Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 29
Sunnudagur 25. mai 1975
y[ w ( ívf
TÍMINN
29
Sölufulltrúarnir, sem hiutu lslandsferO f verðlaun ásamt Gfsla Theódórssyni lengst til vinstri, Egon
Patterson er þriðji frá vinstri.
Selja norrænt súkkulaði
— og hlutu íslandsferð í verðlaun
HÉR á landi eru nú
staddir 19 sölufulltrúar
samvinnuverksmiðj-
anna NORDCHOKLAD i
Sviþjóð, og i tilefni af þvi
átti Timinn samtal við
Egon Petterson, mark-
aðsstjóra verksmiðj-
anna og Gisla Theódórs-
son, aðstoðarfram-
kvæmdastjóra Innflutn-
ingsdeildar Sambands-
ins, sem hefur umboð
fyrir NORDCHOKLAD
á íslandi.
— Hvert er tilefni feröar ykkar
til tslands, Petterson?
— Það er kannski rétt að ég
byrji á að segja frá þvi að Nord-
choklad-verksmiðjurnar eru
sameign samvinnusambandanna
I Svlþjóð, Danmörku og Noregi og
eru staðsettar I Kalmar og Astorp
I Svlþjóð og I Kolding i Dan-
mörku, og náin samvinna er auk
þess við verksmiðju norska sam-
vinnusambandsins i Osló, sem
bráðlega verður hluti af Nord-
choklad. Nýlega hefur einnig ver-
ið tekið upp mikið samstarf viö
verksmiðju Evrópusambandsins
i Dortmund I Þýzkalandi, og sam-
vinna hefur lengi átt sér stað við
finnsku samvinnusamböndin
SOK og OTK.
Allar þessar verksmiðjur, sem
hér hafa verið nefndar, framleiða
súkkulaði- og sælgætisvörur og
miðast samvinnan við að ná sem
heppilegustum framleiðslu- og
dreifingaraðferðum.
Þar sem sölusvæði verksmiðj-
anna er mjög stórt, nánast öll
Norðurlöndin, er því skipt niður I
mörg minni svæði og er sölufull-
trúi frá verksmiðjunum búsettur I
hverju þeirra og stjórnar sölunni I
sinu umdæmi. Við ákváðum á sl.
ári að efna til sölusamkeppni á
milli sölufulltrúanna og gáfum
þeim ákveðið takmark að vinna
að, sem satt bezt að segja, var
mjög strembið, en Væri þvl marki.
náð, skyldu verðlaunin verða ferö
til íslands. Ahugi á þessari ferö
var geysimikill, sem sést bezt á
þvl, að nær allir sölufulltrúar
okkar náðu settu marki, sem var
betri árangur, en viö höfðum
vænzt, og nú erum við hér komnir
19 saman og verðum hér i eina
viku.
— Hvernig er með okkur ts-
lendinga, Gisli. Kaupum við mik-
ið frá þessum verksmiðjum?
— Já, við kaupum mikið af
TOP KVICK súkkulaðidrykknum
frá þeim en hann hefur náð afar
miklum vinsældum á Norður-
löndum og er m.a. mest seldi
súkkulaðidrykkurinn I Danmörku
og með um 43% af sænska mark-
aðnum. Við höfum einnig keypt
nokkuð af sælgæti frá NORD-
CHOKLAD, en það er mjög gott.
Magnið hefur hins vegar tak-
markazt af þeim litlu innflutn-
ingsleyfum, sem við höfum fengiö
undanfarin þrjú ár, og eins og
kunnugt er var hætt við að gefa
innflutning sælgætis frjálsan um
sl. áramót eins og ráögert hafði
verið. Við getum þvl boðið mjög
takmarkað af þvl úrvali, sem
þessar verksmiðjur hafa á boö-
stólum, enn sem komið er.
— Hvernig eyðið þið nú tíman-
um, Petterson, þessa viku hér?
— Það fer enginn tlmi til spillis
hjá okkur og hver mlnúta er
notuð. Við áttum fund með for-
stjóra og framkvæmdastjórum
Sambandsins strax fyrsta
morguninn og fórum slðan I
skoðunarferð um borgina I þessu
yndislega hreina og tæra lofti og
enduðum hana með þvl að fara I
Laugardalslaugina, sem við vild-
um helzt geta tekið heim meö
okkur, sérstaklega heitu pottana.
Tvo daga notum við til funda-
halda með sölufulltrúum okkar,
en slika fundi höldum við sam-
eiginlega tvisvar á ári. A föstu-
dag og laugardag er ráðgert að
við dreifum okkur á kaupfélags-
verzlanirnar hér I Reykjavlk og
nágrenni og kynnum okkur vörur,
þær sem til eru hér. Einnig er
ráðgerð ferð til Akureyrar, þar
sem ætlað er að skoða verk-
smiðjur Sambandsins og
verzlanir kaupfélagsins og ef til
vill verður farið til Mývatns, ef
veður leyfir. A sunnudaginn mun-
um við fara á,,Þingvöll, Gullfoss
og Geysi og skoða sögustaði á
leiðinni, sem flestir okkar hafa
lesið um. Við fáum þvl mikiö út úr
þessari ferð, eins og þú heyrir.
— Hvað vilt þú annars segja
okkur frá verksmiðjunum og
Kalmar?
— Það er helzt frá verksmiðjun-
um að segja, að við framleiðum
um 16.000 tonn af sælgæti á árr og
verksmiðjurnar eru mjög full-
komnar, búnar miklu af sjálf-
virkum vélakosti. Starfsfólk er
um 800 manns. Stærsta verk-
smiðjan er á strönd
Suður-Svíþjóöar I Kalmar. Oti
fyrir ströndinni liggur eyjan
öland, sem er næststærsta eyja
Svlþjóðar, 87 mllna löng og 10
mllna breið, og skýlir hún
ströndinni. Ot I þessa eyju, en þar
búa um 21.000 Ibúar, liggur
lengsta brú I Evrópu, rúmir sex
kllómetrar og setur sinn svip á
umhverfið. í þetta mikla
mannvirki fóru 350.000 tonn af
sementi og um 6.000 tonn af
steypustyrktarjárni. A eyjunni er
mjög fjölskrúðugt jurta- og dýra-
llf. Þar vaxa t.d. villtar orkideur,
sem ekki finnast annars staðar I
Norður-Evrópu.
Nú að lokum vonum við að
viðskipti okkar við ísland muni
aukast I framtiöinni, þegar
aðstæður leyfa, en það er einmitt
tilgangurinn með samvinnuverk-
smiöjunum, að leitast viö að
framleiöa góðar og ódýrar vörur
á sem hagkvæmastan hátt fyrir
félagsmenn og aöra viðskipta-
vini.
V r~ "~^V [~p
r J 3 _J
FRITT
BENZÍN
í 2-5 ÁR?
Nei, það getur ekki verið
— og þó!
Jó, ef borið er saman verð á bílum sem til eru, og þeim sem
fluttir væru inn frd verksmiðjunum í dag.
Bendum á að við getum afgreitt strax nokkra SCOUT II V8
304 cubic inch, sjólfskipta með vandaðri innréttingu, toppgrind
og dróttarstuðara með 'tengi.
VERÐ KR. 1.680 ÞÚSUND
Vinsamlega ræðið við sölumenn okkar um þetta hagstæða
tilboð og athugið möguleika ó að eignast það sem sumir kalla
BEZTA BÍLINN SEM VÖL ER Á
í DAG......
Srjmband islenzkra samvinnufélaga
VÉLADEILD
Armula 3 Reykjavik simi 38900
lcfeí
m Sumarbúðir
Bandalag háskólamanna
hefur tekið á leigu sumarbústaði til afnota
fyrir félagsmenn sina i sumar.
Þeir sem vilja taka á leigu sumarbústaði
eru beðnir að hafa samband við skrifstofu
bandalagsins (s. 21173) sem allra fyrst.
Tínúnn er
peningar
VIÐ
HÖFUM
mikið úrval af
olíufylltum
rafmagnsofnum frá
Dimplex
Englandi
Auk glæsilegs útlits,
er sjálfvirkur hitastillir á
hverjum ofni, sem stjórnast
af lofthita herbergis.
Ofnarnir gefa frá
sér þægilegan hita.
Ofnarnir eru til f 2 gerðum
og frá stærðum
500 w—200 w
Allar nánari upplýsingar
VANGURHE
VESTURGÖTU10 SÍM119440 & 21490 REYKJAVIK