Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 4
4
t * ■ ? -j ” ;
' tLViínn
evv ';ir. -,v.-
Sunnudagur 25. mai 1975
Audry Heburn
leikur á ný
í kvikmyndum
Audrey Hepburn hefur siðast-
liðin 8 ár ekki leikið i nýjum
myndum, en haft um nóg að
hugsa i starfi sinu sem móðir og
eiginkona. Maður hennar sést
hér á myndinni með henni.
Hann er Italskur læknir og sál-
fræðingur og heitir Andrea
Dotti. Nú hefur heyrzt að
Audrey Hepburn ætli að fara að
leika á ný, en margir aðdáendur
hennar hafa undrazt yfir hlut-
verkavalinu hjá henni. Hún ætl-
ar sem sagt að fara að leika i
nýrri útgáfu af Hróa hetti á móti
Sean Connery, sem leikur Hróa.
Sagt er að Audrey fá eina millj-
ón dollara fyrir að leika i þess-
ari kvikmynd.
Prinsessan var nágranni Liz Taylor
Benedikta prinsessa af Dan-
mörku á von á þriðja barni sinu
nú I sumar. Þess vegna hafði
hún hægt um sig i vetur. Hún fór
með Richard manni sinum og
bömunum Gustav sex ára og
Alexöndru fjögurra ára til
Gstaad og þar tóku þau hjónin á
leigu hús. í næsta húsi bjó engin
önnur en leikkonan Liz Taylor,
sem einnig hafði hugsað sér að
taka lifinu með ró, og hafði leigt
sér þarna hús eins og prinsess-
an. Það varð þvi.hvorki rólegt
né leiðinlegt þarna, þvi að börn
Liz komu og l£ku á gitar og
skemmtu bæði sér og móður
sinni og nágrönnunum. Hér er
Benedikta með Alexöndru litlu.
★
★
I W’ Óttast að lenda
II ■■ á fátækraheimili
Hertogaynjan af Windsor hugs-
ar nú ekki um annað, en að ef til
vili eigi hún eftir að lenda á
fátækraheimili áður en langt
liður, vegna þess, hversu fátæk
hún er orðin. Vinir hennar trúa
þessu ekki, og benda henni á, að
enn eigi hún ófáar milljónirnar.
Hertogaynjanhlustarekkiá það
sem vinirnir segja, og sizt af
öllu eftir að Elizabeth Breta-
drottning hefur enn lagt sig
fram um að reyna að ná af henni
dýrgripum, sem hún á, en
drottningin hefur barizt fyrir
þvi að.fá þessa dýrgripi siðustu
40 árin. Til þess að spara hefur
Wallis sagt upp allmörgum
þjónum, sem hún hafði I þjón-
ustu sinni, og nú siðast sagði
hún upp einkaritara mannsins
sins sáluga. Hins vegar hefur
hún auglýst eftir „selskaps-
dömu” til þess að vera hjá sér.
Þegar þú ert búinn að
myndasögurnar Palli, eyddu þá
svolitlum tima i að lesa atvinnu-
auglýsingarnar.
lesac"cf
Ég skammaði lærlinginn ræki-
lega. Hann er svo rangeygður, að
hann hittir aldrei naglann á höf-
uöið.
DENNI
DÆMALAUSI
Ég var að hlusta á brandarana,
en ég skildi ekkert. Ágætt.