Fréttablaðið - 06.03.2005, Síða 72

Fréttablaðið - 06.03.2005, Síða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Bú›u flig undir brottför á www.icelandexpress.is Fer›afljónusta Iceland Express, Su›urlandsbraut 24, Sími 5 500 600 F í t o n / S Í A Kappsamir starfsmenn Icelandair klippi› hér BARNALEGT VER‹ 5.995 Fullor›insver› frá: 7.995 kr. (A›ra lei› me› sköttum) Nú er ástæ›a til a› hafa sérstaklega gott eftirlit me› barninu flví í sumar ver›a öll barnafargjöld Iceland Express á 5.995 kr. a›ra lei› me› sköttum. Víkka›u sjóndeildarhring smáfólksins me› fer›alagi til London, Kaupmanna- hafnar e›a Frankfurt á ótrúlegu ver›i. Tilbo›i› gildir fyrir alla 2–12 ára farflega sem bóka›ir eru fyrir 15. maí í fer›ir á tímabilinu 9. mars til 30. september. KR. FYRIR BÖRN 2 – 12 ÁRA BARNAVER‹5.995 KR.A‹RA LEI‹ ME‹ SKÖTTUM Framsækið afturhald Íslenska þjóðin bregst vel við nýj-ungum og á auðvelt með að til- einka sér breyttar aðstæður. Við erum hrifin af nýmóðins raftækjum, enda virðast tæki landsmanna end- urnýjuð á tíðum útsölum raftækja- verslana. Við eigum heimsmet í því að skila skattframtölum á netinu og erum stolt af því. ÞRÁTT fyrir þessa þjóðarsál virð- ast stjórnvöld vantreysta almenn- ingi. Ungt fólk má ganga í hjóna- band, fara með eigin fjármál og hafa áhrif á hverjir stjórna landinu áður en því er treyst til þess að kaupa sér bjór á bar. Og enn þykir mörgum stjórnmálamönnum afleit hugmynd, ef ekki beinlínis hættuleg, að „leyfa“ fullorðnu fólki að kaupa sér léttvín og bjór í öðrum verslunum en í verslun ríkisins. Til höfuðs þessum viðhorfum hefur nú þurft að stofna sérstök samtök fólks sem vill breyt- ingar á regluverki um áfengi. VINUR MINN benti einu sinni á heilbrigða nálgun um breytingar á ríkjandi ástandi. Hún er leggja fyrir sig próf og spyrja: „Ef málunum væri öfugt háttað, myndi ég vilja skipta til baka?“ Í þessu tilviki: Ef fólk gæti verslað léttvín og bjór í matvöruverslunum, myndi ég leggja til að það yrði bannað? Ef 18 ára sjálfráða einstaklingum væri leyft að versla áfengi, myndi ég þá leggja til að það yrði bannað? VITANLEGA svara ekki allir eins, en þessi nálgun getur opnað augun fyrir kostum og ókostum þess að breyta. Íbúar dreifbýlis myndu sennilega búa við betra aðgengi að áfengi ef sala þess yrði frjálsari. Á Vestfjörðum er nú aðeins að finna tvö útibú ÁTVR, á Ísafirði og Pat- reksfirði. Er það sömuleiðis ekki til- tölulega augljóst að eitt hæsta áfengisgjald heims hefur áhrif á verðlagningu áfengis sem aftur bitn- ar á ferðaþjónustu? ANDSTÆÐINGAR breytinga í átt til frjálslyndis telja að afleiðing- arnar blasi við. Grimmar fórnir á altari Bakkusar. Þjóðin yrði í glasi öllum stundum. Hér birtist gamal- gróin vantrú á almenningi. Og kannski leifar þess tíma þegar eði- legt taldist að drekka brennivín í kók um helgar og annars ekkert. Af hverju ættu Íslendingar ekki að ráða við frelsi sem aðrar þjóðir hafa og eru bara nokkuð lukkulegar með? BAKÞANKAR ÞORBJARGAR S. GUNNLAUGSDÓTTUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.