Fréttablaðið - 06.03.2005, Blaðsíða 62
34 6. mars 2005 SUNNUDAGUR
Það margborgar
sig að fylgja
lögum og
reglum. Því
komst ég að
fyrir nokkrum
árum. Þá var
ég nýbyrjaður
að stunda golf
en tímdi ekki
að borga mig
inn á vellina.
Við félagarnir
svindluðum okkur því inn á golf-
velli landsins í von um að verða
ekki nappaðir af vallarstjórum
eða öðrum starfsmönnum.
Eitt skiptið höfðum við félag-
arnir svindlað okkur inn á
ónefndan völl á höfuðborgar-
svæðinu og hófum leik. Veðrið
var eins og best verður á kosið,
sólskin, hægur andvari og um tíu
stiga hiti. Félagarnir slógu hver
af öðrum þar til röðin kom að
mér. Þetta var á þriðju holu. Hún
er ekki löng en með háu grasi og
hrauni allt í kring.
Ég stillti kúlunni upp, mund-
aði kylfuna og ætlaði aldeilis að
slá langt. Sveiflan var ágæt en
átökin of mikil. Kylfan rétt
sneiddi kúluna. Ég blótaði. Kúlan
tókst varla á loft og stefndi í átt
að háa grasinu. Skyndilega tók
hún sveig og þaut inn á brautina,
rúllaði eftir henni endilangri, inn
á flötina, í átt að fánanum þar
sem hún hvarf. Við trúðum ekki
okkar eigin augum. Ég hafði
farið holu í höggi – þótt þetta hafi
ekki verið draumahöggið. Við
félagarnir æptum upp yfir okkur
af gleði og nálægir kylfingar
klöppuðu. Nú var sko gaman að
vera til.
Við ræddum um það að nú
gæti ég skráð mig í Einherja-
klúbbinn, fyrir þá sem hafa farið
holu í höggi, og fengi kannski
verðlaun í lok árs. En þá rann það
upp fyrir okkur. Hverjum áttum
við að tilkynna þetta? Við höfðum
jú svindlað okkur inn.
Þótt mörg ár séu liðin frá
högginu góða græt ég það enn að
hafa ekki fylgt reglunum. Næst
þegar ég fer holu í höggi ætla ég
að vera búinn að borga vallar-
gjaldið. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
KRISTJÁN HJÁLMARSSON KOMST AÐ ÞVÍ AÐ ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERA LÖGHLÝÐINN
Hola í höggi
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
■ PONDUS
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Frode Överli
sökkar