Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 34

Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 34
^34 -'Sunnudagur 25. -mai W75 Ennfremurá eldra veröi: Hakkavélar og Multimix- arasett fyrir Braun KM 32 hrærivélar. Viðgerðir og varahlutaþjónusta fyrir Braun heimilistæki og rakvélar er hjá okkur. ■III jHHill 1 II! i ii Hminn óskar þessum brúðhjónum til 'i llMk ' ;|U j hamingju á þessum merku timamótum i M ií jjj| ^ j ævi þeirra. No 37 Páskad. voru gefin saman i Reykjahliöarkirkju af sr. Erni Friörikssyni, Sigriln Sverrisdóttir og Friörik Jó- hannsson. Heimili þeirra verður aö Alfheimum 27, Rvk. Ljósmyndastofa Þóris. No 38 Laugard. 28. des. voru gefin saman af s r. Grimi Grimssyni, Sigriöur Ólöf Björnsdótti'r og Guölaugur R. Magnússon. Heimili þeirra veröur aö Arahólum 4, Rvk. Ljósmyndastofa Þóris. No 39 Þann 12. aprfl s.l. voru gefin saman I hjónaband I Landakotskirkju, þau Jennifer O’Grady og Jón Magnús Sigurösson. Katholski biskupinn Hinrik Frehen, gaf brúöhjónin saman, brúöarmeyjar voru Carmel O’Grady og Signý Siguröardóttir. Heimili brúöhjónanna verður aö Blikanesi 31. Pétur Eggerz: Skrifstofur íslenzkra sendiráða erlendis Þegar útlendinga vantar upp- lýsingar um tsland hvort heldur sem þær eru viðskiptalegs eðlis eða á menningarsviðinu, þá snúa þeir sér til skrifstofu sendiráða landsins erlendis. Að- eins örfáir þeirra eiga þess kost að koma á hinn glæsilegu heim- ili Islenzku sendiherranna. Þeir dæma þvi tsland eftir sendi- ráðsskrifstofunum og þvi starfsfólki sem þeir hitta þar. Ég hef lengi velt því fyrir mér.hvers vegna það hefur allt- af verið talið nauðsynlegt að bústaðir sendiherranna séu sem glæsilegastir, en hitt talið skipta minna máli, hvernig skrifstofur sendiráðanna eru úr garði gerð- ar. 1 23 ár starfaði ég við sendiráð Islands f London, Washington og Bonn, og hef þvi haft gott tækifæri til að mynda mér skoðanir um þessi mál. Það er siður I London aö taka sér stutt hlé frá störfum klukk- an 4 og fá sér tebolla. Það kom fyrir þegar ég sneri aftur til skrifstofu minnar eftir tehléið að mús var á skrifborðinu minu, og var að narta í skjöl frá utan- rlkisráðuneytinu, sem ég hafði verið að vinna úr. Arið 1950 fluttist ég til starfa I Washington D.C. — Skrifstofur sendiráðsins voru við 909.16th Street. Þar voru rottur á milli veggja. Sundum þegar starfs- fólkið var þreytt eftir störf i þrúgandi hita, átti einhver það til að spretta upp og sparka i vegginn, þar sem mest var nag- aö þá stundina. Rotturnar hættu um stund, gáfu þessi sparki svo ekki frekari gaum og héldu áfram sinni fyrri iðju. Negrabil- stjóri sendiherrans hélt skrif- stofunum hreinum með grófum sóp og fægiskúffu og vann þetta verk að segja má með vinstri- hendinni. Þessar sendiráðs- skrifstofur I Washington voru til þess fallnar að koma sóðaorði á islendinga. Sendiráðsskrifstof- urnar í Bonn voru I kjallaraholu með járngrindum fyrir glugg- um, rétt eins og dæmigerð fang- elsiskompa. Nærri má geta hvernig það hefur orkað á þýzka viðskiptavini sendiráðsins að ganga þarna niður I kjallarann, þá sem voru að gleyma þeim tlma, þegar Þýzkaland var lík- ast allsherjarfangabúðum. Flest hefur nú breytzt til bóta á seinni árum. En þessi vinnu- skilyrði, sem ég þekkti af eigin reynslu, hafa orðið til þess að mér hefur komið I hug hvort það myndi ekki heppileg fyrirkomu- lagsbreyting, að gera veg sendi- ráðsskrifstofanna mun meiri en hann er nú, t.d. i þá átt sem hér er getið. öll embættisstörf sendiherranna, þar með taldar opinberar veizlur, sem haldnar eru á þeirra vegum, fari fram i sendiráðsskrifstofunum, enda verði markvíst unnið að því að útbúa þær með það fyrir augum, að þær geti þjónað þessu hlut- verki. Einnig verði i skrifstof- unum eins konar dulbúin vöru- sýning I smáum stil á islenzkum listaverkum, girnilegum iðnaðarvarningi, og jafnvel vissum tegundúm matvæla- framleiðslu eftir þvi sem við á og hagkvæmt þykir. Góð aðstaða þarf að vera i byggingunni til minni háttar veizluhalda. Þessa aðstöðu ber að hagnýta m.a. til að fram- reiða stöku sinnum handa fréttamönnum og öðrum gest- um girnilega rétti Ur islenzku hráefni i auglýsingaskyni. Stundum, þegar mikið væri við haft, mætti fá islenzkan mat- svein til að sýna, hvað bezt er hægt að gera á þessu sviði. Með auknu og bættu húsnæði fyrir sendiráðsskrifstofurnar yrði það einkamál sendiherra, hvar og hvernig þeir byggju, þar sem heimili þeirra væru úr tengslum við erilsaman hversdagsleikann. Það er sjálf- sögð krafa tímans, að losa fjöl- skyldur sendiherranna undan þvi þunga álagi, sem starf þeirra hefur oft á þær lagt og sendiherrafjölskylda eigi þess kost að búa við lika heimilis- hætti og aðrir almennir borgar- ar. Skrifstofurnar ættu að vera skreyttar margbreytilegum is- lenzkum listaverkum og fögrum iðnaði. Avallt þurfa að vera fyrir hendi aðgengilegar upp- lýsingar um þennan varning og hverjir annist sölu hans. öll húsgögn skulu unnin af islenzk- um iðnaðarmönnum. Veizluföng verði tilbúin af „catering firms”,sem senda heim tilbúinn. mat. Þannig á kona sendiherra ekki að þurfa að hafa annað fyrir samkvæmum, en hafa hönd I bagga með hvað á borð er borið og taka siðan á móti gest- um með manni sinum. Ekki er þýðingarlitið atriði, að uppeldi barna á sendiherra- heimllum geti orðið heilbrigt og eðlilegt, þegar búið er að skilja að eftir þvi sem unnt er heimilislif og skyldustörf sendi- herra. Varðandi gerð og nýtingu á vel útbúnu sendiráðshúsnæði yrði þar ágæt gistiaðstaða fyrir Islenzku forsetahjónin, er þau væru á ferð og á sama hátt fyrir ráðherrahjón þegar svo stæði á. En eins og vitað er, þá eru utan- ferðir ráðherra orðnar tiðar vegna samningagerða og ráð- stefnuhalds. t sumum löndum er ef til vill ekki unnt að koma þessu fyrir- komulagi að fullu við og yrði þá að fara bil beggja. BRAUN-UMBOÐIÐ — Sími sölumanns er 18785. RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS HF. Ægisgötu 7 — Sími 17975/76 JOLBARÐAR Kjara verð 825x20/12 Nylon 900x20/14 " 1000x20/14 " 19.530 21.830 27.320 1000x20/16 1100x20/14 28.560 29.560 1100x20/16 31.320 Full óbyrgð á sólningunni §éura&n Sendum póstkröfu Nýbýlavegi 4 — Sími 4-39-88 Kópavogi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.