Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 37

Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 37
' Súriríudagur 25/ mat'l975 ^ TÍMINN Sýning á munum vangefinna í Domus Medica SJ-Reykjavík. í dag er haldinn i Domus Medica viö Egilsgötu, sýning á munum unnum af vist- fólki i Lyngási og Bjarkarási, dagvisturnarstofnunum Styrktarfélags vangefinna i Reykjavfk. Þetta er i annað sinn sem slik samsýning er haldin, og að henni hafa unnið I sameiningu, vist- menn, starfslið og foreldrar. Megnið af þeim munum, sem þarna verða, eru til sölu. Jafn- framtsýningunni verða á boðstól- um kaffiveitingar, sem for- eldrarnir standa fyrir. öllum ágóða af sýningunni verður varið til styrktar starf- seminni á þessum heimilum. Lyngás hefur starfað siðan árið 1961, og nú dveljast þar 44 börn. Flestir vistmanna eru við bóklegt og verklegt nám, en auk þess er einstaklingskennsla við hæfi hvers og eins. Yfirfullt er á heimilinu. A hverju vori eru haldin sund- námskeið fyrir vistmenri. Nefna má einnig sjúkraþjálfun og músíktherapi. Bjarkarás hóf starfsemi sína i nóvember 1971. Þar dvelja nú 38 vistmenn, frá 13-50 ára. Markmið heimilisins er að veita vistmönn- um haldgóða starfsþjálfun, en auk þess eru flestir vistmanna við bóklegt og verklegt nám. Rúm er fyrir a.m.k. sjö vistmenn til viðbótar. Mikil áherzla er lögð á likams- rækt, og eru reglubundnar kennslustundir fyrir alla vist- menn. Við þessi heimili starfa þroskaþjálfarar, sérkennarar, sjúkraþjálfi og leikfimikennari. Sálfræðingur, læknar, félags- ráðgjafi og talkennari. 1 Lyngási er starfsfólk alls 18 auk forstöðukonunnar, Hrefnu Haraldsdóttur. 1 Bjarkarási er starfsfólk alls 18, auk forstöðukonu, Gretu Bachmann. Nokkuð af starfsfólki er i hluta úr starfi. Ýmsar markverðar nýjungar hafa orðið i' starfseminni undan- farin ár. Fyrst má nefna sumar- ferðalög og sumardvöl. Á síðastl. sumri fóru vistmenn Bjarkaráss, ásamt starfsliði, í 3ja vikna ferð til Noregs og Spánar, og fyrirhuguð er 1/2 mánaðar sumardvöl i heimavistarskóla á Vesturlandi f sumar. Vistmenn Lyngáss dvöldust slðasl. sumar I Sogni i ölfusi, og i ráði er að börnin dveljist þar aftur i sumar, ásamt starfsliði. Fleiri nýjungar er hægt að nefna. Siðastliðna tvo vetur hafa verið haldnir dansleikir fyrir vistfólk á stofnunum vangefinna i Reykjavik og nágrenni, 16 ára og eldri. Þessar skemmtanir hafa verið mjög fjölsóttar og vakið mikla gleði og ánægju allra þátt- takenda. Reynt er á þennan hátt að koma til móts við þarfir þessara einstaklinga, sem ekki geta sótt slikar almennar samkomur. Samstarfið á milli foreldranna og heimilanna er með miklum ágætum. Almennir foreldrafundir eru haldnir reglulega yfir vetrar- mánuðina, og auk þess fundir með smærri hópum og einstaklings viðtöl. Foreldrar taka mikinn þátt i starfseminni. M.a. hafa þeir staðið fyrir skiðaferðum i Blá- fjöll, haldið fyrrnefnda dansleiki, gengizt fyrir fjáröflun, og er þetta ómetanlegur stuðningur við heimilin. Málefni vangefinna eru og verða i sifelldri þróun. Stefna sú, sem rutt hefur sér til rúms á sið- ari árum, felst i þvi aö samhæfa (integrera) þessa einstaklinga þjóðfélaginu, eftir þvi sem unnt er. 1 þessu skyni er megin áherzlan lögð á uppbyggingu dagvistar- stofnana, s.s. leikskóla, heiman- gönguskóla, starfsnámsskóla o. fl. Einnig má nefna vemdaða vinnustaði og lítil heimili fyrir fullorðna, sem ekki þarfnast fuilrar dvalar á vistheimilum, ef þessir möguleikar eru fyrir hendi. Styrktarfélag vangefinna hefur þvi afráðið að taka á leigu ibúð i Reykjavik næstkomandi haust fyrir 4-5 stúlkur, vistmenn i Bjárkarási. Er þetta algjör nýjung hér á landi, en algengt orðið erlendis, einkum á Norðurlöndum. Af öðrum framtiðarverkefnum, má geta um viðbyggingu, sem fyrirhuguð er við Lyngás sem verður skólabygging, og standa vonir til að unnt verði að hefja framkvæmdir á næsta ári. Af þeim vistmönnum, sem verið hafa i Bjarkarási siðan starfsemin þar hófst, hafa tvær stúlkur farið út i atvinnulifið. Þangað hefur einnig komiðfólk til dagvistar, sem áður hefur verið i vinnu annars staðar, en orðið frá að hverfa af ýmsum orsökum. Erfitt er að útvega vangefnum atvinnu eins og öðru fötluðu fólki, og enn færri verða starfstilboðin, þegar atvinnuleysi gerir vart við *sig á almennum vinnu- markaði. Fáum mun kunnugt, að fyrirtækjum, sem rikið styrkir og rlkisstofnunum er skylt að ráða fatlaða sem starfsfólk að vissri hundraðstölu samkvæmt lögum um endurhæfingu. 1 Bjarkarási vinna vistmenn við frágang, pökkun, saumaskap og léttan iðnað fyrir ýmsa aðila. Afköstin hafa aukizt mikið siðan heimilið tók til starfa, enda hefur um helmingur vistmanna verið þar frá upphafi og hefur þjálfazt mikið við störfin á þeim tima, sem liöinn er siðan. Fjölbreytni mætti vera meiri i verkefnum og stundum er skortur á viðfangs- efnum. Heimilið hefur fengið verkefni frá Reykjavikurborg, RikisspItölum, Sólarfilmu, Plastos og fleiri fyrirtækjum. A heimilinu eru framleidd rúmföt, diskaþurrkur, gólfklútar og svuntur með tauþrykki. Verður þessi varningur til sölu á sýningunni i dag. Sömuleiðis leir- munir, er vistmenn hafa gert, hannyröir og ýmislegt fleira. Aðrir munir eru persónuleg eign fólksins, og eru aðeins til sýnis. Foreldrar og starfsfólk Lyngáss og Bjarkaráss vænta þess, að almenningur sýni mál- efnum vangefinna áhuga með þvi að leggja leið sina i Domus Medica á sunnudaginn kemur. Konurnar sjá um saumaskapinn. Unniö að saumaskap og frágangi á rúmfatnaði og klritum. Yfirfullt d dagheimilinu og skólanum Lyngdsi, en sjö til viðbótar gætu komizt að í Bjarkarósi, dagvistunarheimili Styrktarfélags vangefinna fyrir fullorðna. Tvær stúlkur hafa farið út í atvinnulífið Pökkun er vinsælt viöfangsefni I Bjarkarási. I sólinni nri í vikunni hömuöust piltarnir I Bjarkarási f leikfimi riti i garöinum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.