Tíminn - 13.06.1975, Page 19
Fimmtudagur 12. júní 1975
TÍMINN
19
1
Framhaldssaga
|j '
Ifyrir
Íbörn
Herbert Strang:
Fífldjarfi
drengurinn
aftan bak, og sólin
skein á krúnurakaðan
hvirfil hans, sem var
umkringdur hrafn-
svörtu hári.
Allt i einu gekk
munkurinn áleiðis að
borðinu.
— Jæja, hvað ertu
búinn að lesa? spurði
hann.
— Ekkert, ég get
ekki lesið þetta, svar-
aði drengurinn önug-
ur.
— Hefurðu reynt
það?
— Mig langar
ekkert til þess. Hvað
hef ég gott af þvi? Þú
segir mér söguna,
Ambrósius.
— Það er ekki
sama. Þú verður að
læra að lesa hana
sjálfs þin vegna.
— Hvers vegna ætti
ég að vera að þvi?
Hann pabbi er tæp-
lega lesandi. Þegar ég
verð stór, á ég að
verða aðalsmaður,
eins og hann. Ég ætia
ekki að verða prestur.
— Hann faðir þinn
vill, að þú lærir að
lesa. Byrjaðu nú!
Þetta er sagan af úlf-
inum i Rómaborg.
Láttu mig heyra,
hvernig þú stafar orð-
in.
— Æ, ég kann sög-
una. Hún er um það,
hvernig úlfurinn fann
drenginn á hæðinni og
allt það, sem siðan
gerðist. Hvað þýðir að
vera að lesa hana?
— Vertu ekki með
þessar mótbárur,
drengur. Fylgstu með
fingrinum á mér.
Lestu eftir þvi, sem ég
bendi þér.
Hann færði
0 Heita vatnið
Borgarlögmaður, Páll Lindal
og frú
Borgarverkfræðingur Þórður
Þ. Þorbjarnarson og frú
Skrifstofustjóri borgarstjórnar
Jón G. Tómasson og frú.
Borgarendurskoðandi Helgi V.
Jónsson og frú
Borgarlæknir, Skúli G.Johnsen
og frú.
Form. Starfsm. fél. Rvikur
Þórhallur Halldórsson og frú.
Forsætisráðherra Geir Hall-
grimsson og frú.
Félagsmálaráðherra Gunnar
Thoroddsen og frú.
Utanrikisráðherra Einar
Agústsson og frú.
Tómas Guðmundsson, skáld og
frú.
Kristján Sveinsson læknir,
Frú Aslaug Agústsdóttir.
Form. Sænsk-isl. fél. Njörður
P. Njarðvik og frú.
Form. Reykvikingafélagsins
Vilhjálmur Þ. Gislason og frú.
Lögreglustjórinn I Reykjavik
Sigurjón Sigurðsson og frú.
Frú Auður Auðuns, fyrrv.
alþm.
Sendiherra Guðmundur I. Guð-
mundsson og frú.
Ráðuneytisstjóri Pétur Thor-
steinsson og frú.
Ráðuneytisstjóri Guðmundur
Benediktsson og frú.
Húsameistari rikisins Höröur
Bjarnason og frú.
Dr. Sigurður Þórarinsson og
frú.
Skrifstofustjóri Höröur Helga-
son og frú.
Forsetaritari Birgir Möller og
frú.
Gjaldheimtustjóri Guðm, Vign-
ir Jósefsson og frú.
Félagsmálastjóri Sveinn Ragn-
arsson og frú.
Hitaveitustjóri Jóhannes Zoega
og frú.
Ragmagnsstjóri Aðalsteinn
Guðjohnsen og frú.
Framkvæmdastjóri Borgar-
spitala Haukur Benediktsson og
frú.
Form. Iþróttaráðs Sveinn
Björnsson og frú.
Iþróttafulltrúi Stefán
Kristjánsson og frú.
Forstöðumaður Alfreð Guð-
mundsson og frú.
Form. Reykjavikurdeildar
Norræna félagsins, Guðni Þórð-
arson og frú.
O Ræða Birgis
sýnir, að snemma gerðu menn i
Sviþjóð sér grein fyrir þvi, að
friður er grundvöllur velmegun-
ar, og þótt strið hafi geysað i Svi-
þjóð og á Norðurlöndum oft siðan
eftir daga Yngva-Freys, þá vitum
við, að I dag er Sviþjóð friðarins
þjóð og þjóð mikillar velmegun-
ar. Hugmyndir okkar um margt,
sem horfir til aukinnar velferðar,
sækjum við einmitt til Sviþjóðar i
dag.
Milli Stokkhólms og Reykjavik-
ur er gott samstarf. Borgar-
stjórnin I Stokkhólmi hefur oft
veitt okkur holl ráð og góðar leið-
beiningar og þess er vert að
minnast, að Stokkhólmur var
fyrsta höfuðborg Norðurlanda til
að bjóða sendinefnd frá Reykja-
vik Ikynnisferðtil sin, og þar með
var brautin rudd fyrir þeim nánu
samskiptum, sem nú eru á milli
höfuðborga Norðurlanda. Hér vil
ég og minnast á menningarmið-
. stöðina Hásselby i Stokkhólmi,
sem er sameign höfuðborga
Norðurlanda og stofnsett var
fyrir frumkvæði Stokkhólms-
borgar. Stofnunin ,er staðsett á
fögrum stað skammt frá Málaren
I einni af útborgum Stokkhólms.
Það frumkvæði Svia hefur gert
Ibúum I öllum höfuðborgum
Norðurlanda kleift að kynnast
menningu hvers annars og er
skemmst að minnast þess, að á
s.l. hausti hélt Reykjavík þar sýn-
ingu um þróun Reykjavikur I 1100
ár.
Tvífarinn
endursýndur
Kl. 22.30 i kvöld verður endur-
sýndur siðasti þáttur „Tvifar-
ans,” og er sú útscnding ætluð
sjónvarpsnotendum á Vcstur-
landi og á Vestfjörðum, en
Stykkishólmssendir var
bilaður, þegar þátturinn var
sýndur sl. þriðjudagskvöld.
En Reykjavik hefur einnig átt
góða samvinnu við aðra stóra
borg i Sviþjóð, en það er Gauta-
borg, en borgarstjórnin þar sendi
sérstaka fulltrúa til Reykjavikur
á s.l. ári til að vera við hátiða-
höldin, sem hér voru haldin i til-
efni 1100 ára byggðar i Reykja-
vik. Þessa samvinnu metum við
mikils. Við gerum okkur grein
fyrir, að í samstarfi hinna nor-
rænu þjóða er Sviþjóð stóri bróð-
irinn, en Island litli bróðirinn, en
slik bræðrabönd eru oft einmitt
þau mikilvægustu.
Yðar hátign sækir borg okkar
og land heim á þeim árstima,
þegar náttúran skartar sinu feg-
ursta og landið virðist blitt og
eftirlátt ibúum sinum. Náttúran
hefur þó á sér aðra og óbliðari
hlið og vist er að ekki hafa allir
Sviar, sem hingað hafa komið,
verið á einu máli um islenzkar
aðstæður. A árunum milli
heimsstyrjaldanna kom sænski
rithöfundurinn Harry Martinsson
sem ungur sjómaður á skipi til
Reykjavikur. Skipið varð að
halda kyrru fyrir I ytri höfninni i
miklum snjóstormi i fimm sólar-
hringa, áður en það gat haldið
leiðar sinnar út á Atlantshafið
aftur. Athugasemdir Martinssons
um þessa heimsókn eru á þessa
leiö: „Island er et land man skal
læse om”.
Vist getur hinn dimmi norræni
vetur verið óbliður, en það þekkja
Sviar lika af eigin raun frá sinu
landi. Veturinn hefur án efa áhrif
á skapgerð beggja þjóðanna,
enda fyrirferðarmikill vorskáld-
skapur eitt af sameiginlegum
einkennum bókmennta þjóða
okkar.þarsem skáldin hylla vorið
og hækkandi sól. Baráttan við
náttúruöflin um aldaraðir hefur
styrkt frelsisþrá okkar og virð-
ingu fyrir lifi og helgi hvers ein-
staklings. „Frihet bor i Norden”,
sagði Wennerberg. 1 þeim atrið-
um gætum við verið öðrum til
fyrirmyndar i heimi, þar sem allt
of algengt er, að mannhelgi og
frjáls hugsun sé fótum troðin.
Þótt ég hafi minnzt hér á óblið
náttúruöfl, vitum við Islendingar,
að Islenzk náttúra er gjöful og
reyndar grundvöllur lifs okkar.
Einum þessara gæða hefur yðar
hátign kynnzt i morgun, þar sem
voru hinar heitu laugar I Laugar-
dal. Þar hafa verið heitir hverir
frá örófi alda og talið er, að það
hafi verið gufan, sem frá þeim
lagði, er varð tilefni nafns borg-
arinnar, Reykjavik — Rökviken
—. Heita vatnið notum við nú til
að hita upp slikar sundlaugar,
eins og yðar hátign reyndi i morg-
un, borgarbúum til endurnæring-
ar og heilsubótar. Við hitum lika
alla borgina upp með þessu vatni,
eins og yðar hátign mun fá tæki-
færi til að kynnast siðar.
Yðar hátign. Heimsókn yðar er
okkur fagnaðarefni og mun
treysta vináttubönd Islands og
Sviþjóðar. Leyfist mér að lyfta
glasi og skála fyrir yðar hátign og
sænsku þjóðinni.
O 17. júní
er, hvaða hljómsveit leikur á
hverjum stað.
Undirbúningur að hátiða-
höldunum hefur gengið vel, þrátt
fyrir skugga verkfalls, en ákveðið
hafði verið að hátíðahöldin færu
fram hvort sem af þvi yrði eða
ekki. Þegar er búið að koma upp
öllum pöllum i borginni, stórum
sorppokum verður dreift um
hátiðasvæðin, og fólk er beðið að
sýna ýtrustu snyrtimennsku i
hvivetna. Má þvi með sanni
segja, að mikil fyrirhyggja hafi
rlkt I starfi þjóðhátlðarnefndar.
Sautján sölutjöld verða á hátiðar-
svæðunum.
Þjóðhátiðarnefnd 1975 skipa:
M'3r Gunnarsson formaður,
Kolbeinn Pálsson, framkvæmda-
s'vjóri, Hilmar Svavarsson ritari,
Nina Hjaltadottir, Böðvar
Pétursson og Jóel Jakobsson.
Dagskrárstjóri er Klemenz Jóns-
son.
Aö venju verður merki
þjóðhátiöardagsins selt, en það
gerði Astmar Ólafsson teiknari,
og hafði hann að fyrirmynd lista-
verk Asmundar Sveinssonar,
Móður jörð.
Barn slasaðist
Sex ára gamall drengur varð
fyrir bil i Hvassaleiti um kl. 18.00
i gær. Meiddist drengurinn tals-
vert, er m.a. fótbrotinn, en er
ekki i llfshættu.
Slysið varð með þeim hætti, aö
jeppa var ekið austur Hvassa-
leiti, og hljóp drengurinn út á ak-
brautina i veg fyrir hann.
Bilstjórinn beygöi undan, en
drengurinn lenti fyrir vinstra
framhjóli, með fyrrgreindum af-
leiðingum.
Tveir piitar
um tvítugt
óska eftir vinnu helzt
úti á landi. Margt kem-
ur til greina. Upplýs-
ingar í síma 1-97-60.
Unglingar óskast
Nokkrir unglingar óskast strax til
innheimtu ó happdrættismiðum.
Upplýsingar á skrifstofu
Framsóknarflokksins
Rauðarárstíg 18.
TIZKUSYMNGAR
AD
HOTEL
LOFTLE/DUM
ALLAFOSTUDAGA
KL. 12.30—13.00.
Hinir vinsælu íslenzku hádegis-
réttir verða enn Ijúffengari,
þegar gestir eiga þess kost að sjá
tízkusýningar, sem íslenzkur
Heimilisiðnaður, Módelsamtökin
og Rammagerðin halda alla
föstudaga, til þess að kynna sér-
stæða skartgripi og nýjustu
gerðir fatnaðar, sem unninn er
úr íslenzkum ullar- og skinnavör-
um.