Tíminn - 08.05.1975, Blaðsíða 1
Stjórnlokar
Olíudælur
Olíudrif
Al
V> ' • •
Landvélarhf
Byggingarkostnaðinn
er ha&at að lækka um
20-25% meS aukinni
verksmiðjuframleiðslu
— félagsmálaráðuneytið hrindir
málinu í framkvæmd í sumar
Til Vínarborgar
fyrir 15.000 kr.
Fargjaldastríð stendur nú i
algleymingi á milli feröaskrif-
stofanna, sem lækka verðið á
meöan allt annað hækkar, og
þaö er hart barizt um hvern
þann sem vill fara af landi
brott. En ýmis félög og samtök
skipuleggja einstakar ferðir og
virðastná ótrúlega góðum kjör-
um fyrir viðskiptavini sina.
Þannig efna Tónlistarskólinn
og Framsóknarfélögin i
Reykjavik til Vinarferða.
Tónlistarskólinn 10. mai og
Framsóknarfélögin 15. mai, og
er fargjaldið fram og aftur hjá
þeim krónur 15.000. Hjá Flug-
leiðum fengum við þær upp-
lýsingar, að lægsta verð, sem
þar' byðist væri 50.990 krónur
fyrir flugferðirnar utan og heim
aftur.
KOSTAR 60 ÞÚS, MED
ÁÆTLUNARFLUGINU
— f.j. Reykjavik. ,,Ég mun
strax að loknu þingi setja auk-
inn hraða á þetta mál, og það
ætti ýmislegt að geta unnizt i
vor og sumar,” sagði Gunnar
Thoroddsen, félagsmálaráð-
herra, í viðtali við Timann i
gær, en á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins boðaði hann að-
gerðir rikisstjórnarinnar til að
lækka byggingarkostilað um
20-25%.
Félagsmálaráðherrann sagöi
i viðtalinu við Timann, að á veg-
um félagsmálaráðuneytisins
heföi að undanförnu farið fram
könnun á þvi, m.a. i samráöi við
sænskt húsasmiðafyrirtæki I
Gautaborg og Byggingariöjuna,
hvort unnt væri að lækka bygg-
ingarkostnaðinn með þvi aö
auka verksmiöjuframleiðslu á
húsaeiningum. Niðurstaðan af
þessari könnun er sú, aö með
aukinni verksmiðjuframleiðslu
megi lækka byggingarkostnað-
inn uiii 20-25%.
„Þetta mál er sVo stórt, að
þáð þarf að sameina marga
aðilja til þessara átaka,” sagði
félagsmálaráöherra i viötalinu
við Timann. „Reyndar tel ég, að
þetta yrði einhver raunhæfasta
kjarabót, sem um er að ræða I
okkar landi.”
Ráðherra sagðist leggja sér-
staka áherzlu á, að leitað yrði
eftir samstarfi þeirra aðilja hér
á landi, sem þegar reka húsa-
verksmiðjur, og bygginga-
aðilja, en áfram yröi haft sam-
ráð við erlenda aðilja um tækni-
mál, „án þess að nokkuð liggi
fyrir um þaö, hvort þeir yröu
hluthafar eöa þátttakendur i
framkvæmdinni”.
,,Við ætluðum
að skjóta
framlappirnar
undan henni,
því að gaman
hefði verið að
sjó hana rúlla
niður fjallið"
-------------->
Stórhættulegir byssumenn:
SKJÓTA HVAÐ SEAA
FYRIR AUGU BER
tsólfur bóndi stendur hér á þeim
stað er byssumenn voru er þeir
skutu með langdrægum riffli i
þakið á hlöðunni, sem sézt lengst
til hægri á myndinni. Kona tsólfs
var niður á túninu ásamt kindum,
þegar hún heyrði skolSnýinn
drynja yfir höfðisér. Timamvnd:
G.E.
Gsal.-Reykjavik — „Ætli það megi
ekki segja sem svo, að tvenns
konar refir sæki hér grimmt að
okkur.skolli sjálfur og mannaref-
ir með byssur um öxl. Við getum
helzt ekki fariö hér frá um helgar,
þvi að sú hætta væri þá fyrir
hendi, að allt væri sundurskotið,
er við kæmum til baka”.
A þessa leiö mæltu hjónin I
tsóifsskála, Hertha Guðmunds-
son og tsólfur Guðmundsson, er
Timinn sótti þau heim I gær. Eins
og flestum er kunnugt er tsólfs-
ISLAND ER EINA LANDID
í EVRÓPU ÞAR SEM LÆKN-
AR ERU EKKI TRYGGÐIR
GEGN MISTÖKUM í STARFI
gébé-Rvík. — Ef læknum verða mistök á i starfi,
hverjir bera þá ábyrgðina? — Ef þeir vinna hjá
opinberum stofnunum, þá bera þær ábyrgö á mis-
tökunum, en ef Iæknir vinnur sjálfstætt á eigin stofu,
þá ber hann sjálfur ábyrgð. Hjá Georg Lúðvtkssyni,
framkvæmdastjóra hjá Skrifstofum rikisspitalanna,
fengum við þær upplýsingar, að tryggingar væru ekki
neinar hér á landi I þessu sambandi, og að lftið hefði
verið rætt um þessi mál.
Páll Þórðarson framkvæmdastjóri hjá Lækna-
félagi Reykjavikur, sagöi að þetta hefði ekki verið
rætt innan læknasamtakanna. En opinberar stofnanir
sagöi hann að bæru I flestum tilfellum ábyrgðina, ef
læknar, sem væru þar ráðnir, gerðu mistök i starfi.
Erlendis eru flestir læknar tryggðir gegn slikum
mistökum I starfi, en Georg Lúðviksson sagði, að mál
þessi hefðu verið litið rædd hér á landi, þar sem
árekstrar I þessu sambandi hefðu verið mjög litlir og
ekki hefðu gefizt tilefni til umræðna um þessi mál.
Læknar hér á landi eru þvi ekki tryggðir gegn þessu.
Trygging af þessu tagi gæti orðið geysihá, sagði
Georg.
skáli rétt austan viö Grindavfk,
og sækja byssuglaöir menn
gjarnan á þær slóöir til að fá útrás
fyrir iðju sina, — og er ágengni
þeirra mikii I landi tsólfsskála.
Liður vart nokkur helgi án þess
að skotgnýr drynji i eyrum ábú-
enda.auk þess sem veruleg hætta
vofir yfir mönnum og skepnum.
Isólfur er refaskytta og þekkir
þvi talsvert til skolla, en þau
hjónin hafa bæði átt i útistöðum
við mannarefina, sem bæði hafa
skapað þeim tjón og margvíslega
erfiöleika.
Að sögn þeirra hjóna halda
byssumenn sig gjarnan talsvert
fyrir ofan bæinn og skjóta I bjarg
þar eitt, þar sem talsvert er af
fugli.
— Það er hér nær stanzlaus
skothrið frá hádegi á laugardög-
um og fram á sunnudagskvöld,
segir húsfreyjan. — Mér finnst
einkennilegt að yfirvöld skuli láta
hvern sem er hafa byssuleyfi, án
undangenginnar athugunar á þvi,
hvort viðkomandi hafi eitthvert
landssvæði til sinna iðkana.
Hertha er Þjóðverji eins og
nafniö gefur til kynna, og viö innt-
um hana eftir þvi, hvort hún hefði
nokkuð rætt viö þessa kumpána.
— Já, það hef ég gert, en yfir-
leitt brúka þeir bara kjaft!. „Það
er barr. ekki hægt að þverfóta á
eigin landi fyrir þessum útlend-
ingum” segja þeir einatt I fyrir-
litningartón.
— Það þýðir varla nokkuð að
hringja i lögregluna I Grindavik,
segir Isólfur, — þvi aö afar erfitt
er aö ná fali af þeim Það er akkú-
rat engin þjónusta sem lögreglan
veitir, og mér finnst þaö mjög
miöur, þar sem hætta vegna þess-
ara manna vofir yfir okkur nær
allan ársins hring.
Þau hjónin sögðu okkur, að bær
Einars Benediktssonar skálds,
Herdisarvik, væri mjög illa far-
inn af völdum byssumanna. Brot-
izt hefði verið inn i hann, öllu
lauslegu stoliö, og húsiö sjálft
væri mjög illa farið eftir kúlna-
hriö.
— Eitt sinn komum viö að
byssumanni þar, og spuröum
hann, hvi hann væri að skjóta á
þessum stað, — hvort hann vissi
ekki aö meöferö skotvopna væri
bönnuö á svæðinu? Hann svaraöi
eitthvað á þá leiö, að allir Reyk-
vikingar færu þangaö til að
skjóta.
Isólfur sagði, að landeigendur
allt frá Reykjanesvita að Sel-
vogsvita, hefðu bannað alla meö-
ferð skotvopna á svæðinu, — en
það virtist ekkert hafa aö segja.