Tíminn - 06.07.1975, Blaðsíða 3

Tíminn - 06.07.1975, Blaðsíða 3
Sunnudagur 6. júli 1975. TÍMINN 3 How to make the sound system you bought sound like the sound system you bought. <SS KARNABÆR HLJOMTÆK JADEILD Laugavegi 66 • Simi 2-8 1-55 ® Háskólanám fólks, sem býr i dreifbýli, hverf- ur fremur frá námi en aðrir o.s.frv. — Við höfum lengi gengið með hugmyndir um könnun af þessu tagi i kollinum, sagði Arnlin, og höfum þvi viðað að okkur niðurstöðum hliðstæðra kannana frá Danmörku. Þar hverfa flestar konurnar frá námi vegna barneigna, en það kemur e.t.v. á óvart, að þær hætta fæstar sama ár og þær fæða barnið, heldur oftast einu til einu og hálfu ári siðar, þvi að það reynist þeim of mikið álag að stunda erfitt skólanám samhliða barnauppeldinu. — Ákveðið var að taka fyrir i könnuninni árganginn, sem innritaðist i skólann 1969 og fylgja honum allt til 1975. Við munum senda spurningalista til þeirra, sem fallið hafa úr á leið- inni, og vonumst til að þeir svari vel og greiðlega, þvi að á þvi byggist árangur starfsins. Sennilega verðum við búin að vinna úr flestum tölum eftir svona sex vikur, en þá áendum við spurningalistana út. Þá eigum við eftir að skrifa og semja okkar ályktanir, sem væntanlega verða gefnar út i bæklingi ásamt niðurstöðum könnunarinnar, sagði Arnlin. Athugasemd t viðtali við mig i Timan- um 29. júni hafa orðið nokkur mistök. 1. Vaktaskipti til sjós á handfæraveiðum iminu ung- dæmi voru þannig: Langa- vaktin frá kl. 12 á hádegi til kl. 7 að kvöldi, en þá byrjaði kvöldvaktin (sem féll úr) og stóð hún til kl. 4. Svo kom þristurinn frá kl. 4-7 og að þvi loknu hófst morgun- vaktin, er stóð til kl. 12 á há- degi. Vaktirnar voru þvi fimm. 2. I viðtalinu stendur, að stóru strikin á kompásnum séu 22. Það er ekki alveg rétt haft eftir mér. Visur minar, er snerta kompásinn, eru allar bara um heilstrikin, en þau eru 32, eða 8 á milli höfuðátta i hverri stöku. Fyrsta vísan er þannig: Núr til óst, og núr núr óst, núr óst til núr, núr óst, núr óst til óst, og óst núr óst, og óst til núr og óst. Suðureyri 1/7 1975 Virðingarfyllst Sturia Jónsson. Fjölmargir unglingar úr Reykjavík fá I sumar vinnu við að græða upp Hólmsheiðina, og sjást nokkrir þeirra hér við störf. (Tlmamynd Róbert.) UPPGRÆÐSLA HÓLMSHEIÐAR HAFIN FB-Reykjavik. Þeir, sem ekið hafa um Suðurlandsveg ivikunni, hafa tekið eftir stórum hópi ung- menna, er unnið hefur við iand- græðsiustörf utan við veginn I Hólmsheiðinni. Þarna er að byrja mikið uppgræðsiustarf, en ákveð- ið hefur verið að girða um 400 ha iands I heiðinni I sumar, stinga niður rofabörð og sá i þau. Starf- semi þessi er á vegum Reykjavik urborgar, landbúnaðarráðherra, iandgræðslu rikisins og skógrækt- arinnar. Umhverfismálaráð Reykjavík- urborgar fékk Ingva Þorsteinsson magister til þess að kanna gróðurfar i kringum Reykjavik. Komst Ingviað þeirri niðurstöðu, að mikil gróðureyðing ætti sér stað á þessu svæði, og meira að segja væri ástandið svo alvarlegt á Hólmsheiðinni, að þar væri stefnt að gróðurauðn, ef ekkert yrði að gert. Hópur ungmenna hefur nú hafið störf i heiðinni i þeim tilgangi að hefta þar gróðureyðinguna. Akveðið var, þegar áætlun var gerðum þetta björgunarstarf, að skógræktin legði til plöntur, girð- ingarefni og fleira fyrir fimm milljónir króna, landgræðslan mun leggja til áburð, fræ og fleira fyrir sömu upphæð. Þá mun land- græðslan einnig leggja til vinnu- laun, 10 milljónir kr. og Reykja- vikurborg sömu upphæð til vinnu- launa. ATDK aaaullaa á segulbandsþnæði Sérfræðileg þekking T.D.K. á segulmagni og seguláhrifum, hafa sett T.D.K. í fremstu röð framleiðanda á segulbandsþræði Þegar þú hljóðritar uppáhalds hljómlistina þeirra, kemstu fljótt að raun um að T.D.K. spólurnar hafa: alla háutónana, alla millitónana, alla lágutónana, allar yfirsveiflur og allt sem skiptir máli til að ná fullkominni upptöku Kassettur frá T.D.K. eru til sölu í mörgum útgáfum DYNAMIC (D) er góður og ódýr þráður sem er mjög góður til allra venjulegrar upptöku. SUPER DYNAMIC (SD) Mjög góður þráður sérstaklega þar sem gerðar eru kröfur um tóngæði EXTRA DYNAMIC (ED) Bezti þráður, sem völ er á. Notist þar sem kröfur um gæði eru mestar. KRÓM (KR) Frábær þráður sem notist í tæki gerð fyrir krómþráð einnig fyrirliggjandi OTDK fást í öllum helstu h Ij ó mtækjaverslu nu m

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.