Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 39
Sunnudagur.‘í!5.,.mai-1'975
' ‘TÍMINN
39
Þórsnes II SH-109.
Slippstöðin á Akureyri
smíðar skip fyrir Hólmara
gébé—Rvlk. — Nýlega afhenti
Slippstööin hf. á Akureyri 150
lesta stálfiskiskip til Þórsness hf.
i Stykkishóimi. Skipið hlaut nafn-
ið „Þórsness II SH-109” við sjó-
setningu og er útbúið til linu-,
neta-, nóta- og togveiða.
Aðalvél skipsins er af gerðinni
Mannheim, og er 765 hestöfl við
850 snúninga á minútu. Tvær
hjálparvélar eru i skipinu af
gerðinni Volvo, einnig eru öll full-
komnustu fiskileitartæki, og má
þar nefna höfuðlinumæli. Skipið
er búið tveimur Kelvin-Huges
ratsjám, miðunarstöð, lóran vég-
mælir, sima- og kallkerfi, svo
eitthvað sé nefnt.
Skipstjóri á Þórsnesi II er
Kristinn Ó. Jónsson og Baldur
Ragnarsson 1. vélstjóri. Við af-
hendingu þessa skips, hefur
Slippstöðin lokið raðsmiði 150
lesta stálfiskiskipa að sinni, en
Þórsnes II er fjórtánda skipið af
þeirri gerð.
Aðalfundur
félags þroskaþjálfara
verður haldinn að
Kópavogshæli mið-
vikudaginn 28. maí kl.
20,30. Venjuleg aðal-
f undarstörf.
Stjórnin.
Fuglaskoðunarferð
Fuglaverndarfélag Islands efn-
ir til fuglaskoðunarferðar á
sunnudag, 25. mai. Farið verður á
ýmsa staði, þar sem fuglalif er
fjölskrúðugt og þar sem vænta
má ýmissa sjaldséðra fugla, svo
sem á Garðsskaga og i Sandgerði,
en þar má búast við að sjá
umferðarfarfugla á leið til Græn-
lands. Hugað verður að bjargfugli
i Hafnabergi, en þar má m.a. sjá
fimm tegundir svartfugla, topp-
skarf, ritu og fl.
Á Reykjanesi verður skoðað
silfurmávsvarp og i Valahnjúki
og á Alftanesi verður m.a. hugað
aö gæsum og öndum. Viðar verð-
ur komið við ef timi leyfir.
Lagt verður upp frá Iðnaðar-
bankanum við Lækjargötu kl.
9:30, og áætlað að koma i bæinn
afturum kl. 19:00. Leiðbeinendur
verða sérfróðir menn um fuglalif
þess svæðis, sem um verður farið.
KSÍ - ÍSÍ ^ LANDS
LEIKURINN
ísland - Frakkland
fer fram ó Laugardalsvellinum í dag
— sunnudaginn 25. maí — og hefst kl. 2 e.h.
Knattspyrnusnillingarnir Ásgeir, Elmar og Jóhannes
eru komnir til landsins og leika með islenzka landsliðinu
Aðgöngumiðasala við
W? ) Laugardalsvöllinn frá kl. 9 f.h.
^órriari- m/ -
!rá lrlanangh>
Fjölmennið á völlinn
og hvetjið íslenzka
landsliðið til sigurs
KNATTSPYRNUSAAABAND
ÍSLANDS
^:::::::f::::::::::: " ' 'j
L:l'lÉl:|l!Í:li':!i;7:i! lllil 88.
Aðalfundur F.U.F. Keflavík
Aðalfundur F.U.F. Keflavlk.
Veröur haldinn mánudaginn 2. júnl kl. 20,30 I Framsóknarhús-
inu. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á þing
S.U.F. önnur mál. — Stjórnin.
Þingmólafundir
Vestfjarðakjördæmi
Verða eins og hér segir:
Gunnlaugur Finnsson mætir 1
Félagsheimilinu Bolungarvlk.sunnudaginn 25. mai kl. 21
Félagsheimilinu Suðureyri, mánudaginn 26. mai kl. 21
Fleiri fundir verða auglýstir slðar. Allir velkomnir á fund-
ina.
Þingmenn Framsóknarflokksins.
r
Arnessýsla
Félag ungra framsóknarmanna I Arnessýslu heldur almennan
félagsfund að Eyarvegi 15, Selfossi föstudaginn 30. maí kl. 21.
Inntaka nýrra félaga. Kjörnir fulltrúar á þing SUF, sem haldið
verður á Húsavik 6. til 8. júni næst komandi. Kynnt verða drög að
ályktunum þingsins. Eggert Jóhannesson formaöur SUF mætir
á fundinum. Félagar fjölmennið og takið með ykkur nýja félaga.
Stjórnin.
Fimmtónda þing SUF
Fimmtánda þing Sambands ungra framsóknarmanna verður
haldið á Húsavik dagana 6., 7. og 8. júni næstkomandi. Nánar
auglýst siðar.
Stjórn SUF.
Vesturheimsvod
Gefjunar
Vinargjöf til Vestur-íslendinga.
Nú er þess minnzt, að öld er liðin, síðan fyrstu
landarnir tóku sér bólfestu í Vesturheimi. Enn
sem fyrr leitar hugur Vestur-íslendinga til ætt-
landsins norður í höfum. Frá íslandi berast einnig
kveðjur í ár, og hvað vottar betur bróðurhug en
værðarvoð frá Gefjun, ylur og gæði íslenzkrar
ullar.
Verð aðeins 2.950 krónur.
ULLARVERKSMIÐJAN GEFJUN, AKUREYRI