Fréttablaðið - 06.03.2005, Síða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
60,64 60,92
115,66 116,22
79,54 79,98
10,68 10,75
9,67 9,73
8,79 8,85
0,58 0,58
92,30 92,86
GENGI GJALDMIÐLA 04.03.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
109.27 -0,25%
4 6. mars 2005 SUNNUDAGUR
Fyrirhugað Citroën-umboð Brimborgar á Dalvegi:
Lögfræðingur fylgdi
íbúum á fund bæjarins
ÍBÚABYGGÐ Forsvarmenn íbúa
Hjallahverfis í Kópavogi mættu á
fund skipulagsyfirvalda bæjarins
og forsvarmanna Brimborgar
með lögfræðing sér við hlið.
Íbúarnir mótmæla fyrirhugaðri
byggingu Brimborgar á lóð gróðr-
arstöðvarinnar Birkihlíð sem
stendur á grænum reit.
Heiðar Þór Guðnason, talsmað-
ur íbúa í Hjallahverfi, segir þá
vilja að bæjaryfirvöld skipuleggi
Dalveginn í heild. Þeir geti ekki
sætt sig við aukna umferð um
íbúðahverfið.
Heiðar segir íbúana undrandi á
að bílaumboðið reiði fram 165
milljónir fyrir grænt svæði án vil-
yrðis bæjarins um að bygging
þeirra fái að rísa.
Birgir H. Sigurðsson, skipu-
lagsstjóri Kópavogsbæjar, sagði
fyrir fundinn að Brimborg hefði
ekkert vilyrði fengið. Málið verði
skoðað frá öllum hliðum.
Egill Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Brimborgar, segir
fyrirtækið ætla að fara að leik-
reglum þannig að allir geti verið
sáttir í lokin: „Við erum ekki á
hraðferð og viljum velja bestu
lausnina fyrir íbúana, bæinn og
okkur.“
- gag
Leituðu sannana
fyrir skattsvikum
Tuttugu starfsmenn Skattrannsóknarstjóra gerðu húsleit á fjölda vínveitinga-
húsa. Lagt var hald á bókhaldsgögn og tölvubúnað. Skattrannsóknarstjóri
segir markmið aðgerðanna hafa náðst.
SKATTRANNSÓKN Starfsmenn Skatt-
rannsóknarstjóra lögðu hald á
mikið magn bókhaldsgagna og
tölvubúnað þegar þeir gerðu
húsleit á fjölda vínveitingahúsa í
Reykjavík á föstudags- og
fimmtudagskvöld. Flest vínveit-
ingahúsanna, en þó ekki öll, eru í
miðbænum.
Tuttugu manns frá skattrann-
sóknarstjóra og tugur lögreglu-
manna tóku þátt í aðgerðinni sem
er með þeim stærri sem embættið
hefur ráðist í. Lagt var hald á bók-
haldsgögnin og tölvubúnaðinn
vegna staðfests gruns um skatt-
svik og kemur í kjölfar nýlegrar
skýrslu sem leiddi í ljós að helstu
skattsvikamál á landinu væru í
formi svartrar starfsemi. Þau
brot eru talin algengari í vínveit-
ingageiranum en mörgum öðrum
atvinnugreinum og eru þessar að-
gerðir viðbrögð við því að sögn
Skattrannsóknarstjóra.
Skúli Eggert Þórðarson skatt-
rannsóknarstjóri sagði að aðgerð- in hefði tekist vel; ekki komið til
neinna átaka og í raun hefðu
markmiðin með aðgerðinni náðst.
Lagt var til atlögu á fimm staði
samstundis til að koma í veg fyrir
að menn gætu búið sig undir
heimsókn þeirra. Ávallt voru
tveir lögreglumenn með hverjum
hópi sem gerðu húsleit til að koma
í veg fyrir að skattrannsóknar-
menn yrðu hindraðir við störf sín.
Skúli Eggert vildi ekki tjá sig
um hvort húsleitirnar hefðu leitt
til þess að vínveitingastaðirnir
hefðu verið staðnir að einhvers
konar ólöglegri starfsemi tengdri
vændi eða fíkniefnum. Hann
sagði þó að ef einhverjir vínveit-
ingastaðir hafi orðið uppvísir af
slíku ætti það að vera komið í
hendur lögreglunnar. Ekki vildi
lögreglan í Reykjavík tjá sig um
það hvort einhverjir eftirmálar
hefðu komið til þeirra kasta eftir
þessar aðgerðir.
Aðgerðirnar tóku mikinn tíma og
stóðu yfir frá klukkan átta á
fimmtudagskvöldið og til fjögur um
nóttina. Hafist var handa á ný um
hádegi á föstudegi og ekki lokið við
verkefnið fyrr en seinni partinn.
-jse
GLANNAR Á SNÆFELLSNESI Átta
ökumenn voru teknir fyrir of
hraðan akstur á Snæfellsnesi á
föstudagskvöld. Utanbæjar óku
sex ökumenn of hratt, sá sem
hraðast ók mældist á 140 kíló-
metra hraða. Í Snæfellsbæ
voru tveir teknir á ólöglegum
hraða. Sá sem hraðar ók var á
um 80 kílómetra hraða þar
sem hámarkshraði er 35 kíló-
metrar.
VOR Á KRÓKNUM Sigurður Jóns-
son, lögreglumaður á Sauðár-
króki, tók nagladekkin undan
einkabílnum sínum á föstudag.
Fyrr en hann hefur áður gert.
Hann sagðist viss um að vorið
væri komið. Engin áföll hafa orð-
ið í umferðinni síðustu daga, að
sögn Sigurðar.
Fólskuleg árás:
Afmæli úr
böndunum
BANDARÍKIN Réttarhöld fara nú
fram í Baltimore yfir þremur kon-
um sem gefið er að sök að hafa
barið telpu svo illilega að hún lá
meðvitundarlaus í þrjár vikur á
eftir. Líkamsárásin átti sér stað í
tólf ára afmæli stúlkunnar, Nicole
Townes. Yngri systir hennar fékk
einnig að kenna á barsmíðum.
Ein kvennanna er móðir telpn-
anna. Að sögn CNN-fréttastof-
unnar var ástæða árásarinnar sú
að jafnaldri Nicole kyssti hana á
kinnina í tilefni afmælisins og
hélt móðirin sér til mikillar skap-
raunar að dóttir sín væri komin
með kærasta. ■
KOPPALOGN Harald Holsvik, hjá
Vaktstöð skipa, segir ekki eins
marga báta hafa verið á sjó í gær
og ætla mátti af veðrinu, en vel
gaf til sjós þar sem blíðviðri var
á flestum miðum. Innan við þrjú
hundruð bátar voru á sjó – en
þegar mest er eru þeir oft þús-
und fleiri.
SLÖKKVILIÐ SAUG VATN Engir
brunar höfðu orðið í Reykjavík
um helgina, þegar rætt var við
slökkvilið í gær. Eitt útkall var í
gærdag, en þá aðstoðuðu bruna-
verðir fólk þar sem vatn hafði
flætt.
Háskólanám:
Kynntu sér
námsleiðir
NÁM Fjöldi væntanlegra háskóla-
nema kynnti sér starfsemi sjö
háskóla á Stóra háskóladeginum
sem haldinn var í Borgarleikhús-
inu í gær. Uppákomur sem Lista-
háskólinn stóð fyrir settu svip á
daginn og skemmtu þeim sem
komu til að kynna sér starfsemi
skólanna.
„Það er búin að vera prýðileg
aðsókn,“ sagði Guðjón Helgason,
kynningarfulltrúi Kennarahá-
skóla Íslands, sáttur við hvernig
dagurinn þróaðist.
Skólarnir voru hver með sinn
bás til að kynna starfsemi sína
auk þess sem hver og einn hafði
undirbúið erindi sem flutt voru af
og til yfir daginn.
- bþg
Auður Jónsdóttir
Dúndurbók
„Í fjörlegri frásögn sinni tekst Auði að draga
einkenni þessa tvískinnungs upp á yfirborðið
í texta sem er allt í senn; tragískur og fyndinn,
umburðarlyndur og dómharður, hlýr og
kaldranalegur ... afar áhrifarík.“
Fríða Björk Ingvarsdóttir, Mbl.
Komin
í kilju
„Greip mig svo fast
og snerti mig svo
sterkt að ég hreinlega
táraðist á stundum.“
Úlfhildur Dagsdóttir,
bokmenntir.is
■ EVRÓPA
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
FUNDAÐ UM BREYTINGU
Á SKIPULAGI
Forsvarmenn íbúa Hjallahverfis í Kópavogi
funduðu með skipulagsyfirvöldum og
Brimborg á fimmtudag. Íbúarnir geta ekki
fallist á að skipulagi um grænt svæði verði
breytt svo Brimborg geti byggt bílaumboð.
STÓRI HÁSKÓLADAGURINN
Fjöldi manns lagði leið sína í Borgarleik-
húsið og kynnti sér námsúrval háskóla,
annarra en Háskóla Íslands.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
FRAMDI SJÁLFSMORÐ Júrí
Kravsjenkó, fyrrum innanríkis-
ráðherra Úkraínu, fannst látinn á
heimili sínu. Hann framdi sjálfs-
morð. Júrí átti að bera vitni á
föstudag vegna morðsins á blaða-
manninum Georgí Gongadze en
höfuðlaust lík hans fannst í skógi
fyrir fimm árum.
Á VÍNVEITINGAHÚSI
Um þrjátíu manns, lögreglumenn og starfsmenn Skattrannsóknastjóra, tóku þátt í aðgerð-
um gegn skattsvindli á vínveitingahúsum. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar.