Tíminn - 25.05.1975, Page 9
Sunnudagur 25. mai 1975
TÍMINN
9
Aðstöðu og
fjármagn skortir
Það var siðastliðið haust að
þessar aðgerðir hófust til að
halda lifinu i islenzka hænsna-
stofninum. Fréttir af þessari
starfsemi komu i sjónvarpinu og
eftir það fréttist um islenzk
hænsni i Vatnsdal, Eyjafirði, Suð-
ur-Þingeyjarsýslu og einni hænu
á Baröaströnd, en vitað var að is-
lenzk hænsni voru I öræfum og
nokkuð viða i Norður-Múlasýslu.
Eftir er að kanna margt i sam-
bandiviðhænsnin,m.a. hvort þau
eru hreinræktuð aftur I aldir.
Aðstaða til þessarar starfsemi
skortir algerlega á Keldnaholti.
I kjallaranum er útungunarvél.
Og þar eru ungarnir til húsa og
hitað upp með rafmagnslömpum,
þvi of kalt er i kjallaranum. CJt-
ungunin hefur gengið misjafn-
lega, enda eru hænsnin mjög
skyldleikarætkuð. Ef til vill hefur
einnig orðið einhver misbrestur á
fóðri. Aðeins hefur tekizt að fá tiu
lifandi unga siðan i haust. Full-
orðnu hænsnin hafa fengið inni á
tilraunastöðinni að Korpu, þar
sem þau eru i horninu hjá sauðfé,
sem er i meltingarrannsóknum.
Mikil þörf er að fá hænsnahús fyr-
ir þessa starfsemi.
Ekkert fjármagn hefur fengizt
ennþá til viðhalds hænsnsastofns-
ins, en m.a. hefur verið sótt um
styrk til Visindasjóðs.
— Ég kvarta ekki yfir fjárveit-
ingavaldinu ef um verkefni er að
ræða, sem skila sæmilegum
hagnaði I fyrirsjáanlegri framtið,
segir dr. Stefán. — En það sem
auösætt er að ekkert muni gefa af
sér á næstunni, þar er erfiðast að
fá þörfina viðurkennda. Það er
hart að fá ekki fjárveitingu til
þessara hluta. Ég sótti nýlega um
að fá einn rannsóknamann i
aukabúgreinar, hænsnarækt,
svinarækt, hrossarækt, minka-
rækt, o.fl. Islenzka svinakjötið er
alltof feitt. Með tilraunum i
svinarækt væri liklega hægt að ná
stórkostlegum árangri með til-
tölulega litlum tilkostnaði. En
það litla sem gert er hér i þessum
greinum er unnið án þess að hafa
neitt til neins.
Handhægt að ala
gæsir til slátrunar
sem villibráð
— Við spyrjun Stefán hvort
fleiri hugmyndir séru á döfinni I
fuglarækt.
— Þær eru nú fyrst og fremst á
pappirnum ennþá. Ég hef hug á
að ala upp gæsarunga til slátrun-
ar, sem villibráð, en i áheldi. ís-
lenzk gæs er skotin I Bretlandi og
þykir herramannsmatur. Kjötið
af gæsunum er ákafl. gott. Þær
lifa mikið á islenzku grængresi af
túnum og nýræktum. Það mætti
vel fóðra þær, annað hvort með
þvi að beita þeim eða gefa þeim
grasköggla inni. Veigamikil rök-
semd fyrir slikri ræktun er að
gæsin er grasbitur og þvi þarf
ekki kjarnfóður handa henni og
gras getum við framleitt hér.
Þarna virðast vera ákveðnir
möguleikar, sem þyrfti að kanna.
En þetta eru allt saman bolla-
leggingar, þar sem ekkert fjár-
magn er til framkvæmda.
Þá er áhugi á að hlú að æðar-
varpinu, með þviaðhefja tilraunir
annaðhvort að Reykhólum á
Barðaströnd eða i Engey. Æöar-
varp fer minnkandil Ég veit t.d.
um hólma út af Austurlandi, þar
sem eitt sinn fengust 60 kiló af
dún á ári, en nú er engin æðar-
rækt. Dúntekja hefur stórminnk-
að sums staðar á landinu. Og er
brýnt að styðja við bakið á æðar-
ræktinni sem búgrein. Hún og
aðrar aukabrúgreinar auka fjöl-
breytni i búskap landsmanna og
renna fleiri stoðum undir hann.
— Það er margt skemmtilegt
og sérkennilegt við islenzkt búfé,
segir Stefán Aðalsteinsson okkur
ennfremur. — Það má gripa niður
svo að segja hvar sem er i is,-
lenzku búfé og finna sér nýstárleg
rannsóknaverkefni, sem er hvert
og eitt alger nýjung i visinda-
heiminum, af þvi að hér er búfé
einangrað frá öðrum kynjum.
Við eigum t.d. samfelldasta safn
af litum i sauðfé, sem nokkurs
staðar er að finna. Hér fundust
reglur um hvernig sauðalitirnir
erfast árið 1960. Þær hafa verið
prófaðar erlendis siðar, og þar
fengust sömu niðurstöður. En
kenningum Stefáns Aðalsteins-
sonar um erfðir lita i sauðfé er
lýst I viðtali Valgeirs Sigurðsson-
ar við hann I Lesbók Timans 26.
júni og 4. júli 1971.
Nýjar reglur um
litaerfðir hrossa
Hvergi eru aðrir litir og i is-
lenzkum hrossum og á siðastliðnu
ári setti Stefán Aðalsteinsson
fram nýjar reglur um erfðir á lit-
um hrossa. Eru þær einfaldari
en áður var talið Og virðast koma
saman við það, sem þekkt er ann-
ars staðar Iheiminum,en hér eru
til eiginlega allir þeir litir á
hrossum, sem þekkjast annars
staðar.
Þá hefur verið unnið að rann-
sóknum á hvitum og gulum lit hjá
sauðfé undanfarin 14-15 ár. Versti
eðlisgallinn á hvitu ullinni eru
rauðu illhærurnar I henni. Mörg
þúsund fjár hafa verið rannsökuð
á fjórum stöðum á landinu með
tilliti hvernig hviti og guli liturinn
erfast og hvað á sér stað þegar
farið er að velja alhvitt fé og
hvort það er öðruvisi til afurða en
gula féð. Það er að sjá allt i lagi
að rækta upp alhviU fé og hægt að
ná upp nákvæmlega jafngóðu fé
eins og þvi gula.
Eftirsjá —
Hver á að
bera kostnaðinn?
Við vikjum aftur að þvi sem
rætt var um i upphafi þessa máls
og biðjum Stefán að nefna okkur
dæmi um gamlan landsstofn, sem
hefur glatazt.
— Bezta dæmið um það er frá
Noregi, sagði Stefán. -Þarrækt-
uðu bændur nautgripi með tilliti
til afurða og náðu mjög miklum
árangri i að auka afurðir: mjólk
og kjöt, með þvi að afkvæma-
rannsaka naut af beztu stofnum,
sem til voru i landinu og nota
mjög mikið þau naut, sem gáfu
JOHNS-MANVILLE
glerullar-
9 einangrun
er nú sem fyrr vinsælasta og öruggasta glerull-
areinangrun á markaðnum i dag. Auk þess fáið
þér frian álpappir með. Hagkvæmasta
einangrunarefnið í flutningi. Jafnvel flugfragt
borgar sig.
Munið Johns-Manville i alla einangrun.
Sendum hvert á land sem er.
whi JÖN LOFTSSON Hf7 Wk
" 'ngbrout 121 . Simi 10-600
Þessi glæsti hani er frá Svinafelli i öræfum en frú hans frá Klaustursseli á Jökuldal.
bezt afkvæmi. Það nautgripakyn-
ið, sem bezt reyndist hefur verið
notað eingöngu til sæðinga og
gömlu norsku landkynin eru að
verða horfin. Þau höfðu ekki
sömu afurðasemi eins og þetta
aðflutta kyn, en þau höfðu erfða
eðli, sem var sérstakt að sumu
leyti og það glatast með þeim.
Þetta sérstaka eðli er raunar til
I islenzkum kúm. Sérkennilegir
litir og blóðflokkar eru i Islenzk-
um nautgripum, hrossum og
sauöfé. Og blóðflokkar fólks hér,
Norðmanna, Ira og Skota eru
raunar einnig sérstæðir. En þessi
atriöi eru engan veginn fullrann-
sökuð enn.
Þaö er ákveðin eftirsjá i þvi
þegar gamlir stofnar deyja út, en
erfitt er að vita hver ætti að bera
kostnað af að halda við þessum
kynjum. 1 Bretlandi hafa verið
stofnuð samtök til að vernda
gamla búfjárstofna. Þeir ætla að
setja upp sérstakt svæði þar sem
þessir gripir verða hafðir og
ræktaðir. Þessi starfsemi verður
væntanlega styrkt af áhuga-
mönnum og aðgangseyrir inn á
svæðið rynni einnig til greiðslu
kostnaðar.
Upphafið að þvi að aðgerðir
voru hafnar til að vernda hænsna-
stofninn hér var það að FAO,
matvæla- og landbúnaðarstofnun
Sameinuðu þjóðanna var að
grennslast fyrir um horfna bú-
fjárstofna fyrir nokkrum árum.
Dr. Stefán komst að þeirri niður-
stöðu við það tækifæri, að geita-
stofninn islenzki væri varðveitt-
ur. Ameríkani hafði þá nýlega
bjargað islenzka hundastofninum
frá þvi að deyja út, og loks var is-
lenzki hænsnastofninn þá liklega
talinn útdauður. Það reyndist þó
ekki vera, en hvort hægt verður
að snúa vörn i sókn mun framtið-
in leiða i ljós.
SJ
Húsbyggjendur —
EINANGRUNARPLAST
Gctum afgreitt einangrunarplast á Stór-
Reykjavíkursvæöið með stuttum fyrir-
vara.
Afhending á byggingarstað.
HAGKVÆM VERÐ.
GREIÐSLUSKILMALAR
Borgarplast hf.
Borgarnesi
Simi 93-7370
Helgar- og kvöldsimi 93-7355
SPrING
DYNUR
KM-springdýnur
Framleiðum nýjar springdýn-
ur, einnig eins og ' tveggja
manna rúm. — Gerum við
notaðar springdýnur sam-
dægurs.
Helluhrauni 20 Opið til 7 alla
Hafnarfirði virka daga.
Sími 5-30-44
Þrlr unganna, sem litiö hafa dagsins ljós sfðan hænsnaræktin hófst aöKeldnaholti. (Timamyndir Róbert)
BILAVARA-
^ HLUTIR
NOTAÐIR
VARAHLUTiR
i FLESTAR GERÐIR ELDRI BÍLÁ
Ódýrt:
öxlar
lientugir i aflanikerrur
bretti
hurðir
húdd
rúður o.fl.
vélar
gírkassar
drif
hósingar
fjaðrir
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10, simi 11397.
Opið frá kl. 9—-7 alla virka daga og 9—5
laugardaga.