Fréttablaðið - 06.03.2005, Blaðsíða 70
42 6. mars 2005 SUNNUDAGUR
Davíð úr leik
Davíð Smári Harðarson féll úr
keppni í undanúrslitum Idol –
Stjörnuleitar á föstudagskvöld.
Þema kvöldins var níundi áratug-
urinn og flutti Davíð Smári lögin
Take on me með A-ha og Easy með
Commodores. Hann átti í tölu-
verðum vandræðum með fyrra
lagið og má telja að það hafi orðið
honum að falli en hann fékk fæst
atkvæði áhorfenda.
Aðalheiður Ólafsdóttir söng
lögin Total Eclipse of the Heart
með Bonnie Tyler og Living on a
Prayer með Bon Jovi en Hildur
Vala Einarsdóttir lögin Heart of
Glass með Blondie og Careless
Whisper með George Michael.
Þær eigast við í úrslitum Idolsins
á föstudaginn kemur.
Gestadómari var Björn Jör-
undur Friðbjörnsson söngvari,
bassaleikari og ritstjóri. ■
Arna Sigurðardóttir, sérfræðing-
ur hjá fjármálaráðuneytinu, var á
fimmtudag verðlaunuð fyrir nafn-
giftina á Talstöðinni, nýrri út-
varpsstöð í eigu 365 – ljósvaka-
miðla. Arna sendi inn fjórar tillög-
ur: Hljóðvarpið, Málstöðin, Út-
varp Ísland og Talstöðin, en það
var sem fyrr segir síðastnefnda
tillagan sem varð fyrir valinu á
nýju útvarpsstöðinni.
Hátt í tvö þúsund tillögur bár-
ust í keppnina og þar á meðal 108
sem lögðu til nafnið Talstöðin.
Arna var dregin úr potti í beinni
útsendingu í sjónvarpsþættinum
Ísland í bítið.
Arna fékk blóm og ferð fyrir
tvo á feneysku riveríuna með
Úrval-Útsýn að launum. „Mér líst
vel á ferðina og tek manninn minn
með,“ sagði Arna sem var að von-
um ánægð með verðlaunin. ■
Verðlaunuð fyrir Talstöðina
VERÐLAUNIN VEITT Arna Sigurðardóttir
tók við verðlaununum úr hendi Illuga Jök-
ulssonar útvarpsstjóra Talstöðvarinnar.
Lögin Þitt fyrsta bros eftir
Gunnar Þórðarson og Don' t Try to
Fool Me eftir Jóhann G. Jóhanns-
son eru á meðal 30-40 laga sem
tónlistarfyrirtækið Reykjavík
Music Production ætlar að koma á
framfæri úti í hinum stóra heimi á
næstunni. Standa vonir til að Þitt
fyrsta bros komist í flutning hjá
einhverjum af þekktari lista-
mönnum veraldar og er Celine
Dion þar efst á óskalistanum.
Undirbúningsvinna stendur
yfir um þessar mundir varðandi
lögin. Verða þau endurhljóð-
blönduð fyrir erlendan markað,
enda mörg þeirra komin vel til ára
sinna.
Á meðal fleiri höfunda sem
eiga lög sem vænleg eru talin til
útflutnings eru Jóhann Helgason,
Magnús Þór Sigmundsson,
Eyjólfur Kristjánsson og Jón
Kjell. Einnig eiga þeir Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson, Vignir Snær
Vigfússon úr Írafári og Hall-
grímur Óskarsson, höfundur
Eurovision-lagsins Open Your
Heart, vinsældarvæn lög sem eru
í skoðun. Starfa þeir allir þrír hjá
Reykjavík Music Production, sem
hóf starfsemi sína í byrjun síðasta
árs. Meðal annars stendur til að
láta bandaríska söngkonu syngja
lag Þorvaldar Bjarna, I Am, sem
Selma Björnsdóttir flutti hér um
árið.
„Það er til ótrúlegt safn af frá-
bærum lögum sem manni finnst
að eigi að fá að hljóma víða. En
það er heilmikil vinna að undirbúa
þau fyrir erlendan markað,“ segir
Þorvaldur Bjarni. „Það verða
samdir enskir textar og gerðar
nýjar útsetningar á 30 til 40 lögum
frá þeim listamönnum sem við
erum með samning við. Þau verða
síðan sett í stresstösku, farið með
þau á fundi og þeim kynnt lögin,“
segir Þorvaldur. „Þetta er það
sem hefur vantað, því í dag hafa
útsetningar svo mikið að segja.“
Komist höfundur að með lag
sitt hjá þekktum erlendum flytj-
anda verður væntanlega um
mikla búbót að ræða fyrir hann.
„Lagið þarf ekkert að vera vin-
sælt annars staðar en í Finnlandi
til að vera margfalt á við það sem
gengur og gerist hér, hvað þá á
stærri svæðum eins og í Þýska-
landi. Margföldunaráhrifin eru
gríðarleg. Lagið eftir Gunnar er
komið í góðan farveg hjá stórum
aðila úti í heimi. „Þetta er lag sem
á afskaplega vel við „adult
contemporary“ flokkinn,“ segir
Þorvaldur.
Á meðal þeirra sem munu
snara íslensku textunum yfir á
ensku er Linda Thompson sem
vann textann að Eurovsion-lagi
Íslendinga í ár ásamt Selmu
Björnsdóttur. Sveinbjörn I. Bald-
vinsson, rithöfundur, mun einnig
semja texta auk þess sem lista-
mennirnir sjálfir munu leggja sitt
af mörkum. Mun Jóhann G.
Jóhannsson til að mynda endur-
semja alla sína texta sjálfur.
freyr@frettabladid.is
SÍGILD ÍSLENSK DÆGURLÖG: ENDURHLJÓÐBLÖNDUÐ FYRIR ERLENDAN MARKAÐ
Þitt fyrsta bros í flutningi
Celine Dion?
...fær Kristbjörg Sara Thoraren-
sen sem ræktar rottur sem gælu-
dýr.
HRÓSIÐ
CELINE DION Söngkonan heimsfræga
myndi örugglega skila lagi Gunnars Þórð-
arsonar með miklum sóma.
GUNNAR ÞÓRÐARSON Svo gæti farið að lag Gunnars Þórðarsonar muni slá í gegn úti í
hinum stóra heimi á næstunni.
HIN HLIÐIN
HIN HLIÐIN Á MARGRÉTI SIGFÚSDÓTTUR, SKÓLASTJÓRA OG STJÓRNANDA ÞÁTTARINS ALLT Í DRASLI
Hvernig ertu núna? Bara hress.
Augnlitur:Gráblár.
Starf:Skólastjóri Hússtjórnarskóla Reykja-
víkur.
Stjörnumerki: Bogmaður.
Hjúskaparstaða: Gift.
Hvaðan ertu? Fædd og uppalin á Selfossi.
Helsta afrek: Börnin mín.
Helstu veikleikar: Mér þykir matur alltof
góður.
Helstu kostir: Jafnlynd.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Fréttir og
handbolti.
Uppáhaldsútvarpsþáttur: Þátturinn henn-
ar Gerðar G. Bjarklind á föstudagsmorgn-
um.
Uppáhaldsmatur: Fiskur.
Uppáhaldsveitingastaður: Argentína.
Uppáhaldsborg: Hamborg.
Mestu vonbrigði lífsins: Hef ekki orðið
fyrir sérstökum vonbrigðum.
Áhugamál: Kennsla, matreiðsla og hand-
bolti.
Viltu vinna milljón? Hver vill ekki vinna
milljón?
Jeppi eða sportbíll? Hvorugt, bara fólks-
bíll.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir
stór? Læknir eða hjúkrunarkona.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Örn Árna-
son sem Bogi róni.
Hver er kynþokkafyllst(ur)? Maðurinn
minn.
Trúir þú á drauga?Já.
Hvaða dýr vildirðu helst vera? Köttur eða
hundur.
Hvaða dýr vildirðu ekki vera? Ána-
maðkur, þræddur upp á öngul.
Áttu gæludýr? Hef setið
uppi með gæludýr í 27
ár.
Besta kvikmynd í
heimi: Hús andanna.
Besta bók í
heimi: Biblían,
það er alltaf
hægt að kíkja
í hana.
Næst á dag-
skrá: Halda
áfram að
kenna og
stjórna í skólanum
mínum.
Bogi róni fyndnastur
10.12. 1947
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
ÁFRAM DAVÍÐ Fjölskylda Davíðs Smára
Harðarsonar setti mikinn svip á Idol-
keppnina á föstudagskvöld.