Guðjóns Arnars. „Ég held að það mikla persónufylgi sem okkar formaður nýtur hafi ráðið úrslitum,“ segir Gunnar. „Að sjálfsögðu skiptir stuðn- ingur Guðjóns Arnars mjög miklu máli. Við höfum alltaf átt vel saman alveg frá fyrstu stundu,“ segir Magnús Þór Hafsteinsson. Hann kvaðst mjög þakklátur fyrir stuðninginn og sagði að nú þyrfti að skoða hvernig hægt væri að koma til móts við það sjónarmið Gunnars, sem hann lagði upp í kosningabaráttuna með, að Frjáls- lyndi flokkurinn ætti að færast lengra til hægri. thkjart@frettabladid.is GANGA FYRIR GÍSL Ættingjar sænsks ríkisborgara sem rænt var í Írak og stjórnmálamenn efndu til fjöldagöngu í Svíþjóð til að þrýsta á um lausn hans. Minas Ibrahim al-Yousifi, bjó um nokk- urra ára skeið í Svíþjóð en var rænt eftir að hann sneri aftur til Íraks og lausnargjalds krafist. VARÐ UNDIR JARÐÝTU Austur- rískur fornleifafræðingur beið bana þegar hann varð undir jarð- ýtu við fornleifauppgröft í Salz- burg. Maðurinn vann við upp- gröft á rústum frá tímum Róm- verja en þegar jörðin undir ýt- unni gaf sig grófst hann undir henni. ELDUR Í SKIPINU Óttast er að olía leki úr skipinu og skaði lífríki við ströndina. Eldsvoði: Kviknaði í olíuskipi NOREGUR Þyrla þurfti að bjarga áhöfn norsks olíuflutningaskips eftir að eldur kom upp í því nokkra kílómetra undan strönd Noregs. Eldurinn blossaði upp í vélar- rúmi skipsins og fékk áhöfn skips- ins, 28 Indverjar, ekkert við eld- inn ráðið. Óttast er að olía kunni að leka úr skipinu og valda miklum skaða á lífríki sjávar. Norska ríkisútvarpið greindi frá því í gærkvöldi að skip- stjóri olíuflutningaskipsins Fjord Champion hefði aldrei sent út neyðarkall heldur einungis varað við því að skipið ætti við vanda- mál að stríða. Tilkynningaskyldan uppgötvaði hins vegar hvað var á seyði og fyrirskipaði aðgerðir. ■ Skotið á blaðamann: Töldu sig úr hættu ÍTALÍA, AP „Við töldum hættuna að baki eftir að búið var að bjarga mér. Þess í stað lentum við allt í einu í skothríð,“ sagði Giuliana Sgrena blaðamaður sem haldið var í gísl- ingu í mán- uð í Írak. B a n d a - rískir her- menn skutu á bíl sem hún var í eftir að hafa verið leyst úr gísling- unni. Leyni- þ j ó n u s t u - maður sem b j a r g a ð i henni lést af skotsárum og Sgrena og tveir til viðbótar særðust í skotárásinni. Hermennirnir óttuðust að bíl- sprengjuárás væri í aðsigi og skutu því á bílinn. Bandarísk stjórnvöld hafa heitið rannsókn á atvikinu. ■ Holtasmára 1 • 201 Kópavogur Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309 Netfang: langferdir@langferdir.is Heimasiða: www.langferdir.is Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00 • Flug á sólarströnd með viðkomu í Kaupmannahöfn. • Kynntu þér einstakt vortilboð Netklúbbs Iceland Express og á heimasíðu okkar, www.kuoni.is. • Sætaframboð takmarkað. - ein stærsta leiguflugs-ferðaskrifstofa á Norðurlöndum. Apollo hefur numið land! Innifalið: Flug milli Íslands og Kaupmannahafnar með Iceland Express, hótel í Kaupmannahöfn, vikupakki með Apollo með gistingu í tvíbýli, ferðir til og frá flugvelli á áfangastað, þjónusta danskra fararstjóra og allir flugvallarskattar. Verð frá 55.995 kr. á mann með öllum sköttum Nýjar víddir í sólarferðum í samstarfi við Langferðir og Iceland Express. draCretsaM udnuM !aninusívá aðref SPURNING DAGSINS Magnús, ætlarðu að fá þér rottu sem gæludýr? Nei, líklega ekki í bili en örugglega er margt vitlausara. Ég líki nú ekki saman kostnaðinum við að eiga rottu sem gæludýr og hross. Hins vegar hef ég alltaf svolítið samviskubit yfir því hvað mannkynið hefur hugsað hatursfullt til þessara litlu dýra. Magnús Skarphéðinsson er þekktur fyrir dýra- vernd. Í Fréttablaðinu í gær var frétt af konu sem er byrjuð að rækta rottur sem gæludýr. HLJÓÐLÁT BLESSUN Páfinn veitir kaþólikkum hljóðláta blessun út um glugga herbergis síns á Gemelli-sjúkrahúsinu í Róm í dag. Jóhannes Páll II er enn að jafna sig eftir uppskurð sem hann gekkst undir fyrir rúmri viku. ■ EVRÓPA ■ EVRÓPA ■ NORÐURLÖND VÍÐIDALSÁ Í ár eru greiddar rúmar þrjátíu milljónir fyrir leigu árinnar en á næsta ári má gera ráð fyrir að leigan nemi nær 50 milljónum króna. FRÉTTAB LAÐ IÐ /KÁR I JÓ N ASSO N JENS ANDRÉSSON Formaður SFR er sáttur við samninginn. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I AFTUR TIL ÍTALÍU Sgrena var borin særð út úr flugvélinni sem flutti hana heim. FAGNAR SIGRI MEÐ FORMANNINUM Magnús Þór Hafsteinsson vann öruggan sigur í kosningu í embætti varaformanns Frjáls- lynda flokksins. Gunnar Arnar Kristjánsson var endurkjörinn formaður. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.