Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 31

Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 31
Sunnudagur 25. mai 1975 TÍMINN 31 Börnin og umferðin Skipulag íbúðahverfa og umferðar • • oryggi Fyrstu áratugina eftir að bif- reiðar komu til sögunnar, mótaöist skipulag borga aðal- lega eftir þörfum þeirra. Að vísu voru yfirleitt lagðar gang- stéttar meðfram akbrautunum, en það var lika allt og sumt, sem gert var fyrir hinn gang- andi vegfaranda. A siðari árum hafa þessi viðhorf breytzt, eftir að bifreiðum hefur fjölgað og umferðarslys urðu alvarlegt vandamál. Mönnum er orðið það æ ljósara, að orsakir um- ferðarslysa má í mjög mörgum tílvikum rekja til umhverfisins, en ekki i jafn rikum mæli til vegfarandans eins og áður var talið. Nú er almennt álitið að leggja beri áherzlu á að laga umhverfið eftir manninum, en ekki manninn eftir umhverfinu. Þetta hefur aftur leitt til þess, aö við skipulagningu ibúðar- hverfa er umferðaröryggið orð- ið einn af meginþáttunum. Það er einkum tvennt, sem nú er gert til þess að auka umferð- aröryggi i nýjum ibúðarhverf- um, þ.e. aðskilnaður milli um- ferðar gangandi fólks og um- feröar vélknúinna ökutækja og flokkun gatna eftir hlutverki þeirra. Aðgreining umferðar gangandi og akandi Enda þótt hugmyndin um að- greiningu umferöar sé orðin um eöa yfir 40 ára gömul, er það þó ekki fyrr en á siðasta áratugn- um, sem hún að nokkru marki hefur komist i framkvæmd. Að- greining umferðar felst I þvi, að gert er sérstakt gangstígakerfi, sem tengir öll ibúðarhús hverf- isins við þá staði innan hverfis- ins, sem gangandi vegfarendur eiga erindi við, svo sem skóla, leikvelli, verzlanir og biðstöðv- ar strætisvagna, án þess að ganga þurfi yfir akbrautir. Þá er stigakerfi hverfisins tengt nærliggjandi hverfum með Breiðholt I, þar sem aðskilin er umferö gangandi vegfarenda og vélknúinna ökutækja. Punktalinur eru gangstigar. Gleymid okkur einu sinni - og þiö gleymið því aldrei í Leða yfir 4C Bændur — Takið eftir Ég er tólf ára duglegur drengur og vantar sveitapláss. Upplýsingar i sima 4-32-28. PLOTUJARN Höfum fyrirliggjandi plötujárn i þykktunum 3(4,5og6mm. Klippum nidur eftir máli ef óskacf er. Sendum um allt land STÁLVER HF FUNAHÖFÐA 17 REYKJAVIK 5IMI 83444 göngum undir eða brúm yfir þær umferðargötur, sem aðskilja hverfin. Nauðsynlegt er, að gönguleiðir séu sem stytztar og að stigakerfiö falli sem bezt inn i umhverfið. Göng og brýr þurfa að falla eðlilega inn i stigakerfið með sem stytztum vegalengdum að áfangastað svo tryggt sé, að þau verði notuð. Þá verða inngangar að íbúöarhúsunum að liggja að gangstigakerfinu. Flokkun gatna eftir hlutverki þeirra 1 umferðinni er einnig mikilvæg til aukins umferðar- öryggis. Einkum er þýðingar- mikið að ibúðargötum sé hlift við gegnumakstri, þannig að um þær fari ekki önnum umferð en sú, sem þangað á erindi. Oft er fullkomin aðgreining erfið I framkvæmd, og á þetta einkum við um eldri Ibúðar- hverfi. Kemur þar til mikill kostnaður og of mikil röskun á byggðinni. Þó má ýmislegt gera I þessum hverfum til aukins umferðaröryggis án mikils kostnaðar. tbúðargötum má loka fyrir gegnum akstur með þvl að loka þeim i annan endann og gera má fleiri götur aö göngugötum eða gera þær þannig úr garði, að hraður akst- ur sé útilokaður. Æskilegt er, að geröséu göng eða brýr, þar sem mikiö notaðar gönguleiðir skera miklar umferðargötur, en einnig má auka öryggi gangandi fólks með umferðarljósum eða vel merktum gangbrautum. Mikilvægast er, að börn á bamaskólastigi þurfi ekki að ganga yfir fjölfarnar umferðar- götur á leið I skóla og örugg leið sé aö leiksvæðum. Gatnakerfi Reykjavikur fiokkað Gatnakerfi Reykjavikur hefur þróast smátt og smátt, eftir þvi sem vöxtur borgarinnar gaf tilefni til, likt og I öðrum borg- um. Flokkun gatna i Reykjavík hefst raunverulega við gerð bogagatna og botngatna út frá aðalumferðargötunum. Með aðalskipulagi Reykjavikur er akstursgötum til þess að draga úr gegnumakstri. A siöasta ári samþykkti borg- arstjórn Reykjavikur áætlun um umhverfi og útivist. Áætlun- in gerir m.a. ráð fyrir aukinni aðgreiningu umferðar i eldri borgarhverfum með sérstöku Riss, er sýnir frumhugmynd aðskilnaðar gangandi og akandi umferðar. allt gatnakerfið flokkað og gert ráð fyrir sérstöku gangstiga- kerfi. 1 Árbæjarhverfi, Foss- vogshverfi og ibúöarhverfunum I Breiðholti er gangandi umferð greind frá umferð ökutækja á sérstöku gangstígakerfi, þótt ekkert þessara hverfa hafi algera aðgreiningu. 1 eldri hverfum borgarinnar hefur nokkrum ibúðargötum verið lokað í annan endann og aðrar hafa verið gerðar að einstefnu- göngu- og hljólreiðastigakerfi. Aætlunin tekur einkum miö af þeim sjónarmiðum, að börn geti feröast milli heimilis og skóla eftir stigunum, stfgarnir tengi ibúðarhverfin við útivistar- svæðin og stigar til útilifs og hressingar verði um útivistar- svæðin og á milli þeirra. Má vænta þess, að öryggi hins gangandi vegfaranda I borginni aukist mjög, þegar áætlun þessi er komin i framkvæmd. IA1 Kópavogur Félagsstarf eldri bæjarbúa Árshátiðin verður haldin þriðjudaginn 27. mai n.k. i félagsheimili Kópavogs, 2. hæð, og hefst kl. 8.30. Fjölbreytt dagskrá. Tómstundaráð. Sólun SÓLUM HJÓLBARÐA Á FÓLKSBÍLA, JEPPA- OG VÖRUBÍLA MEÐ DJÚPUM SLITMIKLUM MUNSTRUM. Ábyrgð tekin d sólningunni. Kaupum notaða sólningarhæfa nylon-hjólbarða. önnumst allar viðgerðir hjólbarða með fullkomnum tækjum. GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN. BARÐINN HF. Ármúla 7. - Sími 30501, —Reykjavík.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.