Tíminn - 25.05.1975, Síða 6
6
TÍMINN
I , jj* -r jjV- í. fj fíííc'
Sunnudagur 25. mai 1975
Ingólfur Davíðsson:
Byggt og búið í
gamlo daga
LXXV
MásstaÐir
Að þessu sinni eru , birtar
myndir úr byggðasafninu i
Görðum á Akranesi. Hörpuút-
gáfan á Akranesi birti undir
nafninu „Siðustu torfbæirnir”.
Séra Jón M. Guðjónsson teikn-
aöi eftir lýsingu kunnugra
manna. Kvaðst hann jafnan
hafa gert frumriss og sýnt
heimildarmönnum, svo þeir
gætu gert athugasemdir áður en
fullkomlega var gengið frá
myndunum. Þessir gömlu torf-
bæir eru nú allir horfnir, en
teikningarnar varðveitp svip
þeirra. Skýringar séá7a Jóns
fylgja myndunum, er hann góð-
fúslega léði mér til birtingar.
Bæirnir flestir i burslíastíl, gafl-
ar úr tré, nema á Króssi eru þeir
hlaðnir úr torfi. Myndirnar eru
þessar:
1. Krossi Innri-Akraneshreppi i
Borgarfjarðarsýslu til stuttu
eftir 1900. A Krossi bjó fyrrum
þýzkur máfður, Hans Klingen-
berg, og er ætt frá honum runn-
in.
2. Másstaöir i sama hreppi
stóðu nokkuð fram yfir 1900.
Þama eru timburþilin mörg.
Alatjurtagarðar fyrir dyrum á
báðum bæjum.
3. Heynes einnig i Innri-
Akraneshreppi. Þar var þing-
staður i aldaraðir, og kirkja af-
lögð I byrjun 18. aldar. Móta
sést fyrir dómhring i túninu.
Þar mætti Jón Vigfússon
(Bauka-Jón) þá sýslumaður
Borgfirðinga á Leirá fyrir rétti
og var dæmdur fyrir tóbaks-
smygl á sinum tima.
4. Stóra-Fellsöxl i Skilmanna-
hreppi I Borgarfjarðarsýslu til
1911. Þarna var heldur lágreist
að sjá. Jón Hreggviðsson átti
heima á Fellsöxl, þegar hann
var hýddur fyrir snærisstuldinn.
Þar bjó Bjarni Jónsson Borg-
firöingaskáld á 18. öld, andrikur
vel. Hafa sálmar eftir hann ver-
ið I sálmabókinni.
5. Hliöarfótur i Svinadal i
Hvalf jarðarstrandarhreppi.
Byggingarlagið er hér fjöl-
breyttara, þ.e. burstir, hóllaga
torfhús og hús, sem snýr hlið-
inni fram. Matjurtagarður
framundan, eins og viða virðist
hafa verið á sunnanverðu
landinu. Norðanlands völdu
menn oft garðstæði i halla móti
sól, stundum góðan spöl frá
bænum.
Séra Jón hefur unnið þarft
verk með bæjateikningum sin-
um. Nyrðra vann læknir —
Jónas Rafnar — það mikla
tómstundaverk, að teikna
grunnmyndir af öllum eða flest-
öllum bæjum i Eyjafirði innan
Akureyrar, áður en
nýbyggingaaldan sópaði þeim
burt. með öllu. Mun vera i
undirbúningi að gefa teikning-
arnar út.
o
t siðasta þætti féll umsögn um
húsið i Sveinatungu niður i
prentun. Þetta steinsteypuhús
lét Jóhann Eyjólfsson bóndi
byggja 1895. Steinsmiður var
Sigurður Hansson. Tveir menn
voru að mylja grjót i steinsteyp-
una allt sumarið og 3 menn að
flytja byggingarefni og höfðu 20
hesta i hverri ferð. Þetta mun
vera fyrsta sementssteypuhúsið
i sveit og var mikið um það tal-
aö. En fyrsta steypuhúsiö á
landinu er kalksteypuhús i
Görðum á Akranesi byggt á ár-
unum 1876 — 1881. Það var um
skeið notað sem likhús, en siöast
fyrir byggðasafnið.
Stóra-Fcllsöxl
Heynes