Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 10

Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 10
Nýjar myndir á Kjarvalsstöðum Það er einkenni bestu sona Reykjavikur, að þeir eru fæddir utan- bæjarmenn. Tómas Guðmundsson skáld er fæddur austur i Grims- nesi, Kristján Sveins- son, augnlæknir, sem er heiðursborgari Reykja- vikur, sá eini sinnar tegundar, er fæddur norður i Hegranesi og Reykjavikurmálarinn Kjarval, var austan úr Meðallandi, fæddur 1885 i Efri-Ey. Auövitað hafa allir þessir menn starfað i' Reykjavík, og þeir hafa augðað borgina með verkum sinum og persónuleika. Þaö er ekki tóm nýjungagirni, að höfuðstaður landsins hefur þá til virðingar innan sinna garða. „Utanbæjarmenn” hafnir til öndvegis Ekki er þetta samt einsdæmi. Frægustu Akureyringar i hópi skálda, voru ekki fæddir á Akur- eyri, þeir séra Matthias Jochum- son og Davið Stefánsson. Davfð var fæddur i Fagraskógi við Eyjafjörð, en séra Matthias var frá Skógum I Þorskafirði. Þessir menn hafa allir hafizt til virðingar i samfélagi sinu og um- hverfi i landi, þar sem mönnum var gjarnast að fara ekki yfir i aðrar sveitir, eða byggðarlög meö eitt né neitt, og utanhéraðs- menn voru tortryggðir i meira lagi. Eitthvað i svipuðum dúr voru hugleiðingar minar, er ég kom i Kjarvalsstaði á dögunum til að sjá „Kjarvalssýninguna” þar, sem er „permanent”, eða allt að þvi, — stendur yfir mánuðum saman. Þar eru hýstir ýmsir dýr- gripir, sem Reykjavikurborg hef- ur eignazt af verkum meistara Kjarvals, sum eru keypt, önnur hafa verið gefin og enn er að bæt- ast við. Kjarvalshús Það fór snemma að bera á þvi, að stjórnmálamennirnir vildu fara að gera eitthvað fyrir Kjar- val. Hann bjó og málaði i Austur- stræti 14, át að Hótel Borg og ók i gljáfægðum bil frá BSR, og öðru hverju sendi hann frá sér undar- leg kvæði, torráðna speki i formi Ijóða eða örstuttra blaðagreina. Hann varð lika snemma frægur af tiltækjum sfnum. Arin liðu. Kjarval eignaðist aldrei hús i lifanda lifi. Ekki i þeim skilningi, sem venjulega er lagður i skilgreiningu eigna- réttarins, eins og þá er birtist i veðmálabókunum. Hann tók að- eins hús á mönnum, og var au- fúsugestur. En nú hefur hann eignazt fastan samastað fyrir hluta verka sinna, Kjarvalsstaði, þar sem sérstakur salur er til- einkaður minningu hans og mál- verki. Við hittum á dögunum Alfreð Guðmundsson, forstöðumann Kjarvalsstaða og inntum hann eftir þessari Kjarvalssýningu, sem nú stendur. Hann hafði þetta að segja: Rætt við Alfreð Guðmundsson — Þetta er þriðja Kjarvalssýn- ingin, sem haldin er að Kjarvals- stöðum. t samþykktum borgar- „Yndislegt er úti vor”. Hjónin Matthiidur Kjartansdóttir og Guðbrandur Magnússon, forstjóri. Matthildur gaf Reykjavikurborg myndina skömmu fyrir andlát sitt, en þau hjón voru vinir Kjarvais um iangt skeið. Margir telja, að Guðbrandur hafi fyrstur tslendinga vakið opinberlega athygli á Kjarval og gert grein fyrir snilligáfu hans.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.