Fréttablaðið - 06.03.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 06.03.2005, Blaðsíða 6
Nokkurn veginn alla síðustu öld fluttu kotbændur á mölina – með sveitina í fórum sínum. Á þeirri öld sem er nýhafin munu afkom- endur þessara kotbænda skila sveitinni aftur til baka. Íslendingum tókst að reisa sveitaborg austur úr öllu Sel- tjarnarnesinu; skjálfandi hendi byrjuðu þeir að hanna íbúðagöt- ur og -hverfi þar sem öðru frem- ur var lögð áhersla á garða, en minna fór fyrir húsum á þessu ógnarflæmi sem einbýlinu var úvegað í skipulagi síðustu aldar. Fyrir vikið er Reykjavík einhver strjálbýlasta borg sem til er í heiminum – og sem afleiðing þessa er stærsti skógur landsins að vaxa upp í borgarlandinu. Þetta er sérstakt. Á nýrri öld mun Reykjavík þéttast að mikl- um mun; bílastæði verða grafin niður fyrir vatns- borð, hús reist þar ofan á – þeim mun nær hvert öðru, þeim mun betra. Smám saman hverfa drullupolla- bílastæðin á milli húsa – og sömuleiðis vanhirtu garðarnir sem hafa miklu fremur geymt rusl en fólk. Dýrt borgarlandið verður dýrara – en það mun ekki koma í veg fyrir það að fólk flykkist í þétt- ustu byggðina; þar verður deiglan, þar verður kraft- urinn. Það breytir þessu ekk- ert. Það sem breytist hins vegar samfara þéttari byggð er að bakgarðar borgarinnar leggja undir sig nálægar sveitir. Þessa sér þegar stað. Jafnvel á venjulegri helgi í febrúar eða mars er álíka umferð austur fyrir fjall á föstu- degi og verið hefur um verslunarmannahelgi . Bílalestin dragnast þetta á fimmtíu kílómetra hraða – og svo sem enginn að flýta sér af því lestin er yfirleitt jafn löng í báða enda. Það er reyndar með ólíkindum hvað umferðin hefur aukist út úr borgarlandinu undir lok vinnuviku – og svo aftur til borgarinnar að áliðnum sunnudegi. Sérfræðingar henda á lofti tölur á borð við tólf pró- senta aukningu á umferð um Hellisheiði á einu ári. Annað eins er að gerast á leiðinni undir Hvalfjörð. Byggðamálin eru að snúast við. Tugþúsundir borgarbúa eru að flytja garðana sína út fyrir borgarmörkin; koma sér upp svolitlu griðlandi í skjólsælum hvammi skammt frá þjóðvegin- um – og skjótast þangað um hverja helgi með hamar og sög, hrífu og tréklippur. Já eða sleða og hesta. Heilu hóparnir láta það jafnvel vera að reisa sér sína aðra íbúð á þessum sólskinsblett- um, heldur taka einfaldlega land í fóstur; lítinn örfoka hól sem þeir breyta í blómlegt verpi með skarni og skít. Flestir reisa sér samt hús; sitt annað heimili, helgarbælið, sumarleyfissæluna – og verða smám saman partur af annarri grennd; svona sveita- menn í bland við annað gott. Stökkbreyting hefur orðið á byggingamarkaði til sveita ... á sama hátt og álfar heyra grasið vaxa, finna bændur hvernig jarðir þeirra bólgna í verði. Heilu hrepparnir eru að breytast í tískuhverfi – og sjálf Fljóts- hlíðin er orðin að snobbhill. Já, fögur var hún og verður ... Athyglisvert er að fylgjast með heilu hreppunum taka þenn- an fjörkippinn. Dæmisögur af bændum sem voru um það bil að bregða búi en breyttu túnum sín- um í golfvelli og restinni í sum- arbústaðalönd eru að gerast um allt land; sérstaklega í uppsveit- um vestan lands og sunnan en einnig í nágrenni Akureyrar, Eg- ilsstaða og Ísafjarðar. Og fyrir vikið er tónninn í umræðunni að breytast. Sveitarstjórnarmenn sjá þetta og heyra. Samgöngu- bætur hafa hingað til verið af- greiddar sem landsbyggðarvæll en eru á skömmum tíma orðnar að ástríðufullu umtalsefni mal- bikaðra borgarbarna. Aldrei fyrr hafa svokallaðir þéttbýlisbúar verið uppteknari af nauðsyn tví- breiðra brúa og þverun fjarða en einmitt við upp- haf nýrrar aldar. Þetta er eiginlega kostulegt og er vel hægt að una við lymskulegt glottið sem færist yfir bæjar- stjórana víða um land sem héldu lengi vel að samgöngubætur væru bannorð í umræðunni; heimtufrekja fárra á kostnað hinna mörgu. Leiðindaorðið lands- byggð er úrelt. Merking þess hefur altént breyst. Kannski landsbyggðin sé loksins orðin að raun- verulegri landsbyggð; lokkandi, lifandi. S tór-Reykjavíkur - svæðið teygir bakgarða sína vestur í Dali og aust- ur að Söndum. Eftir litla stund í líftíma þjóðarinn- ar breytist leiðin á milli Akureyrar og Reykjavík- ur í skottúr. Byggða- öxullinn mun liggja um hálendið, fyrr en síðar – og rétt eins og aðrar þjóðir í námunda við eyjuna Ísland munu landsmenn fallast á tvenns konar vegi á milli byggðakjarna; ferðavegi og þjóð- vegi, skakka vegi og beina. Þessi þjóðfélagsbreyting hefur að mestu verið að gerast í kyrrþey. Það eru ekki mörg þing- málin sem tengjast smíði sumar- húsa eða nýjum átján holna golf- velli inn við miðju landsins. Þessir nýju þjóðflutningar hafa gerst af sjálfu sér, vegna fólks- ins sjálfs sem er fyrir löngu orðið þreytt á misskildum görð- um í hjarta borgarinnar en vill miklu fremur njóta víðáttunnar og fjallasýnarinnar þar sem hana er helst að hafa; undir stjörnu- björtum sveitahimni. Það verður því ekki sveita- vargurinn gamli sem heimtar vegabætur strjálbýlisins á kom- andi árum, heldur sveitavargur- inn nýi. ■ Þ að hefur farið frekar hljótt að borgarstjórinn í ReykjavíkSteinunn Valdís Óskarsdóttir og Sturla Böðvarsson sam-gönguráðherra hafa gert samkomulag um Reykjavíkur- flugvöll, sem þau svo túlka ekki alveg á sama hátt. Samgöngu- ráðherra hefur fram undir þetta sagt að flugvöllurinn eigi að vera áfram í Vatnsmýrinni, en innan Reykjavíkurlistans hafa hins vegar verið harðir andstæðingar Reykjavíkurflugvallar. Þeir hafa ítrekað bent á að flytja beri innanlandsflugið til Kefla- víkur. Eftir að Steinunn Valdís Óskarsdóttir tók við sem borgar- stjóri virðist svo sem nokkur þíða hafi komist í flugvallarmálið, og það er greinilegt að hún vill reyna að leysa það friðsamlega svo allir geti sæmilega við unað. Jafnframt því sem borgarstjóri og samgönguráðherra hafa undirritað samkomulag um Reykjavíkurflugvöll, hefur ráð- herann lagt fram í ríkisstjórn hugmyndir um samgöngumiðstöð við flugvöllinn. Hún á ekki aðeins að þjóna flugumferð heldur ekki síður langferðabifreiðum. Það er löngu orðið tímabært að reist verði samgöngumiðstöð í Reykjavík, sem hefði víðtækt þjónustuhlutverk. Framtíð flugvallarins hefur tafið þetta mál, en nú virðist loks sem skriður sé að komast á það. Þegar unnið var að endurbótum á Reykjavíkurflugvelli, var norðurbrautin svokölluð lokuð um langan tíma, og virtist það ekki hafa teljandi áhrif á umferð um völlinn. Skerjafjarðar- brautin var þá meira notuð og í einstaka tilfellum brautin sem liggur suður undan Landspítalanum. Nú herma fregnir að leggja eigi þessa flugbraut af þegar á þessu ári, nokkrum miss- erum eftir að töluverðum fjármunum var varið til að endur- bæta hana. Bent hefur verið á að hægt væri að komast af með eina flugbraut í Reykjavík, og er þá átt við Skerjafjarðarbraut- ina svokölluðu. Hugsanlega þyrfti að lengja hana til vesturs út í Skerjafjörð og setja Suðurgötu í undirgöng. Við það að leggja af báðar norðurbrautirnar, myndi notagildi flugvallarins eitt- hvað minnka, en eftir sem áður yrði innanlandsflugið í Reykja- vík og borgin fengi mikið byggingasvæði í Vatnsmýrinni. Það er oft hamrað á því að það séu fyrst og fremst hags- munir landsbyggðarinnar að flugvöllurinn sé í Reykjavík, en svo er ekki. Það er auðvitað mikið hagsmunamál fyrir Reykja- víkurborg, Reykvíkinga og aðra þá sem búa á höfuðborgar- svæðinu að innanlandsflug verði áfram starfrækt frá Reykja- víkurflugvelli. Það er ekki aðeins landsbyggðarfólk sem notar flugvöllinn, heldur ekki síður íbúar og ferðamenn sem eru á höfuðborgarsvæðinu. Æfinga-, kennslu- og einkaflug hefði fyrir löngu átt að vera farið af Reykjavíkurflugvelli eins og margoft hefur verið rætt um, en flugvöllurinn á fyrst og fremst að vera fyrir farþegaflug innanlands. Með því að reisa samgöngumiðstöð í námunda við Loftleiða- hótelið, og bæta gatnakerfið í kringum hana, er óneitanlega verið að renna styrkari stoðum undir tilvist innanlandsflugs frá Reykjavíkurflugvelli, en með því að leggja niður norður- suður- brautirnar skapast miklir möguleikar fyrir Reykjavíkurborg, og mega þá ekki allir vel við una? 6. mars 2005 SUNNUDAGUR SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Borgarstjóri og samgönguráðherra hafa gert sam- komulag um Reykjavíkurflugvöll. Samgöngumiðstöð og flugvöllurinn FRÁ DEGI TIL DAGS Guðmundur Andri ThorssonNú í kilju KOMIN Í VERSLANIR! Hrífandi fjölskyldu- saga, skrifuð af fágætri stílgáfu eftir einn snjallasta höfund Íslands. „Þaulhugsað verk ... óvenju skörp heildarmynd af þjóðarsál.“ Fríða Björk Ingvarsdóttir, Mbl. „Frábærlega vel skrifuð“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Fbl. Sveitavargurinn nýi Fyrirspurnir á Alþingi Borgar Þór Einarsson gerir fyrirspurnir á Alþingi að umræðuefni á vefritinu Deiglunni nú um helgina. Telur hann þær ofnotaðar og misnotaðar og rekur ýmis dæmi um það. Borgar Þór segir að Jóhanna Sigurðardóttir sé hin ókrýnda drottning fyrirspurnanna. „Margir furða sig eflaust á því af hverju Jóhanna er alltaf í fréttunum. Af langri reynslu hefur hún lært að fátt er lík- legra til að tryggja þing- mönnum nokkrar sek- úndur í kvöldfréttum eða nokkra dálksentí- metra í blöðunum en fyrirspurnir á Alþingi, nema ef vera skyldi utandagskrárumræður. Fyrirspurnir eru fjölmiðlavænar af því að þær krefjast lágmarksvinnu af blaðamanninum. Tökumaður eða ljós- myndari er með í för, tekur myndir af fyrirspyrjanda og ráðherranum. Svar ráðherra er oftast inngangur fréttarinn- ar og svo kemur: „Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur á Alþingi í dag.“ Síðan er rennt yfir fyrirspurnina, svarið og svo viðbrögð frá Jóhönnu í lokin“. Ríkuleg uppskera Og Borgar Þór skrifar: „Hvað höfum við séð margar svona fréttir með Jóhönnu Sigurðardótt- ur. Þótt ekki væri nema brot af fyrir- spurnum hennar sem ratar í fréttar, hleypur fjöldi fréttanna á tugum. Frá því í október 2003 hefur Jóhanna Sigurðardóttir lagt fram samtals 107 fyrirspurnir á Alþingi. Það heggur nærri fjórum fyrirspurnum á hverri viku sem þing hefur setið frá síðustu kosning- um“. Tveir í fullu starfi Og eitthvað kostar þetta. Borgar Þór hefur reiknað það út: „Ekki er ótrúlegt að sex heilir vinnudagar fari að meðal- tali í að svara hverri fyrirspurn. Það þýðir að ríkið þarf í raun að hafa tvo deildarsérfræðinga á fullum launum allan ársins hring við það eitt að undir- búa svör við fyrirspurnum frá Jóhönnu Sigurðardóttur“. gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL- SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 TÍÐARANDINN SIGMUNDUR ERNIR RÚNARSSON Þessir nýju þjóð- flutningar hafa gerst af sjálfu sér, vegna fólksins sjálfs sem er fyrir löngu orðið þreytt á misskildum görðum í hjarta borgarinnar en vill miklu fremur njóta víðáttunnar og fjallasýnar- innar þar sem hana er helst að hafa; undir stjörnubjört- um sveitahimni. ,, TE IK N : H EL G I S IG - W W W .H U G VE R K A. IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.