Fréttablaðið - 06.03.2005, Blaðsíða 56
HANDBOLTI Flestir leikmanna
Lemgo voru fjarri sínu besta í
leiknum og liðið mátti í raun
þakka fyrir að tapa ekki stærra.
Logi þarf aftur á móti ekki að
skammast sín fyrir frammi-
stöðuna enda héldu hann og Flori-
an Kehrmann Lemgo á floti í
leiknum lengst af.
„Þetta var án efa okkar léleg-
asti leikur í langan tíma. Það
small ekkert hjá okkur og menn
voru að berjast hver í sínu horni.
Við náðum engum takti í okkar
leik,“ sagði Logi í samtali við
Fréttablaðið skömmu eftir leik.
Logi var keyptur til félagsins
sem hornamaður en sökum
meiðsla hefur hann leikið síðustu
leiki í skyttustöðunni og staðið sig
mjög vel. Hann vildi ekki gera of
mikið úr eigin frammistöðu í
leiknum.
„Ég er ekki nógu ánægður með
minn hlut í leiknum. Mig langaði
að vinna þennan leik. Koma til
leiks óþekktur strákur í skyttu-
stöðunni og gera góða hluti. Mark-
vörður þeirra var okkur, og mér,
ansi erfiður. Ég gafst samt aldrei
upp en því miður gáfust sumir fé-
laga minna upp. Það er sorglegt á
heimavelli fyrir framan 4000
manns. Það er hræðilegt að þessi
leikur skyldi sýndur í sjónvarpinu
heima því hann gefur ekki rétta
mynd af styrkleika liðsins,“ sagði
Logi nokkuð léttur enda ávallt
stutt í jákvæðnina hjá stráknum.
Heimavöllur Celje er einhver
mesta gryfja í Evrópu og þar
tapar liðið ákaflega sjaldan. Þeir
eru því ekki margir sem telja
Lemgo eiga möguleika á að kom-
ast í undanúrslit keppninnar en
Logi er ekki einn þeirra.
„Þetta er ekki búið. Vissulega
er verkefnið erfitt þar sem þetta
eru meistararnir á þessum rosa-
lega heimavelli. Aftur á móti gekk
ekkert upp hjá okkur í þessum
leik og lykilmenn voru fjarri sínu
besta. Við eigum því mikið inni
fyrir síðari leikinn og ef heppnin
fer í lið með okkur getur allt gerst
í seinni leiknum,“ sagði Logi
Geirsson. henry@frettabladid.is
LOGI GÓÐUR Landsliðsmaðurinn Logi Geirsson átti fínan leik með Lemgo gegn Celje
Lasko í gær og skoraði sex mörk. Hann er bjartsýnn fyrir seinni leikinn þótt Lemgo hafi
tapað heimaleiknum með fjórum mörkum. FRÉTTABLAÐIÐ/TOMMY HOLL
Þetta er ekki búið
Logi Geirsson er ekki búinn að gefast upp þótt Lemgo hafi tapað með fjórum
mörkum, 29-33, á heimavelli gegn Evrópumeisturum Celje Lasko í Meistara-
deildinni. Hann telur Lemgo geta unnið síðari leikinn í Slóveníu.
28 6. mars 2005 SUNNUDAGUR
> Við furðum okkur á ...
... framkomu Valsarans Baldvins Þorsteins-
sonar sem hætti við skot í hraðaupphlaupi
undir lok leiks Vals og Þórs í DHL-deildinni
og ákvað þess í stað að gera
lítið úr andstæðingnum og
troða boltanum í körfu hjá
blaðamannaskýlinu. Ótrúleg
uppákoma. Baldvin fékk rautt
spjald fyrir framkomuna.
sport@frettabladid.is
> Við hrósum ...
... landsliðsmanninum Loga Geirssyni sem
hélt fána íslenskra handboltamanna hátt á
lofti með Lemgo gegn Evrópumeisturum
Celje Lasko í
Meistaradeildinni í gær.
Logi lék mjög vel í
skyttustöðu og sem
miðjumaður og skoraði
sex glæsileg mörk en
því miður spiluðu
fáir félaga hans eins
vel í leiknum.
Aðalleikur dagsins
KR - Þróttur
Fótboltinn er farinn að rúlla af alvöru og
þessi slagur Landsbankadeildarliðanna
er áhugaverðasta viðureign dagsins.
Liðin mætast kl. 19.00 í Egilshöll.
60
SEKÚNDUR
Hvor er betri þjálfari, þú eða
Valur bróðir þinn? Ég
Hvort er sætara að vinna,
Njarðvík eða Grindavík? Jafnt
Hvaða lið myndir þú aldrei
þjálfa? Lakers
Hver er besti íslenski leik-
maðurinn í Intersportdeildinni?
Margir mjög góðir
Hver er besti erlendi leikmaður-
inn í Intersportdeildinni? Frábær
spurning
Hver er besti körfuboltamaður
allra tíma? Larry Bird
Kók eða pepsí? Kók
Kaffi eða te? Kaffi
Sóma eða júmbó samlokur?
Sóma
Nike eða Adidas? Nike
Er glasið hálffullt eða hálftómt?
Bæði
Bjór eða rauðvín? Rauðvín
Íslandsmeistari með Keflavík
eða Norðurlandameistari
með landsliðinu? Norðurlanda-
meistari
Manchester United eða Arsenal?
Liverpool
Boston eða Lakers? Boston
MEÐ SIGGA
INGIMUNDAR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
3 4 5 6 7 8 9
Sunnudagur
MARS
■ ■ LEIKIR
12.00 ÍA og ÍBV mætast á
Akranesvelli í Faxaflóamóti kvenna í
fótbolta.
14.30 ÍBV og Þór mætast í
Reykjaneshöll í 1. riðli A-deildar
deildabikars karla í fótbolta.
15.00 Fram og Völsungur mætast í
Egilshöll í 2. riðli A-deildar
deildabikars karla í fótbolta.
17.00 Breiðablik og Fylkir mætast
í Egilshöll í 1. riðli A-deildar
deildabikars karla í fótbolta.
17.00 Breiðablik og Haukar
mætast í Fífunni í Faxaflóamóti
kvenna í fótbolta.
17.15 Hvöt og KS mætast í
Boganum í Powerade-mótinu í
fótbolta.
19.00 KR og Þróttur mætast í
Egilshöll í 2. riðli A-deildar
deildarbikars karla í fótbolta.
19.15 Víkingur og HK mætast í
Víkinni í DHL-deild karla í handbolta.
19.15 FH og Stjarnan mætast í
Kaplakrika í 1. deild karla í
handbolta.
19.15 Valur og Ármann/Þróttur
mætast í Valsheimilinu í 1. deild
karla í körfubolta.
21.00 Leiknir R. og Árborg mætast
í Egilshöll í 2. riðli B-deildar
deildarbikars karla í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
09:45 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn.
11.40 Spænski boltinn á Sýn. Út-
sending frá leik Valencia og Real
Madrid í spænsku 1. deildinni í fót-
bolta.
12.00 Enski boltinn á Skjá einum.
Bein útsending frá leik WBA og
Birmingham í ensku úrvalsdeildinni
í fótbolta.
12.50 Formúla 1 á RÚV. Útsending
frá kappakstrinum í Melbourne í
Ástralíu.
13.50 Ítalski boltinn á Sýn. Út-
sending frá leik Roma og Juventus í
ítölsku A-deildinni í fótbolta.
15.20 EM í frjálsum íþróttum inn-
anhúss á RÚV. Bein útsending frá
EM í frjálsum íþróttum innanhúss í
Madríd.
15.50 Meistaradeildin í hand-
bolta á Sýn Útsending frá leik
Lemgo og Celje í meistaradeildinni í
handbolta.
16.00 Enski boltinn á Skjá einum.
Bein útsending frá leik Everton og
Blackburn í ensku úrvalsdeildinni í
fótbolta.
19.35 Bandaríska mótaröðin í
golfi á Sýn. Mánaðarlegur þáttur um
bandarísku mótaröðina í golfi.
20.30 NBA-boltinn á Sýn. Bein út-
sending frá leik Sacramento Kings
og Detroit Pistons í NBA-deildinni í
körfubolta.
21.30 Helgarsportið á RÚV.
23.30 Ítalski boltinn á Sýn. Út-
sending frá leik Roma og Juventus í
ítölsku A-deildinni í fótbolta.
LEIKIR GÆRDAGSINS
Meistaradeild, handbolti
LEMGO–CELJE LASKO 29–33
Mörk Lemgo: Kehrmann 8, Logi Geirsson 6,
Zerbe 4, Schwarzer 4, Binder 4, Baumgartner 1.
Mörk Celje: Rutenka 9, Koksharov 8/4, Kozomara
5, Natek 5, Zorman 3, Rumen 1, Mlakar 1.
CIUDAD REAL–FOTEX VESZPREM 29–22
Mörk Ciudad: Dzomba 7/5, Zaky 6/1, Dushje-
baev 5, Entrerrios 3, Ólafur Stefánsson 2, Kall-
mann 2, Pajovic 1.
Mörk Fotex: Lazarov 4, Perez 4, Eklemovic 4,
Gulyas 3, Gyula 3, Ivancsik 3, Diaz 1.
KIEL–BARCELONA 30–25
Mörk Kiel: Ahlm 6, Pettersson 6/3, Lövgren 4,
Hagen 4, Preiss 3, Lundström 3, Pungartnik 1.
Mörk Barcelona: Skrbic 9, Romero 5, Nagy 3,
Jeppesen 2, Hernandez 2, Svizej 1, O´Callaghan 1
DHL-deild karla
ÍR–KA 35–32
Mörk ÍR: Hannes Jón Jónsson 7, Ragnar Helga-
son 7, Ingimundur Ingimundarson 6/1, Bjarni
Fritzson 6/1, Fannar Þorbjörnsson 4, Tryggvi
Haraldsson 2, Karl Gunnarsson 1, Ólafur
Sigurjónsson 1, Hafsteinn Ingason 1.
Mörk KA: Bjartur Máni Sigurðsson 7, Halldór
Sigfússon 7/3, Ragnar Snær Njálsson 5, Jónatan
Magnússon 4, Andri Snær Stefánsson 3, Sævar
Árnason 3, Magnús Stefánsson 1, Þorvaldur
Þorvaldsson 1, Nikola Jankovic 1.
ÍBV–HAUKAR 30–25
Mörk ÍBV: Tite Kalandadze 8, Samúel Árnason 6,
Robert Bognar 5, Sigurður Stefánsson 4, Kári
Kristjánsson 3, Björgvin Rúnarsson 2, Zoltan
Belanyi 2.
Mörk Hauka: Ásgeir Örn Hallgrímsson 6, Jón K.
Björnsson 5, Andri Stefan 4, Þórir Ólafsson 4,
Vignir Svavarsson 3, Sigurður Valsson 1, Matthías
Árni Ingimarsson 1.
STAÐAN:
HAUKAR 11 6 1 4 341-302 13
HK 10 6 0 4 316-297 12
ÍR 11 6 0 5 340-338 12
VALUR 11 6 0 5 297-305 12
KA 11 4 2 5 330-333 10
ÍBV 11 5 1 5 330-315 11
VÍKINGUR 10 4 0 6 278-288 8
ÞÓR 11 4 0 7 313-347 8