Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 5
Sunnudagur 25. mai 1975
TÍMINN
5
„Hættulegar"
vinsældir
Meöan unniö var aö töku kvik-
myndarinnar „Three Days Of
The Condor” I New York, varö
leikarinn Robert Redford aö
beita dulargervi og staögengl-
um i baráttunni viö bandóöa aö-
dáendur, sem ætluöu hann lif-
andi aö drepa, ef þeir komust
nálægt honum. Eftir upptöku
einnar senunnar, sem fór fram
á fjölfarinni götu i New York,
komst hann á flótta til búnings-
klefa sins, meöan hann beiö
þess aö bifreiö kæmi og flytti
hann á brott. Þegar bifreiöin
staönæmdist fyrir utan húsiö,
kom maöur á haröahlaupum
þaöan út, og haföi sá brugöiö
frakka yfir höfuö sér. Æstur aö-
dáendahópurinn kastaöi sér
þegar yfir vesalings manninn
meö hrópum og köllum. Allir
vildu komast sem næst átrúnaö-
argoöinu, og lætin voru svo
mikil, aö enginn veitti athygli
ungum, dökkhæröum manni,
sem gekk i hægöum sinum út aö
bifreiöinni og ók á brott.
—Þaö var sannarlega gott aö
geta einu sinni gengiö leiöar
sinnar án þess aö lenda i beinni
lifshættu, sagöi Redford
skömmu siöar. Hárkollan
bjargaöimér, en vesalings staö-
gengillinn minn var sannarlega
ekki öfundsveröur.
Meöfygljandi mynd sýnir þenn-
an vinsæla leikara I átökum viö
aödáendur sina utan viö kvik-
myndahús, þar sem hann var
viöstaddur frumsýningu. Lif-
veröi hans tókst aö bjarga hon-
um inn I kvikmyndahúsiö I þaö
sinn.
¥
Of kynþokka
V full?
Phinia Rosenblum var til
skamms tima hermaður I isra-
elska hernum, en svo var hún
rekin. Sjálf segist hún hafa ver-
iö látin fara vegna þess, aö hún
hafi þótt of kynþokkafull! Yfir-
maöur hennar hefur aðra skýr-
ingu: „Hún var einfaldlega rek-
in vegna þess aö hún hafði ekki
til aö bera nógu mikla að-
lögunarhæfileika. Hún neitaði
aö hlýöa skipunum og var bæði
löt og hyskin.”
Sem sagt staðhæfing gegn
staðhæfingu. Eflaust freistast
þó margir til að trúa fremur
staöhæfingum ungfrúarinnar,
eftir aö hafa skoðað meðfylgj-
andi mynd af henni. Hún hefur
nú snúið sér að fyrirsætustörf-
um, sem hún stundaði áður en
hún gekk i herinn, og býr i
glæsilegum húsakynnum i Tel
Aviv.
Ungfrú barmfögur
Arlega er haldin i Nissa i
Frakklandi mikil brjósta-
keppni. Hópur blaðaljósmynd-
ara kemur saman og velur úr
fjölmennum hópi þá stúlku, sem
aö þeirra dómi hefur glæsileg-
asta barminn. 1 fyrra hlaut
★
Muriel nokkur Malka frá Sviss
þennan eftirsótta titil, og var
meðfylgjandi mynd tekin af
henni við afhendingu verð-
launabikarsins, sem fylgir upp-
hefö þessari.
¥
Ekki tekið út
með sitjandi
sældinni
— Þaö er sko ekkert sældarlif aö
vera amerisk kvikmynda-
stjarna með milljónatekjur,
segir Lee Marvin. Hann ætti aö
vita þaö, þvi aö tekjur hans eru
ævintýralega miklar. En
skattayfirvöldin I landinu vita
þaö lika og Marvin segist ekki
geta um frjálst höfuö strokiö
fyrir þeim háu herrum.
— Ég rembist eins og rjúpan viö
staurinn viö aö vinna fyrir
nauöþurftum fjölskyldunnar,
segir hann og stynur þungan. Og
ég hef aldrei tima til aö njóta
lifsins. Skatturinn hiröir
bróöurpartinn af öllu sem ég
vinn mér inn!
¥
Upp að gíg
Etnu
í sovézkum
torfærubíl
Léttir torfærubilaraftegundinni
UAS, sem framleiddir eru I
borginni Uljanovsk við Volgu,
eru nú á sýningum i Egypta-
landi og Libiu. Þessir bilar
verða einnig kynntir á þessu ári
i Júgóslaviu, Búlgariu, Noregi,
Frakklandi, Finnlandi og fleiri
löndum. Verksmiðjan i Ulja-
novsk selur nú þegar torfæru-
bila til margra erlendra fyrir-
tækja. A ttaliu eru þeir til dæm-
is notaöir til að flytja ferðamenn
upp á gig Etnu.
★ ★
Aumingja litla Arabaprinnsessan
Heima hjá Hussein konungi i
Jórdaniu urðu menn ekki
sérlega kátir, þegar dóttir hans
Haya sá dagsins ljós. Það var
ekki vegna þess, að menn heföu
eitthvað á móti stúlkunni svona
út af fyrir sig, heldur vegna þess
aö stúlka getur ekki erft krún-
una þar i landi. Hussein á tvo
syni með fyrri konu sinni Munu,
sem er ensk. Þeir geta ekki tek-
iö viö konungdómi af föður sin-
um, vegna þess að móðir þeirra
er ekki nógu góðrar ættar. Hér
sjáið þið Aliu móður Hayu
vera að greiða henni, og nú biða
allir og vona að sonur fæðist áð-
ur en langt um liður.