Fréttablaðið - 06.03.2005, Síða 23
Ver›bréfafljónusta Sparisjó›sins óskar a› rá›a
framkvæmdastjóra.
Framkvæmdastjóri
Skógarhlí› 12 • 105 Reykjavík
Sími 520 4700 • Fax 520 4701
www.hagvangur.is- vi› rá›um
Framkvæmdastjóri st‡rir daglegum rekstri Ver›bréfafljónustunnar. Hann ber einnig
ábyrg› á sölu- og marka›smálum og öflun n‡rra vi›skiptavina.
Leita› er a› framkvæmdastjóra sem hefur flegar afla› sér gó›rar reynslu á marka›inum
og hefur metna› og flor til a› efla, móta og flróa ungt fyrirtæki.
Háskólamenntun og réttindi í löggiltri ver›bréfami›lun er skilyr›i.
Vi›komandi flarf a› geta byrja› sem fyrst. Fyrirspurnir ver›a me›höndla›ar sem
trúna›armál.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is og fylgigögn skulu send sem vi›hengi.
Umsóknarfrestur er til og me› 13. mars nk. Númer starfs er 4353.
Uppl‡singar veita Baldur G. Jónsson og Katrín S. Óladóttir.
Netföng: baldur@hagvangur.is katrin@hagvangur.is.
Ver›bréfafljónusta Sparisjó›sins er
n‡stofna› fyrirtæki í eigu flestra spari-
sjó›a landsins sem sérhæfir sig á svi›i
ver›bréfavi›skipta og eignast‡ringar.
Fyrirtæki› samanstendur af eignast‡ringu,
mi›lun, rekstrarsvi›i og rekstrarfélagi sem
sér um st‡ringu sex ver›bréfasjó›a.
VSP sinnir mi›lun ver›bréfa á helstu
mörku›um, innanlands og utan. VSP hefur
á undanförnum misserum byggt upp net
samstarfsa›ila og hefur flannig a›gang
a› rannsóknarni›urstö›um og sérfræ›i-
flekkingu erlendra stórfyrirtækja.
Sjá nánari uppl‡singar á www.vsp.is
Ingunn Sigurrós Bragadóttir sem
gegnir nafninu Inga Rósa vann fyrst í
Seðlabankanum, svo Búnaðarbankan-
um og nú í Landsbankanum. Þar
starfar hún sem sérfræðingur í deild
sem heitir Viðskiptastjórnun.
„Já, ég er búin að vera viðloðandi þennan
bankageira nokkuð lengi,“ segir Inga Rósa
brosandi þegar hún er spurð hvort hún
kunni vel við sig innan um peningana. Hún
kveðst vinna á sölu- og markaðssviði en
deildin hennar sé ný af nálinni.
„Hlutverk okkar er að vinna að því að
efla þjónustuna og þróa samskiptin við
viðskiptavinina. Ég var áður að vinna í fjár-
stýringu bæði hjá Landsbankanum og Bún-
aðarbankanum sem er töluvert ólíkt því
sem ég er að gera í dag. Þar var ég í milli-
bankaviðskiptum en nú verð ég aðeins
meira í snertingu við viðskiptavini útibú-
anna. Þetta er skemmtileg breyting og mjög
öflugur hópur sem ég er að vinna með. Við
erum sex í þessu þróunarstarfi og munum
vinna með framlínufólkinu í útibúunum við
að aðlaga þjónustuna og vöruframboðið á
hverjum tíma. Þetta er allt í mótun og bara
gaman að taka þátt í því. Það er að minnsta
kosti nóg að gera,“ segir Inga Rósa glaðleg
og upplýsir aðspurð að oft komi tarnir en ró-
legri tímar komi þess á milli. Hún kveðst
eiga mann og tvo syni en eldri drengurinn
sé það stór að hann sjái um að taka á móti
yngri bróður sínum úr skólanum.
„Svo eru afarnir og ömmurnar mjög
dugleg að hjálpa til. Þannig rúllar þetta,“
segir hún. Að lokum er forvitnast aðeins
um áhugamálin. „Við höfum gaman að allri
útivist. Yfir vetrartímann förum við tölu-
vert á skíði og á sumrin ferðumst við mikið
innanlands,“ segir Inga Rósa og þar með
hleypum við henni aftur að vinnuborðinu.
gun@frettabladid.is
Eflir þjónustu og
þróar samskipti
atvinna@frettabladid.is
Stjórn VR mun leggja til á kom-
andi aðalfundi að hver félags-
maður eignist séreignarsjóð hjá
félaginu, svokallaðan VR-varasjóð.
Sjóðinn getur hver og einn nýtt til
ákveðinna verkefna að eigin vali
svo sem símenntunar, ýmissa or-
lofsmála, forvarna og endurhæf-
ingar eða til framfærslu t.d. við
atvinnumissi, heilsubrest eða við
starfslok vegna aldurs. Breyting-
arnar munu þannig auka sveigj-
anleika félagsmanna á vinnu-
markaði en samkvæmt þeim
mun hver félagsmaður fá
greiddan hluta af sínu félags-
gjaldi, sjúkrasjóðsgjaldi og orlofs-
sjóðsgjaldi inn á VR-varasjóð í
eigin nafni. Þessir fjármunir hafa
hingað til runnið óskiptir í sam-
eiginlega sjóði. Þetta kemur fram
á vef VR.
Nýr kjarasamningur milli 24
aðildarfélaga BHM og ríkisins var
undirritaður þann 28. febrúar,
með fyrirvara um samþykki stjórn-
ar þeirra félaga sem aðild að
samningnum eiga. Samningurinn
gildir frá 1. febrúar sl. til 30. apríl
2008. Samkvæmt samningnum er
sameiginleg launatafla félag-
anna og á hverri
stofnun
verður gerður
sameiginlegur stofnanasamningur
við félögin.
Ísland í alþjóðasamfélagi er
yfirskrift fundar í tilefni alþjóðlegs
baráttudags kvenna fyrir friði og
jafnrétti. Fundurinn verður hald-
inn þriðjudaginn 8. mars, á al-
þjóðlegum baráttudegi kvenna,
kl. 17 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykja-
víkur. Fundarstjóri verður Elna
Katrín Jónsdóttir, varaformaður KÍ,
en á fundinum munu meðal ann-
ars Ósk Vilhjálmsdóttir myndlist-
arkona flytja fyrirlesturinn „Fót-
gönguliðar“, Birna Þórðardóttir
rappa Bússuþulu og Sabine
Leskopf frá samtökum kvenna af
erlendum uppruna halda tölu.
Frekari upplýsingar ásamt dagskrá
er að finna á vefnum
www.bsrb.is.
Tveir kynningarfundir um
nýjan kjarasamning SFR og Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar hf. og
Fríhafnarinnar ehf. hafa verið
haldnir en atkvæðagreiðsla um
samninginn fer fram á þriðjudag
og miðvikudag í næstu viku. Á
kjörskrá eru 111 starfsmenn.
Inga Rósa kann vel við sig í bankageiranum innan um peningana.
LIGGUR Í LOFTINU
í atvinnu
MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINSER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR?
Misverðmætir starfsmenn bls. 2
Skrifstofuhótel á Selfossi bls. 2
Konur í stjórnunarstöðum bls. 2
Togarastemning í KB banka bls. 8
SMÁAUGLÝSINGAR
byrja í dag á bls. 18
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er sunnudagurinn 6. mars,
65. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 8.17 13.39 19.02
AKUREYRI 8.05 13.24 18.44
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
STÖRF Í BOÐI
Verslunarstjóri
Skrifstofustjóri
Framkvæmdastjóri
Sjávarútvegsfræðingur
Prófdómari
Starf í móttöku
Skiltagerð
Verkfræðingur
Kennarar
Viðgerðarmenn
Fjármálastjóri
Rafvirkjar
Afgreiðslustarf
Verkfræðingar
Hjúkrunarfræðingar
Sölumenn
Leikskólakennarar
Tæknifræðingar
Bifvélavirkjar
Verkamenn
Bílstjórar
Ritari
Deildarstjóri
Fyrirtæki ekki nógu sátt
LÁGMARKSLAUN Í BRETLANDI MUNU HÆKKA Í OKTÓBER.
Þessi hækkun mun koma einni milljón manna til góða að sögn ríkis-
stjórnarinnar. Þá munu lágmarkslaun fullorðinna verða 5,05 pund á
tímann, eða um 587 krónur, en launin voru áður 4,85 pund, eða um
564 krónur. Krökkum á aldrinum 18 til
21 árs verður greidd 4,25 pund á tímann,
eða um 495 krónur.
Áætlað er að laun fullorðinna hækki í
5,35 pund, eða um 623 krónur, í október
2006. Mörg fyrirtæki hafa fundið fyrir
óþægindum vegna tveggja síðustu hækk-
ana og því hefur ríkisstjórnin ákveðið að
hafa hækkunina litla á löngum tíma.
Mörg fyrirtæki eru á móti hækkuninni.
Nú tekur fullorðna aðeins tvo
tíma að safna fyrir tíu punda
seðlinum í staðinn fyrir næst-
um því tvo og hálfan tíma.