Fréttablaðið - 06.03.2005, Side 57

Fréttablaðið - 06.03.2005, Side 57
SUNNUDAGUR 6. mars 2005 29 Vaxtalaus helgi í Sony Center Kringlunni! Fyrir 2.499* krónur færðu... Opið í dag frá 13 -17. *Miðað við 12 jafnar vaxtalausar greiðslur á Visa eða Mastercard skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist með jöfnum greiðslum yfir samningstímann. www.sonycenter.is MZ-NH700 Sony Minidisk. · Minidisk spilara sem tekur 1GB á disk. · Stafrænn flutningur til/frá tölvu (USB) · Topp upptöku og afspilunargræja. Verð 2.499 krónur vaxtalaust* í 12 mán. eða 29.988 krónur staðgreitt DSC-L1 Sony stafræn myndavél. · 4,1 milljón pixlar · 3x aðdráttur um Carl Zeiss linsu · 1,5" skjár Verð 2.499 krónur vaxtalaust* í 12 mán. eða 29.988 krónur staðgreitt CMT-HPX7 Sony samstæða · 120W magnari · 5 diska geislaspilari með mp3 afspilun · Tengi fyrir tölvuna/mp3 spilarann Verð 2.499 krónur vaxtalaust* í 12 mán. eða 29.988 krónur staðgreitt Fermi ngar- sams tæðan ! 120W magn ari og tekur 5 disk a! Hönnun sem tek ið er eftir! Geymir allt að 1GB á disk! Valencia fagnar brotthvarfi Ranieri Sjaldan hefur brottrekstri knattspyrnu- stjóra verið tekið með meiri fögnuði en þegar spurðist í síðustu viku að stjórn Valencia hefði sagt Claudio Ranieri upp störfum. Brottreksturinn kom fáum á óvart og var búinn að liggja í loftinu vik- um saman. Spurningin var ekki hvort Ranieri yrði rekinn heldur hvenær. Að- dáendur Val- encia hafa reyndar mest- an áhuga á að vita af hverju hann var yfir- höfuð ráðinn og hið sorg- lega fyrir þá er að stjórnendur félagsins hafa ekki getað svarað því almennilega. Þeir tjáðu sig lítið um það framan af hausti en upp á síðkastið hafa nokkrir þeirra stigið fram og viðurkennt að ákvörðun- in hafi verið tekin í miklu bríaríi eftir að Rafa Benitez ákvað að halda til Liver- pool. Sumir stjórnarmenn sögðust meira að segja að ráðningin hafi aldrei verið formlega rædd og það hafi verið forsetinn Juan Soler sem hafi séð um ráðninguna. Soler viðurkenndi í síðustu viku að lengd samningsins og háar greiðslur til Ranieri hafi stafað af tauga- veikluninni í kringum brotthvarf Benitez. Tómlegt titlasafn Ranieri er að nokkru leyti þakkað að hafa lagt grunninn að mesta vel- gengnistímabili í sögu Valencia en hann stjórnaði liðinu um tveggja ára skeið og varð liðið bikarmeistari 1998. En Ranieri taldi grasið grænna hjá Atletico Madrid en gerði litlar rósir þar og sagði upp um vorið nokkrum vikum áður en liðið féll í aðra deild. Brotthlaup hans til Atletico sat í mörgum sem spurðu hvort Val- encia væri nógu fínn klúbbur fyrir hann núna fyrst svo var ekki fyrir 6 árum. Einnig voru efasemdir um hæfni Ranieri til að halda utan um stjörnum prýdd lið og stýra þeim til sigurs. Ranieri vann ágætt uppbyggingarstarf með Fiorent- ina og Valencia og gerði þau lið að bik- armeisturum auk þess sem Flórensliðið varð meistari meistaranna á Ítalíu en þar með er titlasafn Ranieri upptalið. Honum tókst ekki að klára hlutina hjá Chelsea og eilíft stöðuhringl hans með leikmenn þótti orka tvímælis. Spænskir sparkblaðamenn voru smeykir í sumar fyrir hönd Valencia þrátt fyrir að liðið hefði orðið meistari í vor og hefði styrkt sig í sumar. Geðþekkur en ístöðulaus Ranieri var vinsæll á Englandi og höfðu menn mikla samúð með honum í fyrra í ljósi þess mikla baktjaldamakks sem Abromovich stundaði. Þessi geðþekka ára var fljót að mást af honum á Spáni enda tortryggni í garð ítalskra þjálfara mikil þar í landi og ekki batnaði það er Ranieri keypti 4 ítalska leikmenn í sum- ar. Þessi ítalska innrás var of stór biti fyrir hina stoltu Spánverja sem eru alltaf með svolitla minnimáttarkennd gagn- vart Ítölum. Ítölsku leikmennirnir stóðu ekki undir væntingum ef undan er skil- inn Marco Di Vaio og meira að segja Amdedo Carboni sem leikið hefur svo lengi á Spáni að hann flokkast nánast sem heimamaður datt úr öllu stuði. Enda dæmigert fyrir hringlið á Ranieri að láta 39 ára gamlan snarörfættan vinstri bakvörð leika á hægri kanti. Ítöðuleysi Ranieri í uppstillingu liðsins var algert og enginn af lykilmönnum liðsins fann sig undir hans stjórn. Þær 500 hundruð miljónir sem Ranieri hafði upp úr krafsinu fyrir 8 mánaða starf hjá Valencia bætast ofan á miljarð- inn sem Roman Abromovich leysti hann út með frá Chelsea. Ranieri kann allaveg- ana að semja hvað sem um aðra hæfi- leika hans verður sagt. EINAR LOGI VIGNISSON Hörkuleikur á milli ÍR og KA í Austurberginu í gær: Sterk vörn ÍR skapaði sigurinn HANDBOLTI. KA-menn sóttu ekki gull í greipar ÍR-inga í Austur- bergi í gær, en heimamenn höfðu yfir allan leikinn. Það var fyrst og fremst gríðarlega öflugur varnar- leikur ÍR sem skapaði sigurinn og KA-menn máttu sín lítils gegn honum og fengu á sig mikið af hraðaupphlaupum. Sigur heima- manna var öruggari en lokatöl- urnar gefa til kynna, en leiknum lauk með sigri ÍR, 35-32. Jóhannes Bjarnason, þjálfari KA, var hundfúll með leik sinna manna í gær. „Sóknarleikur okkar var hreinlega afleitur framan af leik, en lagaðist að vísu aðeins í þeim síðari. Það hefur verið okkar akkílesarhæll í undanförnum leikjum að við erum að sækja illa á þessar flötu varnir og erum að sækja of mikið inn á miðjuna þar sem vörnin er hvað þéttust fyrir og í kjölfarið er vörn andstæðing- anna að verja mikið af skotum og við að fá á okkur hraðaupplaup í staðinn“, sagði Jóhannes. Júlíus Jónasson, þjálfari ÍR var ögn kátari með leik sinna manna í gær. „Ég lagði upp með það við strákana fyrir leikinn að þetta væri 4-6 punkta leikur og því er þetta gríðarlega mikilvægur sig- ur fyrir okkur. Það er ekkert leyndarmál að við byggjum á vörn og hraðaupphlaupum og það skil- aði sér í dag“, sagði Júlíus. - bbHANNES HEITUR ÍR-ingurinn Hannes Jón Jónsson átti góðan leik gegn KA íAusturberginu í gær og skoraði sjö mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.